Veiðimaðurinn - 01.12.1943, Qupperneq 35

Veiðimaðurinn - 01.12.1943, Qupperneq 35
FLUGUR Veiðimenn nota ýmsar tegundir af flugum og hafa á þeim misjafnlega mikið dálæti. Sumir hafa mesta trú á ljósum flugum, aðrir á dökkum. Við getum í stuttu máli sagt: Þetta er svona upp og niður! En „flugur“ Veiðimannsins eiga ekk- ert skilt við þær, sem hanga í húfun- um eða geymast í fluguboxunum. Þær eru gripnar á skotspónum, ef svo mætti að orði kveða, beint út úr munni veiði- mannanna, og þaðan fljúga þær rak- leitt inn í prentsmiðjuna og setjast á pappírinn, hvort heldur þær eru ljósar eða dökkar. __o_ Einu sinni var kunnur veiðimaður að veiða austan fjalls og þandi sig með spooninn eins og hann gat. Þetta vild’ann. Loksins kominn á. Rosa fisk- ur. Leggst í miðjan streng og hreyfir sig lítið. Kannske 30 pund. Hálftími liðinn. Hægt og rólega sígur hann nið- ur hylinn. Sýnir sig ekki. Voða spenn- ingur. Þrjú kortér, og nú fer veiðimað- urinn að ókyrrast. Fer að taka á móti. Og nú fer sá stóri í svifum niður á eyrarnar, glittir í hann hvítan, Strand- ar.. Saltfiskur hafði verið lagður í bleyti frá næsta bæ. Losnað undan farginu og flotið út í hylinn. Tók spoon. Veiðimaðurinn fór heim. o Vel metinn veiðimaður var við veið- ar í Grástraum í Laxá í Suður-Þing. Stórlax stökk nokkrum sinnum skammt neðan við veiðimanninn, en vildi ekki Þannig á aS ,,landa" laxinum. SleppiS aldrei stöng- inni fyrr en gott ,,tak" hefur fengizt á fiskinum. líta við flugum hans. Þá út með spoon- inn. í þriðja kasti er hann kominn á, og veiðimaðurinn hefur aðeins tóm til að kalla til félaga sinna hinum megin árinnar: „Þetta vildi hann bölvaður!" Og svo ein bláhvít rokan niður úr straumnum og lengst út á vatn, út með 150 yards. Allt „á stampi“ á hjólinu. Neyðarópin kljúfa loftið: „Bátinn, bát- inn í flýti“. Yfir er róið og út á vatnið á eftir „þeim stóra“. Loksins er honum landað. Kræktur í sporðinn 25 punda hængur! Þetta vildi hann bölv- aður!! o__ Veiðimanninum væri kærkomið, ef lesendur hans vildu senda honum skemmtilegar sögur, um einstaka veiði- atburði sem færu vel til birtingar á „Flugna-síðunni“. __o__ Prófessor í guðfræði við Háskóla ís- lands var eitt sinn við veiðar í Stóru- Þverá. Eins og kunnugt er, er mikill hylur í ánni, sem Hellgate eða Heljar- gátt nefnist, ljótur og lítt veiðisæll. Guðfrœðiprófessorinn dró samt góð- an lax úr Heljargátt á Black-doctor. 33

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.