Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Síða 34

Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Síða 34
undir öllum kringumstæðum. Aðeins er nauðsynlegt að láta hana synda eftir hita- stigi vatnsins. Hér er uppskriftin að Black sheep: Ongull: T víkrœkja Stcerð: Oftast 4-6-8 Broddur: Sex vafningar af ávölum silfurþrceði Búkur: Svart silkiflos Vcengir: Gult og svart „bucktail"-hár Oxl: ,Jungle cock“-fjöður, auga Skegg: V atnsblátt Haus: Rauður Black sheep varð til eftir margar til- raunir, grundvallaðar á kenningunni um að vekja upp tilhneigingu laxins til að taka ætið Leptocephalus, og það hefur tekist. Mín reynsla af henni er sú, að ef ekki veið- ist á BJack sheep, þá er lítið að hafa. Það er óskaplega gaman, að við skulum hafa eignast enn eina afburða alíslenska veiðiflugu, stangveiðimenn á Islandi, flugu, sem er orðin aðalagnið í Noregi og vel þekkt meðal veiðimanna víða. Fyrir nokkrum árum vorum við Hubert staddir við Kjarrá í Borgarfírði. Veiðin gekk vel hjá okkur, en ekki hinum veiði- mönnunum, og eins og gengur var farið að athuga, hvað væri að. Kom þá í ljós, að aðeins ég og Hubert höfðum Black sheep. Auðvitað varð eitthvað að gera í mál- inu, og varð það úr, að ég hnýtti Black sheep handa mannskapnum. Og það var eins og við manninn mælt, allir fóru að veiða um leið og þeir fengu Black sheep. Þetta var dásamlegt, að geta gefið öllum fé- lögunum Black sheep og sjá öll brosin og kætina yfír fallegum fiskum. Seinna sá ég blaðaúrklippur frá Noregi, þar sem allt að 46 punda laxar voru veiddir á Black sheep flugur, sem hnýttar voru við Kjarrá. Já, Black sheep er svo sannarlega uppáhald, því hún fiskar vel og hefur veitt svo mikla gleði vinum og félögum. Frú Coe með 46 punda lax, sem hún veiddi á Black sheep nr. 4 íAlta íNoregi. Fluguna hnýtti Haraldur við Kjarrá árið áður. 32 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.