Fréttablaðið - 07.03.2023, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 07.03.2023, Blaðsíða 10
Þá opnast þetta heljar- innar op. Jóhann Kristjánsson, landeigandi Eru möstur vindmyll- anna ósköp smávægi- leg í samanburði og ólíkleg til að hafa mikil áhrif á upplifun ferða- manna. Úr greinargerð Háblæs Tvær vindmyllur sem reisa á í stað tveggja sem felldar voru í fyrra við Þykkvabæ gætu þurft að fara í umhverfismat, segir Rangárþing ytra. gar@frettabladid.is orkumál Fyrirtækið Háblær ehf. hyggst reisa tvær vindmyllur nærri Þykkvabæ á grunni vindmylla sem kviknaði í og voru síðan teknar niður í fyrra. „Ný ju vindmyllurnar verða minni en fyrri vindmyllur en um 50 prósent aflmeiri sökum tæknifram- fara,“ segir í greinargerð Háblæs til sveitarfélagsins Rangárþings ytra. Verða nýju vindmyllurnar 900 kílóvött á móti 600 kílóvöttum sem gömlu myllurnar voru. Vindmyllurnar tvær norðan við þéttbýlið í Þykkvabæ voru reistar á árinu 2014. Voru vindmyllurnar í rekstri þangað til að það kviknaði í þeim báðum, fyrri vindmyllan brann sumarið 2017 en sú seinni í ársbyrjun 2022 eftir að hafa hætt rekstri vegna bilunar í október 2019,“ er rakið í greinargerð Háblæs. Áformað er að setja upp nýjar vindmyllur sem ná í 46,6 metra hæð í stað 53 metra sem fyrri myllur voru. „Í hæstu stöðu munu spaðarn- ir ná 67,6 metra hæð,“ segir Háblær. Áður hafi spaðarnir náð 74 metra hæð – sem er jafnhátt Hallgríms- kirkjuturni. „Til að forðast misskilning er athygli vakin á því að þessar myllur eru mun lægri og með mun minni spaða en þær vindmyllur sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum í tengsl- um við hugmyndir um vindorkuver víðs vegar á Íslandi. Í hæstu stöðu er hæðin einungis um þriðjungur af hæð þeirra vindmylla sem fjölmiðlar hafa fjallað um,“ segir Háblær. Háblær segir umhverfisáhrif – þar með talin sjónræn áhrif – ekki umtalsverð og hljóðvist „innan allra leyfilegra marka við íbúðarhús og önnur hús á svæðinu, jafnt nótt sem dag“, eins og segir í greinargerðinni. Bendir félagið á að mastur fyrir- hugaðrar brúar yfir Ölfusá við Sel- foss verði umtalsvert hærra, eða 60 metrar. „Þegar horft er til þess að langflest- ir ferðamenn sem koma til Þykkva- bæjar verði búnir að keyra bókstaf- lega undir mun hærra og þykkara mastur, þá eru möstur vindmyllanna ósköp smávægileg í samanburði og ólíkleg til að hafa mikil áhrif á upp- lifun ferðamanna,“ segir Háblær. Þrátt fyrir þetta álit Háblæs telur skipulags- og umhverfisnefnd Rang- árþings ytra framkvæmdina gætu verið háða umhverfismati. „Skipu- lagsnefnd metur það einnig svo að áformin séu ekki að fullu í sam- ræmi við stefnumótun um nýtingu á vindorku í Rangárþingi ytra,“ segir nefndin og nefnir þar sem dæmi viðmið um fjarlægð vindrafstöðva frá byggð og frístundasvæðum. n Vindmyllur í stað myllanna sem voru felldar jafnvel háðar umhverfismati Í greinargerð Háblæs er þessi tölvugerða mynd sem sýnir mismuninn á hæð nýju og gömlu vindmyll- anna til hægri. Mynd/Háblær Vindmyllur við Þykkvabæ Fyrri vindmyllur voru í eigu Biokraft sem fór í þrot árið 2019. Háblær ehf. eignaðist eignir þrotabús Biokraft eftir að Eignabjarg ehf., félag í eigu Arion banka, tók þær yfir. Háblær fékk, með heimild Orkustofnunar frá 8. ágúst 2022, virkjunarleyfi Biokraft framselt. Háblær ehf. var stofnað sérstaklega til að taka niður fyrri tvær vindmyllurnar og reisa tvær nýrri í stað þeirra. Háblær ehf. er í eigu Eigna- bjargs og Qair Iceland, dóttur- fyrirtækis franska orkufyrir- tækisins Qair. thorgrimur@frettabladid.is Tyrkland Stjórnarandstöðuflokk- arnir í Tyrklandi stóðu í gær í samn- ingaviðræðum til að bjarga fyrir- huguðu kosningabandalagi sínu í forsetakosningum landsins í sumar. Flokkarnir höfðu hug á að bjóða fram sameiginlegan frambjóðanda gegn forsetanum Recep Tayyip Erdoğan, sem hyggur á endurkjör. Skoðanakannanir benda til þess að Erdoğan, sem hefur verið við völd í Tyrklandi frá árinu 2003, sé valtari í sessi nú en hann hefur verið í mörg ár. Óánægja með verðbólgu og við- brögð stjórnarinnar við jarðskjálft- unum í suðurhluta landsins hafa þar haft sitt að segja. Engu að síður er búist við spenn- andi kosningum. n Reynt að halda samstöðu gegn Erdoğan Meral Akşener, hér til vinstri, gekk á dyr vegna andstöðu sinnar við að Kemal Kılıçdaroğlu, leiðtogi Lýðveldisflokks alþýðunnar, yrði forsetaefni flokkanna. bth@frettabladid.is mývaTnssveiT Eins og fram kemur á forsíðu er hinn nýuppgötvaði hell- ir í Mývatnssveit talinn liggja undir allar núverandi byggingar Jarðbað- anna í átt að Jarðbaðshólum, þar sem gufubað var til forna. Of snemmt er að spá fyrir um hvort almenningur fær notið nýja náttúruundursins. „Það yrði algjör draumur ef hægt væri að tengja heimsóknir baðgesta við hellinn,“ segir Guðmundur Þór Birgisson, framkvæmdastjóri Jarð- baðanna. Hann segir um að ræða mjög merkan fund. Hellisopinu var lokað eftir for- könnun. Engir utanaðkomandi fá að heimsækja hellinn að svo stöddu. Mun að sögn Guðmundar taka tíma að meta ástand hans og gildi. Til marks um þá röð tilviljana sem leiddi til þess að hulunni var svipt af undrinu sem lúrði neðan- jarðar er að verktakar voru farnir að aka möl í nýja grunninn og jarð- vegsvinnu var í raun lokið. Þá var ákveðið að bæta við framkvæmd- irnar, lengja húsið til norðurs sem nemur tveimur til þremur metrum, grafið niður um einn metra og allt í einu opnaðist nýr heimur. „Þá opnast þetta heljarinnar op,“ segir Jóhann Kristjánsson. Star fsmenn verktaka f ram- kvæmdanna segja að fundur þessa hellis sé kraftaverk, samsafn ótrú- legra tilviljana. n Nýr heimur opnaðist vegna tilviljana Fyrsta myndin sem birtist opinberlega af hellisopinu. Menn ráku upp stór augu þegar hulin veröld kom í ljós. Mynd/aðsend benediktarnar@frettabladid.is Íran Ayatollah Ali Khamenei, leið- togi Íran, segir að þeir sem eitrað hafi fyrir skólastúlkum í landinu eigi skilið dauðarefsingu og að eitranirnar séu ófyrirgefanlegur glæpur. Árásirnar hafa átt sér stað í fimm- tíu skólum og hafa meira en 400 skólastúlkur í 21 héraði víðs vegar um landið veikst. Lítið er vitað um eitranirnar og af hverju þær beinast að ungum konum, en ráðamenn í landinu telja að öfgatrúarhópar beri ábyrgð á þeim. Á meðan telja aðrir að eitranirnar séu hefnd fyrir mótmælaölduna sem reið yfir landið í fyrra í kjölfarið á morðinu á Jinu Möshu Amini. n Vill dauðarefsingu fyrir eitranirnar Yfir 400 stúlkur hafa veikst í Íran vegna eitrana. Fréttablaðið/Getty benediktarnar@frettabladid.is FlóTTaFólk Fjórtán ára stúlka frá Úkraínu fannst látin á strönd í Devon á Englandi á laugardag. Dánarorsök stúlkunnar liggur ekki fyrir og hefur lögregla hafið rannsókn á andlátinu. Fólk sem býr við ströndina hefur verið beðið um að veita lögreglu aðgang að upptökum úr öryggismyndavélum og dyrasímum. Krufning fer fram á fimmtudaginn næstkomandi. Lögreglan á svæðinu hefur stað- fest að stúlkan og móðir hennar séu flóttamenn frá Úkraínu, sem flúðu landið eftir að innrás Rússa í Úkra- ínu hófst. n Flóttabarn fannst látið á Englandi 10 FRéttiR FRÉTTABLAÐIÐ 7. mARs 2023 ÞRiÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.