Veiðimaðurinn - 01.12.1943, Blaðsíða 34
Fossinn í Grímsá séður frá Lambakfettsfljótinu.
inn myndast fyrst eins og ker, og við
neðri enda kersins norðan megin, geng-
ur klapparflúð út frá landinu. Yzt úti
er flúðin hæst og líkast sem hún end'i
á stórum steini, sem aðeins örlar á þeg-
ar áin er lítil. Framhjá steini þessum
myndast strengur. í streng þessum
liggur laxinn mest, en færir sig upp
kerið, þegar hann fer að leita upp foss-
inn, og eins af hinu, ef hann verður fyr-
ir styggð. Veiða má báðum megin foss-
ins. Þó munu flestir velja að vera á
klöpinni norðan megin. Flugustaður er
þó mjög góður af eyrinni húsmegin
Einnig fæst oft lax á maðk frá foss-
brúninni sunnan megin ef rennt er
niður í iðuna.
í Myrkhyl er laxinn mjög tregur
og aðstaða slæm.
Skammt fyrir neðan Foss er Lanmba-
klettsfljót, veiðistaður góður, einkum
fyrir þá, sem hafa trú á því seinnipart
sumars að nota spoon.
Neðstu veiðistaðir í ánni eru svo
Hólmavaðskvörn og Langidráttur. Nú
orðið er sjaldan veitt fyrrihluta
veiðitíma í Kvörninni, en síðast á sumr-
in, og jafnvel eftir veiðitíma, safnast
laxinn þangað til að hrygna, enda er
þar næst bezti hrygningarstaðurinn í
ánni. Langur strengur er fyrir neðan
Kvörnina sem Langidráttur heitir. I
streng þessum, sem mjög er lítið reynd-
ur, er oft mjög mikill lax en vandhitt-
ur. Þar hef ég oft fengið ágæta veiði
og minn stærsta lax í Grímsá. Frá
Langadrætti ofan að ós er nú orðið eng-
inn staður fyrir lax að liggja á. Áður
voru þar þó tveir staðir Neskvörn og
Eiríkshólmi, en áin hefur breytt þeim
svo að nú eru þeir horfnir.
Um Grímsá vildi ég svo að endingu
segja þetta: Hún er mjög skemmtileg og
margbreytileg veiðiá, hæg að stunda og
skemmtileg við að vera. Laxinn er yfir-
leitt frekar tregur, svo ekki fást eins
margir fiskar á dag og víða annarsstað-
ar. En góður veiðimaður fær þar alltaf
veiði með því að leggja sig fram og
þessvegna er Grímsá vafalaust mesta
„sport-áin“ í Borgarfirði.
Ferjukoti í okt. 1943
Kristján Fjeldsted.
Munið,
veiðimenn og aðrir les- |
endur blaðsins: Næsta |
hefti kemur út í apríl. |
Sendið efni í blaðið — |
fyrr en seinna! \
iiiiiiii■11111111111iiiiiii111111111iiiiiii11111111iiiiii
32