Veiðimaðurinn - 01.12.1943, Side 33
þar, einkum hættir mörgum við að láta
laxinn verða varan við sig.
í neðsta streng liggur laxinn ekki
sem heitið getur nema ef áin er í vexti.
í strengjunum hefur veiðst stærsti
lax, sem í Grímsá hefur fengizt, veidd-
ur af Halldóri Vilhjálmssyni, skóla-
stjóra á Hvanneyri. Háði hann við hann
einhverja þá mestu orustu sem ég hefi
heyrt um. Eftir að hafa þreytt hann
fram og aftur í lengri tíma, slitnaði úr
laxinum, þar sem hann var kominn
upp á grynningar. Fleygði Halldór þá
frá sér stönginni og kastar sér ofan á
laxinn, þar sem hann var að brjótast
út í ána aftur, en hann var sleipur svo
ekki gekk vel að festa hendur á hunum.
Varð Halldóri þá það fangaráð að bíta í
sporðinn og þannig draga hann upp.
Lax þessi vóg 34 pund, og mjög leginn.
Skammt fyrir neðan Strengi er Lækjar-
foss, er var áður fyrr einn með beztu
veiðistöðum. en hefur nú fyllst upp að
mestu. Hörgshylur uridii brúnni er
djúpur og siór hylur og oft liggur bar
mikill lax en er tregur með einsdæm-
um, nema á brúninni fyrir ofan tekur
hann oft mjög vel. Frá Hörgshyl niður
að Móbergshyl eru margir smá fossar
og hávaðar, en aðstaða til veiði er leið-
inleg í þeim flestum, og því lítt stund-
uð. Veiðifoss og Cookpool eru þeirra
helztir. Móbergshylur, miðja vegu milli
hússins og Strengja er skemmtilegur
lítill hylur, einkum þegar laxinn er í
göngu.
Svartistokkur: Hér rennur áin í
þrengslum, sem mynda djúpan en þröng
an stokk, með háum klöppum á báða
vegu. Bezt er að byrja að veiða efst í
Stokknum, er lítill munur hverjum meg-
in staðið er, og smá færa sig niður.
Þegar Stokknum sleppir, breiðir áin
aftur úr sér og myndar lygnt og breitt
fljót, Heimafljótið. Það er hinn ákjós-
anlegasti flugustaður, einkum seinni
part dags.
Laxfoss: I fossinn og Myrkhyl, sem er
norðan megin við Miðberg, kemur lax-
inn fyrst á vorin, og eru það einu stað-
irnir, sem teljandi veiðivon er í fyrstu
15 daga veiðitímans. Fyrir neðan foss-
31