Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Page 24

Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Page 24
Það var hlýtt og það var logn og það var angan af votri björkinni og það var þögn og hér var gott að vera. Aðal legustaður laxins er við stóra steina þar sem ósinn þrengist, því þar er örlítill straumur í þessum annars lygna árspotta. Sonurinn var lagstur á hnén, því þetta er mjög viðkvæmur veiðistaður, og ég þarf ekki að spyrja um fluguna, það hlýtur að vera „Black sheep“ og hans uppáhalds- lína nr. 8, með hægsökkvandi enda. Við reyndum einar 10 flugur hvor, án þess að verða varir við minnstu hreyfingu og þreytan var farin að segja til sín, enda ekki þægilegt til lengdar að kasta á hnján- um. Við lögðum á ráðin, - ég með minn kaffíbrúsa og samloku, hann með sitt „Prince Polo og Coca cola“, og við horfð- um íbyggnir á svipinn út á ládauðan vatns- ílötinn. „Skyldi vera hér nokkur lax?“ Klukkan var að verða níu, tíminn var að renna frá okkur - það var tekin skyndi- ákvörðun, ég skipti yfír í flotlínu og hnýtti á „Katy“. Það er einskonar þurrfluga, sem Stefán Halldórsson, sá hagléiksmaður, hafði hannað þá um sumarið, daginn áður en hann fór í Elliðaárnar, með því áheiti, að ef hann fengi lax á hana, myndi hann skíra hana í höfuðið á konu sinni, sem átti afmæli þann dag. Stefán færði konu sinni 5 laxa í afmælis- gjöf á miðjum degi þ. 11. ágúst 1983, alla fengna á „Katy“. Hún er með ljósbrúnum búk og ávölu silfurvafí, gráum vængjum (Mallard), sem eru næstum lóðréttir við búkinn, rauðgulu skeggi, sem nær þó nokkuð fram fyrir bug og með stórum rauðum haus. Eg úðaði hana vel með ,,silicone“ og einnig flugutauminn. Það var kastað um það bil 45° and- streymis og dregið hægt, næstum ekkert, hún var látin berast mjúklega með þessu 22 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.