Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Blaðsíða 36

Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Blaðsíða 36
þættirnir, sem eru svo margir, breytast svo snöggt og fyrirvaralaust. Með talningu er hægt að fá fjölda göngufiska, og þegar frá eru dregnir veiddir fiskar, er fjöldi klaklaxa fundinn. Þetta er það eina, sem hægt er að miða við. Sumstaðar er hægt að vita, hversu klak- laxinn er dreifður, en hvort klakið heppn- ast og hvernig því muni svo reiða af, er of seint vitað til að gera megi viðeigandi ráð- stafanir. Slepping laxaseiða er því, og verður alltaf, óvissa í endurheimtum. Laxaseiði, sem sleppt er í árnar, skila sér venjulega í öfugu hlutfalli við þann fjölda, sem sleppt er (hér er ratvísi seið- anna látin liggja milli hluta). Þetta stafar auðvitað af því, að hæfari stofn er fyrir í ánni og hún getur aðeins fætt ákveðinn fjölda einstaklinga. Sé sleppt allt of mörgum seiðum, er eins víst, að ekkert skili sér aftur eða lifi vistina af, og það sem verra er, það getur veikt stofninn, sem fyrir er, svo að hann bíði mikið, jafnvel óbætanlegt tjón. Lögmálið er, að því fleiri einstaklingar, sem eru um fæðu árinnar, þeim mun fleiri einstakling- ar verða óhæfari að standast óblítt náttúru- lögmálið, hita-, kulda- og vatnsbreytingar, og verða vargi að bráð. Slepping laxaseiða á heiðar, fyrir ofan ógenga fossa, í hliðarlæki og mýrartjarnir, skilar engum árangri til lengdar (undan- tekningar eru þó til). Fyrir er í allflestum tilfellum lífstofn, sem er mun sterkari seið- unum sem sleppt er. Þau keppa um sömu fæðuna við seiðin, sem fyrir eru, og fara fyrst í stað halloka, og stór hluti verður urriða, bleikju, fugli eða minki að bráð, sérstaklega fyrst eftir sleppingu. Seiði, sem sleppt er í framandi vatn, verja sig ekki fyrst í stað eftir sleppingu, þau eru miskunnarlaust hrakin frá einum stað í annan og eru lengi vel í felum. Mýrartjarnir eru mjög misjafnar, jafnvel sömu tjarnirnar frá ári til árs, sem stafar af mismunandi gegnumstreymi vatnsins, eða öllu heldur súrefnismagninu. í þurrk- um verða þessar tjarnir staðnar og fúlar, og seiðin sljó og auðveld bráð. Slepping gönguseiða í ár og vatnasvæði skilar alminnstum, og jafnvel engum, árangri, vegna þess að yfirleitt eru seiðin ekki alin upp í því vatni, sem þau eiga að ganga aftur í. Þeim mun yngri sem seiðin eru, þegar þeim er sleppt í framandi vatni, þeim mun meiri líkur eru á ratvísi þeirra, og er rétt að taka tillit til þessa, þegar laxinn þarf að ganga í gegnum margar ár. Endurkoman er öruggust, ef seiðin klekjast út í vatninu, sem þau eiga að ganga aftur í, eyða þar kviðpokanum og æskuævi. Seiði, sem klekjast út í náttúrunni, verða strax næm fyrir keim vatnsins, og eykst næmið alla tíð þar til þau yfirgefa ána, og lengur að mínu mati. Ratvísi laxins Hér vil ég staldra við og skýra sjónarmið mitt nánar, sem ég dreg af mínum eigin athugunum á hegðun seiðanna í náttúru- legu umhverfi og á hegðun laxins, þegar hann gengur í árnar. Eg tel, að ratvísi laxins stafi af því, að hann myndi efnislög af keim vatnsins sem hann lifir í, í mjög blóðríkum taugavefjum, sem liggja umhverfis og útfrá nefgöng- unum. Nefgöngin, sem liggja bak við augun, að heila, stækka með fiskinum. I fullorðnum laxi verða þau nokkrir mm á breidd og nokkrir sm á lengd. Taugavef- irnir umhverfis nefgöngin geta því geymt billjónir efnisöreinda. Nefgöngin stækka framávið, ef svo mætti að orði komast, þannig að vefurinn, sem seiðið mettaði fyrst efniseindum, verður vefurinn innst í nefgöngunum, 34 VEIÐIMAÐURINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.