Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Síða 23

Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Síða 23
Hann var 7 pund og 72 sm (íjósm. RHi. staka gildi, sem er ólýsanlegt og kallar okkur aftur og aftur að hinum kristaltæru perluböndum, sem liðast um hina ægi- fögru náttúru landsins. Þarna tepgdu blýgráir skýjagarðar, bryddaðir rauðgulum sólstöfum, iðjagrænt kjarrið að sunnanverðu og fannhvíta tinda Skarðsheiðar að norðan. Eg hrökk við, þegar drengurinn sagði: „Er þetta ekki silungur?“ Þvílík móðgun, stöngin þanin til hins ítrasta og ég með mestu pressu á hjólinu, en samt var ekkert lát á fiskinum. Svona þumbaðist hann í um það bil 15 mínútur, en þá var hann farinn að nálgast land og sonurinn byrjaður að gera sig líklegan til að sporðtaka hann, með því að vaða út í ána fyrir neðan fiskinn. Þá kom þessi ónotalega fullyrðing, því við vorum á laxveiðum: „Jú, jú, þetta er sko silungur eins og mig grunaði.“ Síðan sporðtók hann fiskinn, og mér til mikillar undrunar kom upp úr vatninu þessi líka fallegi silungur. Við stóðum þarna stjarfir dágóða stund og dáðumst að litasamsetningunni: „Gul- ur, rauður, grænn og blár . . .“ Hvaða fisktegund var þetta? Það þurfti að kalla til fiskifræðing, til að fá úr því skorið, og hann fullyrti, að þetta væri leginn sjóbirtingur! Hann var 7 pund og 72 sm. Við erum nú komnir á Efristað þarna í Selósnum, um það bil hálfri klukkustund síðar. Sólin er að hníga í vestri og skýjagarð- arnir hafa leyst upp í smáhnoðra, sem nú eru baðaðir purpurarauðum geislum. VEIÐIMAÐURINN 21

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.