Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Side 7
Eiríkur Sveinsson
Sett í fjóra laxa
Sumarið var 1981. Stundum var kalt,
stundum var heitt og stundum mitt á milli.
í ágústmánuði ákvað ég að bera ekki aðra
beitu en flugu að ám þeim, sem ég fiska í.
Fram að þeim tíma hafði ég náð í þrjá
laxa, úr Selá og Hofsá í Vopnafírði snemma
í júlí, en á þeim slóðum hóf ég veiðigöngu
mína í ágúst 1957, og þá meina ég glímuna
við fiskinn silfurbúna, sem oftlega hefur
sig úr sæng sinni votu og kannar umhverfið
í tígulegum boga, svo þeim, er á bakkanum
stendur, hitnar, hverjar sem gráður lofts-
ins mælast.
7. og 8. ágúst gekk ég um bakka Laxár
ytri í Engihlíðar- og Vindhælishreppi í
Húnavatnssýslu. Tvær stengur eru leyfðar
í ánni. Ain er vatnslítil og tær.
Þar heitir efsti veiðistaður neðan stiga
Hjónahylur, en að honum rennur áin
þröngt og djúpt milli þverhnýpis og hleins,
sem hefur sig hátt yfír veiðistaðinn. Nokkru
ofar var þá unnið við lagfæringu á laxa-
stiga.
Fyrri daginn lullaði ég upp með ánni
og kastaði í þá veiðistaði, sem vænlegir
voru, án árangurs.
Klukkan var 18, alskýjað, logn og hiti
12°. Brölti ég upp á hleinina ofan hyls-
ins, en hún er óslétt að ofan, og stendur
maður eins og haltur. Ég skyggndi mikinn
Eiríkur
Sveinsson
lax í hylnum. Sælustraumur fór um kropp-
inn, og ég hnýtti á fyrstu fluguna.
í fyrsta kasti reis lax á fluguna, en náði
henni ekki. Talsverður straumur er þarna
frá norðurlandinu til suðurs fram að
brotinu neðst í hylnum. Eftir stundarkorn
skipti ég um flugu, svo aftur og aftur.
Óreglulega risu laxarnir eða laxinn á flug-
urnar, það vel, að héldu mér heitum.
Loksins sótti ég trompið mitt, Rækju
nr. 6, tvíkrækta. Hafði hún gefíð mér
vænan lax í Selá 10. september árið á
undan á Fossbreiðunni.
Flugan var varla lent, þegar einn vinur-
inn, stór og glampandi, hrifsaði hana. Allir
þekkja tilfínninguna.
Hófust nú stimpingar, sem laxinn
leiddi, enda notaði hann sér betri stöðu í
hinum djúpa Hjónahyl og nálgaðist hlein-
VEIÐIMAÐURINN
5