Bændablaðið - 06.10.2022, Síða 20
Aukin framlög eru því til útbreiðslu á
birki. Framlög til skógræktar á lögbýlum
hafa einnig aukist af hálfu hins opinbera.
Samhliða því hefur aukist mjög áhugi
ýmissa fyrirtækja, stofnana og samtaka,
innlendra og erlendra, á því að rækta skóga
á Íslandi til kolefnisbindingar og eflingar
náttúru og samfélags.
Skógræktin verður með bás á
Landbúnaðarsýningunni í Laugardalshöll
14.-16. október. Þar verða fulltrúar
stofnunarinnar til samtals um hvaðeina sem
snertir skóga og skógrækt með sérstakri
áherslu á kolefnismálin annars vegar og
skipulagsmál skógræktar hins vegar.
Undanfarin misseri hefur Skógræktin
í samstarfi við ýmsa aðila unnið að því
að innleiða viðurkenndan staðal um
kolefnisbindingarverkefni með skógrækt
sem hæf eru til alþjóðlegrar vottunar.
Með slíkum verkefnum er hægt að búa til
vottaðar kolefniseiningar með skógrækt
sem telja má fram á móti losun í grænu
bókhaldi og öðlast þar með ábyrga
kolefnisjöfnun á losuninni. Staðallinn
er kallaður Skógarkolefni og eru fyrstu
verkefnin sem í fyllingu tímans hljóta
vottun nú í burðarliðnum. Matvælaráðherra
kynnti nýlega nýja sameiginlega stefnu
ríkisvaldsins um skógrækt og landgræðslu
undir heitinu Líf og land. Þar eru sett
fram opinber markmið um þessi mál og
tíundaðar leiðir að markmiðunum.
Skammt er síðan ný skógræktarlög tóku
gildi hér á landi og eru þau meginramminn
um alla skógrækt á landinu. Ýmislegt
fleira setur skógrækt ramma, svo sem
aðal- og deiliskipulag sveitarfélaga,
lög um náttúruvernd og náttúruminjar,
lög um fornleifar og fleira mætti nefna.
Öflugt rannsóknarstarf fer líka fram í
skógargeiranum. Skógrækt býr því við gott
aðhald sem tryggir vönduð vinnubrögð.
Verið velkomin í bás Skógræktarinnar á
Landbúnaðarsýningunni í Laugardalshöll.
Við tökum vel á móti ykkur og hver veit
nema ketilkaffi verði á eldstæðinu og
eitthvað gott í gogginn sem á uppruna sinn
í skóginum.
Skógræktin, Miðvangi 2-4, 700
Egilsstaðir. Sími 470 2000. Netfang:
skogur@skogur.is. Vefsíða: www.skogur.is
Þennan skemmtilega leik geta gestir í bás Skógræktarinnar tekið með sér og notað
þegar skógar eru heimsóttir, á ferðalögum um landið o.s.frv. Myndir / Pétur Halldórsson
Skógrækt er í mikilli sókn á Íslandi um þessar mundir. Stjórnvöld
hafa tekið svokallaðri Bonn-áskorun Evrópulandanna fram til 2030
og teflt þar fram sem meginmarkmiði að þekja birkiskóga fari úr einu
og hálfu prósenti í fimm prósent.
Skógur og skipulag er eitt af því sem gestir Landbúnaðarsýningarinnar geta komið og rætt við fulltrúa Skógræktarinnar um. Skógrækt er markaður skýr rammi með lögum um
skóga og skógrækt, náttúruvernd og minjavernd en einnig aðal- og deiliskipulagi sveitarfélaga og fleiri þáttum.
Markmiðin með skógrækt til nytja og kolefnisbindingar eru fjölþætt. Nefna má
uppbyggingu timburauðlindar til framtíðar, kolefnisjafnvægi landsins, útivist, betra
veður og fleira og fleira. Dvöl í stæðilegum skógi er heilsubót í amstri lífsins.
Skógræktin vinnur að því í víðtæku samstarfi að breiða út birkiskóga landsins. Markmið
stjórnvalda er 5% þekja birkiskóglendis 2030. Söfnun og sáning á birkifræi er ekki síst
skemmtilegt verkefni fyrir fjölskyldufólk. Nánar á birkiskogur.is
Sk
óg
ræ
kt
in
KYNNINGAR