Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Qupperneq 33
félaga mínum gripinn, og um leið og hann
lagði fluguna hjá öllum stóru flugunum
með bresku nöfnin, Doctorum, Wilkinson
o.s.frv., þá segir hann: „Nei, líttu á,
svartur sauður („look at that black sheep“).
Síðan þetta kvöld hefur Black sheep
verið mitt uppáhald, veitt mikið og gefið
mér margar ánægjustundir.
Ég má til að segja ykkur frá Hubert
vini mínum. Hann er jarðfræðingur að
mennt og mikill sportveiðimaður, bæði
með byssu og stöng. Hubert er einn af
þessum sérstöku sportveiðimönnum af lífi
og sál, sem leggja meira til málanna en
aðrir, og ber þar hæst bókina „Salmon,
Salmon, with a chapter on Iceland,“ sem
hann skrifaði.
Bók þessi fjallar um laxveiðar á flugu
frá upphafi vega í heiminum og lýsir einkar
skemmtilega laxveiðum á Islandi, semeiga
hug Huberts allan. I bók sinni segir
Hubert frá því, þegar flugan Black sheep
varð til kvöldið forðum við Norðurá.
Með Black sheep er líkt eftir ál-svifi
(Leptocephalus), sem laxinn étur í sjónum
í uppvextinum í Saragossahafmu. Þar
kemur skýringin á því, hvers vegna Salmo
salar tekur flugu.
Hubert skýrir það þannig: Seiðin synda
á móti Golfstraumnum, þegar þau fara úr
ánum og niður í Saragossahaf. Sjórinn á
þessu svæði hefur ákveðið hitastig, og þá
er frumsvif álsins glært í yfirborðinu.
Laxinn sér þetta dýr, þegar litróf himin-
hvolfsins glitrar í gegnum svifið. Þetta
er skýringin á því, að allavega liti þarf í
fluguna, til að laxinn taki. Sem sagt, við
ertum sofandi fæðuhneigð laxins í ánni
með mismunandi flugum í mismunandi
heitu vatni og ljósrofí, eins og hann ólst
upp við í sjónum.
Black sheep er rétta svarið, hún hæfir
Haraldur með 20 punda lax úr Neðri-Rauðabergshyl í Kjarrá - tekinn á Black sheep nr. 6.
VEIÐIMAÐURINN
31