Fréttablaðið - 07.03.2023, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 07.03.2023, Blaðsíða 16
Gísli Ásgeirsson er framkvæmda- stjóri og leiðsögumaður Six Rivers Iceland og hefur haft yfirum- sjón með Fossgerði. Gísli er með ólæknandi veiðidellu og í raun útivistardellu. Hann nýtur þess að vera í umhverfinu sem veiðihúsið við Selá býður upp á og líður hvergi betur. „Mér líður best úti undir beru lofti, helst í ósnertri íslenskri nátt- úru,“ segir Gísli sem hefur mikla ástríðu fyrir starfi sínu. Þegar Gísli er beðinn um að segja frá ánni Selá og náttúruundrinu sem einkennir umhverfið stendur ekki á svörum. „Við erum þeirrar skoðunar að Selá og árnar á Norðausturlandi séu þær bestu í heimi. Auðvitað erum við ekki alveg óhlutdræg en við nánari skoðun má færa mörg rök fyrir þeirri fullyrðingu okkar. Ósnert náttúra, stórir fiskar, vatns- miklar ár og góður aðbúnaður,“ segir Gísli og bætir við að þau leggi mikla áherslu á að vera með framúrskarandi þjónustu fyrir gesti sína. Í fyrra var farið í gagngerar endurbætur á veiðihúsinu Foss- gerði, þrátt fyrir að ekki sé langt síðan húsið var byggt. „Húsið var byggt og tekið í notkun árið 2012. Við sem stóðum að því að byggja húsið tókum mikla áhættu fjárhagslega með landeigendum og ef einhvers staðar var til sparað mætti segja að hönnun innanhúss hefði mátt vera betri þó ekki hafi verið kastað til höndunum við hana. Það var því þannig að þegar við sáum til lands fjárhagslega var tekin ákvörðun um að klára húsið að fullu,“ segir Gísli og er mjög ánægður með hvernig til tókst. „Það sem vakti fyrir okkur var að bæta aðstöðuna með þeim hætti að gestir og veiðimenn gætu notið þess að verja tíma sínum inni við í af slöppun eða lestur bóka, í heim- ilislegu umhverfi þar sem stjanað er við veiðimenn.“ Aðbúnaður við Selá er allur eins og hann getur best orðið við veiðiá. Fossgerði stendur við ána og er útbúið öllum þægindum eins og á góðu fimm stjörnu hóteli í ein- stakri náttúruparadís. Húsgögnin endurnýtt Húsið er hannað af Helga Hjálm- arssyni en um val á munum og upp setn ingu innanhúss sá Nadine Bartholomew frá Noam arki- tektum í London. Mikill metnaður var lagður í að hafa hönnunina sem umhverfisvænasta. „Öll hönnun og tilhögun í rekstri miðar að því að skaða ekki umhverfið og það mun gilda um alla okkar starfsemi. Til dæmis eru húsgögn endurnýtt, efnisval er líka að hluta endurnýtanlegt og það sem boðið er upp á er úr nærumhverfinu. Litir eiga að falla inn í umhverfið og heildarhönnun er með þeim hætti að húsið kúri í umhverfinu, verði hluti þess en ekki aðskotahlutur. Öll atriði verða að falla að þessari hugmyndafræði; annars gengur hún ekki upp,“ segir Gísli. Opna rýmið í Fossgerði er ekki svo mikið breytt frá því sem var, helst má nefna barinn sem er nýr. „Við fundum fyrir þörf við- skiptavina í miðju hússins þar sem allir hittast, geta safnast saman og deilt sögum. Fallegur bar var því tilvalin lausn að okkar mati. Nýja svítan er líka vönduð viðbót í hús- inu og íbúðin er einstaklega falleg,“ segir Gísli. Húsið var upphaflega hannað með það að leiðarljósi að geta hýst ólíka hópa og er svítan partur af því. „Til að mynda gæti fjölskylda með börn eða tvenn hjón nýtt svítuna sem sitt afdrep frá öðrum í hópnum. Ekki síður erum við að gefa aðilum sem vilja vera heima kost á að líða vel í umhverfi sem minnir á veiðihús og heldur vel utan um gestina en gefur þeim kost á að njóta náttúrunnar með fallegu útsýni og beinni tengingu við Selá,“ segir Gísli og bætir við að einstaklega vel hafi tekist upp með svítuna í alla staði og útsýnið sé í raun draumi líkast, lifandi málverk blasi við út um gluggana sem fangi augað alla daga. Virðing fyrir náttúrunni Innréttingar innanhúss eru í bland íslensk smíði og hönnun, en einnig eru notaðar einingar sem gengið hafa í endurnýjun lífdaga. Oft er um eik að ræða en gólfefni og veggklæðningar eru endurnýttir eikarbitar úr gömlum járnbrautar- teinum. Það er eins og hver einasti hlutur og hvert einasta smáatriði hafi verið útpælt. Sérstaklega fangar gamla veiðidótið augað. Aðspurður segir Gísli þetta vera að einhverju leyti muni úr þeirra safni og eigu en líka munir sem fundust hjá antíksölum á Bret- landseyjum. Myndir á veggjum eru oft af Íslandi og með íslenska tengingu sem á vel við. Í hverju rými er skírskotun í íslenska náttúru sem útfærð er á vandaðan hátt. „Við erum umhverfissamtök og í því felst takmarkalaus virðing fyrir íslenskri náttúru í öllu sínu veldi. Við notum fugla og fiska, bæði uppstoppaða og myndir til að tengja við okkar starfsemi og umhverfi,“ segir Gísli sem er afar stoltur af þessari tengingu og af því að tekist hafi að tengja íslenska náttúru svona vel við vistarverur veiðimannsins á fallegan hátt. n Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Munir sem prýða húsið eru úr eigin safni í bland við muni frá breskum antik- sölum. Myndirnar eru með íslenska tengingu sem á vel við. MyndiR/GoLLi Innréttingar eru íslensk smíð úr endurnýttum efnivið. Í veiðihúsinu er dekrað við veiðifólk í mat og drykk. Veggklæðningar eru úr eikarbitum úr járnbrautarteinum. Heimilislegt umhverfi eins og í stofunni heima stuðlar að vellíðan gesta. Litatónar og húsgögn herbergjanna skapa hlýju og ró. Vínkælarnir eru í sérrými og þaðan sést í arininn. Sjöfn Þórðardóttir sjofn @frettabladid.is Öll hönn- un miðar að því að skaða ekki umhverfið. Húsgögn eru endur- nýtt, efnisval er að hluta endur- nýtanlegt og það sem boðið er upp á er úr nærum- hverfinu. 2 kynningarblað A L LT 7. mars 2023 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.