Fréttablaðið - 07.03.2023, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 07.03.2023, Blaðsíða 26
Á sextíu ára afmælissýningu Listasafns Árnesinga má meðal annars sjá þessa sjálfsmynd eftir Ásgrím Jónsson. Sigurjón Ólafsson gerði þessa brjóstmynd af Bjarnveigu Bjarna- dóttur 1977 en hún gaf Árnesingum fjölda listaverka sem eru þunga- miðjan í sýningunni. Listasafn Ár- nesinga er eitt af þeim lands- byggðarsöfnum sem státa af sér- hannaðri sýn- ingaraðstöðu og fjölbreyttri listaverkaeign. Myndir/AðsendAr Myndlist Hornsteinn 60 ára afmælissýning listasafns Árnesinga sýningarstjórar: Kristín Scheving og Zsóka Leposa 11. febrúar-20. ágúst 2023 Aðalsteinn Ingólfsson Um þessar mundir, og af ýmsu til- efni, hafa nokkur söfn sett upp kynningarsýningar á safneign sinni, og við það býðst almenningi að endurnýja og kannski endur- meta, kynni sín af þeim. Þetta á jafnt við um „stóru söfnin“ í bænum sem ýmis minni söfn í héraði. Nefna mætti sýningu Listasafns Reykjavík- ur á erlendum verkum í eigu þess og afmælissýningu Þjóðminjasafnsins, en einnig yfirstandandi sýningar Listasafnsins á Akureyri og Lista- safns Árnesinga. Gjöf Bjarnveigar Síðastnefnda safnið er eitt af þeim lánsömu landsbyggðarsöfnum sem státa af hvort tveggja sérhannaðri sýningaraðstöðu og fjölbreyttri listaverkaeign. Hvort tveggja er í hærri gæðaf lokki en gengur og gerist utan Reykjavíkur, þökk sé þeim breytingum sem gerðar voru á húsnæði safnsins eftir að Listaskáli Einars Hákonarsonar var aflagður, og verkunum sem Bjarnveig Bjarna- dóttir og synir hennar gáfu Árnes- ingum. Og þó segja megi að byggingin henti betur heildstæðum sýningum á verkum stakra listamanna heldur en brotakenndu yfirliti, eins og þeirri samsýningu sem nú stendur yfir, þá hefur upphengingin tekist mæta vel. Til dæmis hefur veggjum verið bætt við aðalsal til að nýta rýmið betur, og vídeóverkum sem alla jafna trufla sýningar af þessu tagi, verið komið fyrir afsíðis. Mál- verk og teikningar eru ekki hengd upp eingöngu „eftir auganu“, tvist og bast, heldur er leitast við að para þau saman eftir viðfangsefnum og að mestu í tímaröð þannig að áhorf- andinn skynjar betur ólík vinnu- brögð listamannanna. Þungamiðjan í safneigninni, og um leið yfirstand- andi sýningu, eru verkin sem Bjarn- veig Bjarnadóttir gaf Árnesingum á árunum 1963 til 1986, alls um 75 verk eftir 37 listamenn. Ásgrímur og samtímamenn hans Að sönnu hafa nokkur önnur söfn á landsbyggðinni fengið stórar gjafir, ég nefni til dæmis listaverkagjöfina sem öðlingurinn Arngrímur Ingi- mundarson færði heimabyggð sinni, Siglufirði, og verkin sem Hallsteinn Sveinsson gaf Borgnesingum, en gjöf Bjarnveigar er í sérflokki. Fyrir það fyrsta var hún náfrænka Ásgríms Jónssonar og hafði því ótakmarkaðan aðgang að lista- manninum. Óefað naut hún þeirra tengsla þegar hún hóf að safna lista- verkum bæði frænda síns og ann- arra, eignaðist þá mörg verk með sér- kjörum eða jafnvel án endurgjalds. Ekki þekki ég önnur dæmi úr okkar stuttu myndlistarsögu um að íslensk kona, hvað þá einstæð móðir með takmörkuð fjárráð, skuli hafa safnað að sér listaverkum stóran hluta ævi sinnar. Bjarnveig hefur því þurft að vera nokkuð fylgin sér. Kona safnar myndum Óneitanlega státar Listasafn Árnesinga af betra úrvali verka eftir Ásgrím en nokkurt annað safn utan Reykjavíkur. Einnig skenkti Bjarnveig Ísf irðingum nokkrar myndir úr eigin safni. Engan skal undra þótt hún hafi fyrst og fremst leitast við að eignast verk eftir sam- tímamenn Ásgríms og þá kynslóð listamanna sem komst til þroska á árunum milli stríða, sérstak- lega þá sem tengdust æskuslóðum hennar (og Ásgríms) á Suðurlandi. Hér getur því meðal annars að líta landslags- og mannlífsmyndir eftir Ásgrím sjálfan, Eyjólf Eyfells, Finn Jónsson, Jón Þorleifsson, Jón Engil- berts, Höskuld Björnsson, Kjarval og Jón Stefánsson sem allar bera smekkvísi Bjarnveigar gott vitni, sömuleiðis ágætar mannlífsmyndir eftir Jóhann Briem og Snorra Arin- bjarnar. Nokkur verk eru þarna í sérf lokki, til dæmis sjaldséð mál- verk frá þroskaárum Gunnlaugs Scheving og nokkur frábær verk frá fígúratífu tímabili Þorvalds Skúla- sonar í upphafi síðara stríðs. Ekki fyrir abstraktið Þótt Bjarnveig hafi í tímans rás eignast nokkur lítil pappírsverk eftir abstraktmálara, til dæmis Hörð Ágústsson og Kjartan Guð- jónsson, hafði hún sýnilega tak- markaðan áhuga á abstraktlist. Til dæmis eignaðist hún aldrei abstraktmyndir eftir einn af uppá- haldsmálurum sínum af „yngri kynslóð“, Þorvald Skúlason, og verk eftir Svavar Guðnason komu aldrei inn fyrir hennar dyr. Þau fáu abstraktmálverk sem finna má á afmælissýningunni í Hveragerði eru því mestmegnis verk sem safnið keypti eða fékk að gjöf eftir daga Bjarnveigar. Það væri mikilsvert framlag bæði til sögu Listasafns Árnesinga og helstu velgjörðarmanna íslenskrar mynd- listar, ef allar þær myndir sem fóru um hendur þessarar kjarnakonu væru settar á bók, ásamt úttekt á viðhorfum hennar til lífs og lista. n niðurstaða: Samsýning sem státar af nokkrum gullmolum. Ekki þekki ég önnur dæmi úr okkar stuttu myndlistarsögu um að íslensk kona, hvað þá einstæð móðir með takmörkuð fjárráð, skuli hafa safnað að sér listaverkum. Kristín Ásta útskrifaðist úr Ljós- myndaskólanum í byrjun þessa árs. Mynd/sóley ÞorvAldsdóttir tsh@frettabladid.is Ljósmyndarinn Kristín Ásta Krist- insdóttir opnaði sína fyrstu einka- sýningu, Flóttabörnin okkar, í Gall- erí Epal um síðustu helgi. Sýningin samanstendur af ljósmyndum af börnum sem vekja fólk til umhugs- unar um málefni f lóttabarna. Myndirnar eru úr fókus en litaval þeirra endurspeglar þjóðfána barna sem hafa hrakist frá heimalandi sínu og sótt um vernd á Íslandi. „Þetta er sama barnið á öllum myndunum. Pælingin er sú, og þess vegna eru þær líka úr fókus, að það skiptir í raun ekki máli hvaða barn þetta er því það á ekki að skipta máli,“ segir Kristín Ásta. Kristín Ásta útskrifaðist úr Ljós- myndaskólanum í byrjun þessa árs og fjallaði útskriftarverkefni hennar einnig um samfélagsleg málefni. Þar notaði hún hina fornu aðferð camera obscura til að mynda ólík rými þar sem fólk dvelur tíma- bundið af ólíkri nauðsyn; fanga- klefa, íbúð flóttakonu og herbergi á Heilsustofnun í Hveragerði. „Við það verkefni þá kynntist ég úkraínskri flóttakonu sem er hérna með tvö börn og fékk að mynda heima hjá henni. Við erum góðar vinkonur í dag og þá fór ég að átta mig á því hvað við sem samfélag getum lagt af mörkum. Við getum rifist pólitískt fram og til baka um einhverjar tölur á blaði en við sem samfélag og manneskjur getum gert slatta,“ segir hún. Kristín Ásta hjálpaði úkraínskri vinkonu sinni við ýmsar athafnir eins og að fara í bankann og leita að íbúð og kveðst þá hafa áttað sig á því hvað það er erfitt fyrir manneskju sem hefur ekkert tengslanet hér á landi og talar ekki tungumálið að komast inn í íslenskt samfélag. „Þá fór ég að átta mig betur á því hvað þetta er í rauninni rosalegt ástand. Þá fer ég bara að rannsaka þetta og skoða þær tölur sem liggja að baki og hvernig fyrir fólkinu er komið. Svo núna er þetta útlend- ingafrumvarp þannig að ég svona ákvað að vekja máls á þessari umræðu. Fólk skiptist í fylkingar en við verðum líka að muna að þetta eru bara börn,“ segir Kristín Ásta. Sýningin Flóttabörnin okkar er opin í Gallerí Epal til 21. mars. Allur ágóði af sölu verkanna rennur til samtakanna Réttur barna á flótta. n Verðum að muna að þetta eru bara börn Litavalið endurspeglar þjóðfána flóttabarna sem hafa hrakist frá heimalandi sínu. Mynd/Kristín ÁstA 22 menning FRÉTTABLAÐIÐ 7. mARs 2023 ÞRiÐJUDAgUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.