Fréttablaðið - 07.03.2023, Blaðsíða 27
TónlisT
Madama Butterfly
eftir Giacomo Puccini
Íslenska óperan
Hljómsveitarstjóri: Levente Török
Leikstjórn: Michiel Dijkema
Aðalhlutverk: Hye-Youn Lee,
Arnheiður Eiríksdóttir, Egill Árni
Pálsson og Hrólfur Sæmundsson
Önnur hlutverk: Snorri Wium,
Viðar Gunnarsson, Unnsteinn
Árnason, Jón Svavar Jósefsson,
Karin Torbjörnsdóttir, Jón Ingi
Stefánsson, Sigurlaug Knudsen,
Hulda D. Proppé, Bernadett Hegyi,
Tómas Ingi Harðarson, Arnar Dan,
Hjalti Rúnar Jónsson og Níels
Thibaud Girerd
Hljómsveit og kór Íslensku
óperunnar
Eldborg í Hörpu
laugardaginn 4. mars
Jónas Sen
Harpa er ekki óperuhús, en það var
varla að maður tryði því á frum-
sýningunni á Madömu Butterfly á
laugardagskvöldið. Óperan er eftir
Puccini og gerist í Japan í gamla
daga. Sviðsmyndin var alsett jap-
önskum táknum, og húsið hátt
uppi á hæð við endann á löngum
hrörlegum stiga var fullkomlega í
stíl. Hugvitsamleg og fjölbreytileg
lýsing skapaði mikla stemningu og
búningarnir voru sannfærandi.
Söngurinn var glæsilegur og
hljóðfæraleikurinn vandaður. Jafn-
vægi á milli söngs og hljómsveitar
var óvenju gott fyrir Eldborgina,
þar sem söngvarar eiga það til að
vera út undan. Leikstjórnin var líka
flott og hvergi var dauður punktur
í leiknum eða sviðshreyfingunum.
Þetta voru töfrar.
Brúðkaup í hálfkæringi
Madama Butterf ly f jallar um
unga japanska stúlku sem banda-
rískur sjóliðsforingi kvænist, meira
í hálfkæringi en alvöru. Þegar hann
svo þarf að fara af landi brott gerir
hann sér lítið fyrir og nær sér í aðra
konu í Bandaríkjunum. Japanska
stúlkan er hins vegar einlæg í til-
finningum sínum og bíður eftir
honum, ásamt syni þeirra, árum
saman, sannfærð um að þau muni
taka upp þráðinn að nýju. Það ger-
ist aldrei og sagan hlýtur sorglegan
endi.
Aðalhlutverkið var í höndunum
á Hye-Youn Lee, sem hefur túlkað
hlutverk Cio-Cio San, einnig kölluð
Madama Butterfly, margoft. Það var
auðfundið, því frammistaða hennar
var stórfengleg í afar krefjandi hlut-
verkinu. Hún söng eiginlega allan
tímann! Röddin var lýrísk, silki-
mjúk og voldug allt í senn, tilfinn-
ingin í söngnum djúp og ekta. Mér
fannst ég heyra mörg ekkasog í
salnum í blóðugu lokaatriðinu.
Flottir söngvarar
Egill Árni Pálsson var sjóðliðsfor-
inginn og stóð sig prýðilega. Hann
hefur máttuga tenórrödd sem sat
vel og var sterkhljómandi á sýning-
unni. Leikurinn var líka trúverðug-
ur, framkoma hans var í senn inni-
leg, en samt svo fölsk; hvort tveggja
var sannfærandi í túlkun hans.
Svipaða sögu er að segja um Hrólf
Sæmundsson í hlutverki bandaríska
ræðismannsins; hann verður betri
og betri með hverju árinu. Hrólfur
hefur djúpa og þýða rödd; söngur
hans á sýningunni var fullkom-
lega áreynslulaus. Persóna hans
var klaufaleg en um leið full af
umhyggju, og Hrólfur náði að leika
það vel.
Þerna og náin vinkona Butterfly
var leikin af Arnheiði Eiríksdóttur
og var sömuleiðis í fremstu röð,
hún hafði einkar mjúka og ómþýða
rödd. Aðrir söngvarar stóðu sig með
sóma, Jón Svavar Jósefsson var til
dæmis kostulegur í ámátlegu hlut-
verki vonbiðils; maður skellihló að
honum.
Sérstaklega ber að nefna barn-
ungan son Butterf ly og sjóðliðs-
foringjans, en hann var leikinn af
Tómasi Inga Harðarsyni. Hann var
einfaldlega frábær, enda uppskar
hann mörg húrrahróp í lok sýn-
ingarinnar.
Spilað af kostgæfni
Eins og áður sagði var hljómsveitin
með allt á hreinu undir stjórn
Levente Török. Samhljómur söngs
og hljóðfæraleiks var í ágætu jafn-
vægi. Söngurinn naut sín til fulls,
en samt var notaleg fylling og aðdá-
unarverð breidd í hljómsveitar-
leiknum. Hljómsveitin var vissu-
lega nokkuð sterk, en hún átti að
vera það og fór aldrei yfir strikið.
Í svona óperum á bæði söngur og
hljóðfæraleikur að vera í botni, ef
svo má segja.
Kór Íslensku óperunnar stóð sig
vel undir stjórn Magnúsar Ragnars-
sonar og búningar kórsins, sem og
allra annarra, á ábyrgð Maríu Th.
Ólafsdóttur, voru augnayndi. Lýs-
ing Þórðar Orra Péturssonar skap-
aði seiðandi andrúmsloft aftur og
aftur, og sviðsmyndin í höndunum
á Michiel Dijkema var gluggi inn í
annan heim. Leikstjórn hans var
líka lifandi og kröftug, snörp og
samsvaraði sér vel, með hæfilegum
skammti af húmor í svo sorglegu
umfjöllunarefni. Enda ætlaði allt
um koll að keyra í uppklappinu.
Ljóst er að Madama Butterf ly er
einhver besta uppfærsla Íslensku
óperunnar frá upphafi. n
niðursTaða: Einfaldlega frábær
sýning.
Madama Butterfly er full af töfrum
Tenórinn Egill Árni Pálsson og kóreski sópraninn Hye-Youn Lee fara með
hlutverk Pinkterton og Cio-Cio-San í Madama Butterfly. Mynd/Anton BRink
23 menning FRÉTTABLAÐIÐ 7. MARs 2023
ÞRiÐJUDAgUR