Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Side 41

Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Side 41
Allar tjarnirnar eru eins byggðar, nema tvær þær seinustu, sem eru heldur dýpri, 100-200 sm. Seinasta tjörnin þarf að vera heldur lengri en hinar. Eins og áður segir er aðrennsli í hverja tjörn með 12“ plast- röri. Á úttaki hvers rörs er stilliloki, til þess að tempra rennsli eftir þörfum, hita- stigi og súrefnismagni. Á þessu má sjá, að vatnsmagn og rennsli getur orðið 5 sinnum meira í neðstu tjörninni en í efsta kerinu. Hæðarmunur milli tjarna er æskilegur, sé hægt að koma honum við, sérstaklega við tvær neðstu tjarnirnar. Tjarnirnar þurfa ekki að liggja beint niður af hverri annarri, heldur þannig, að þær myndi saman sveig að móðuránni, og fer það eftir staðarað- stæðum. Það er nauðsynlegt að nota aðfenginn hitagjafa til að tryggja rétt hitastig á fyrsta stigi eldis, þ.e. klaki og seiðum allt að 3 sm á lengd. Hugmyndin er að ná sem flestum einstaklingum upp í þessa stærð, öfugt við það, sem skeður í náttúrunni, þar sem fyrst er ráðist á fjöldann og síðan hæfnina. I tveim efstu tjörnunum eru seiðin hert eða þjálfuð jafnframt því sem þau eru fóðruð. Heita vatnið, sem rennur frá ker- inu í fyrstu tjörnina, er temprað með rennsli úr áðurnefndu 12“ röri. Rennslis- magnið fer eftir hitastigi árinnar og súr- efnismettun vatnsins. Nákvæmni á hita og rennsli á þessu stigi er nauðsynleg fyrst í stað, en auka ber rennslismagn, þegar á líður. Leyfi hitastig árinnar aukið rennsli, er sjálfsagt að auka það eins og kostur er, en minnka aftur í fóðrun og við lækkandi hita. Þegar seiðin hafa náð 5-6 sm, eru þau flutt í tjörn II. Þessi tjörn fær vatnsrennsl- ið úr tjörn I, og að auki möguleika með 12“ plaströri. Vatnið úr tjörn I er gert súrefnis- ríkt með neti eða grind í eins hárri bunu og hægt er að koma við. I tjörn II er fyrst og fremst lögð áhersla á líkamlegan styrk seiðanna, jafnframt fóðrun, með auknu rennsli og að jafnaði kaldara vatni, því að ekki er hugsað um aukinn hita umfram það sem áður er sagt. I þessari tjörn fer fram hin fyrsta hæfnisgrisjun. Vatnið rennur nú í þriðju tjörnina, og er gert súrefnisríkt, og enn bætist við 12“ rör, sem gerir mögulegt að fjórfalda straum og vatnsmagn. Hér er enn lögð áhersla á líkamlegan styrk. Þegar meiri eða mesti hluti seiðanna hefur náð göngustærð, eru þau flokkuð til sleppinga eða í eldi, þau merkt og rann- sökuð að vild. Þau seiði, sem talin eru hæfust sem gönguseiði (sleppiseiði), eru sett í neðstu tjörnina. I þessari tjörn er ennþá meiri áhersla lögð á vatnsrennsli. Fóðrun er minnkuð smám saman, og seið- unum gefinn kostur á að yfirgefa tjörnina að vild, en að lokum er tjörnin tæmd. Þau seiði, sem voru eftir í tjörn III, eru fóðruð lítið eitt áfram, ef þörf þykir, síðan eru þau seld eða flutt í sjávareldi. I stað hitaspírals í keri er hægt að koma fyrir hitaspíral inni í fyrsta inntaksröri. Ef hægt er að nota lifandi fóður, er það til mikilla bóta í sambandi við eldi á göngu- flski, sé það notað með dauðu fóðri á seinna stigi eldisins. Fóðrun skal alltaf fram- kvæmd úr fjarlægð, svo að seiðin hænist ekki að manninum. í þessu eldi þarf aldrei að óttast flóð, því að rennslið takmarkast af flutningsgetu röranna, sem má aftur takmarka með lokum. Vatnið gelur gruggast og snögg- kólnað, og það er æskilegt, þar sem verið er að ala upp fisk, sem á að koma einmitt í þetta vatn aftur. Yfirborðsvatn á ekki að geta komið í tjarnirnar, sé rétt frá svæðinu gengið. Hins vegar gæti runnið vatn í tjarnirnar neðan frá, séu stokkar þeirra lægri en árfarvegur- VEIÐIMAÐURINN 39

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.