Veiðimaðurinn - 01.12.1943, Page 36

Veiðimaðurinn - 01.12.1943, Page 36
Frd útgefandaniim Eins og stjórn Stangveiðifélags Reykja- víkur er kunnugt, réðist ég undirritaður í útgáfu „VeiSimannsins“, blaðs stang- veiðimanna, vorið 1940. Þá var auðvitað allt á huldu um það, hvort þessi hug- mynd fengi þær undirtektir hjá veiði- mönnum, að rétt væri að halda áfram, og einnig um það, hvernig útgáfunni skildi hagað. A því ári komu svo út 2 tbl. af ,,VeiSimanninum“, og var þeim svo vel tekið, að sýnilegt var þá strax, að nægur áhugi væri fyrir blaðinu og fullkomlega tímabært fyrir veiðimenn að eignast sitt eigið blað. AS öllu athuguðu og eftir því sem undirtektir hafa verið, tel ég því rétt að láta ,,Veiðimanninn“ koma út áfram, og hef því ákveðið að láta hann koma út reglulega tvisvar á ári hér eftir. ViS þessa fyrstu tilraun hef ég aðeins selt blaðiS í lausasölu, en til að tryggja útgáfu þess þyrfti það að eignast sem flesta skilvísa og fasta kaupendur. Ég hef því hafið áskriftarsöfnun, og þar sem stjórn StangveiSifélags Reykja- víkur hefur frá því fyrsta tekið þátt í hug- myndinni um blaðið, af sérstakri vel- vild og áhuga, vona ég, að eftirfarandi til- mæli mín, ,,Veiðimanninum“ til styrkt- ar og félagsmönnum til sparnaðar, næðu fram að ganga: 1. StangveiSifélag Reykjavíkur gerist áskrifandi að jafnmörgum eintökum Honum hefur verið bjargað frá „flugnahöfðingjanum“ laxinum þeim! En annar hvor hefur auðvitað verið „úti á þekju“, prófessorinn eða laxinn! o Næsta hefti Veiðimannsins, sem ætl- ast er til að komi út í apríl 1944, bíður eftir að geta bitið á nokkrar skemmti- legar og litprúðar „flugur“. Lagleg kvöldveiði úr Haffjarðará. „HawrC* kvað oft yyVera vel við** þar vestur á Mýrunum. af blaðinu og félagar þess eru marg- ir. — 2. Félagið gerir skil einu sinni á ári fyr- ir alla meðlimi þess í heild. 3. FélagiS fær blaðið fyrir 2.00 kr. lægra verð árganginn en hann kostar utan- félagsmenn. Ef þessi tilmæli mín næðu samþykki félagsins, myndi blaðinu bætast um 100 öruggir kaupendur, sem því væri mikils- vert. Hins' vegar spöruðu félagsmenn sér 200 krónur árlega. Hvað viðvíkur inn- heimtu á þessu hjá félagsmönnum, þarf hvort sem er að innheimta félagsgjöld þeirra, og virðist þá ekkert á móti því að láta gjaldið fyrir blaðið fylgja með. Ef félagið af einhverjum orsökum get- ur ekki farið þessa leið, en vill hins veg- ar eitthvað fyrir blaðið gera, hef ég auð- vitað ekki á móti því, að þetta sé rætt í öðru formi. Virðingarfyllst. Bókaútgáfa Guðjóns Ó. Guðjónssonar. 34

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.