Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Síða 44

Veiðimaðurinn - 01.08.1984, Síða 44
Harry Harryson (17 ára) Fyrsti laxinn „Rosalegur kuldi er þetta“ var það fyrsta sem heyrðist, þegar vekjaraklukkan hringdi klukkan 7.30 að morgni þann 12. ágúst 1983. Við vorum staddir í Laxholti, veiðihús- inu á svæði 1-2 við Stóru-Laxá. Það var heldur kuldalegt um að litast þennan morgun. Við vorum á báðum átt- um, hvort við ættum að halda áfram að sofa í hlýjum svefnpokunum, eða dröslast fram úr og fara upp með á og vita, hvort laxinn væri við. Við völdum síðari kostinn, en heldur vonlitlir um veiði þennan eina dag, sem við höfðum í ánni. Við vorum þrír veiðifélagarnir, bræð- urnir Þröstur og Júlíus Elliðasynir og ég, sem keyrðum af stað í ausandi rigningu upp með á. Við höfðum ákveðið kvöldið áður að byrja við Bergsnösina og færa okkur síðan ofar. Þegar að Bergsnösinni var komið, var byrjað að stytta svolítið upp, og kuldinn að mestu leyti farinn úr okkur eftir að við höfðum setið dálitla stund í hlýjum bílnum. Þeir sem hafa veitt þarna vita, að það þarf löng köst til að koma færinu að bakk- anum hinum megin. Eg sá, að ég gæti engan veginn kastað svona langt með mínu hjóli. En Þröstur var með mjög gott vara- kasthjól, sem ég fékk lánað. Það eina, sem var að hjólinu, var að þreytarinn var fastur. Harry Harryson Þegar við höfðum gert veiðigræjurnar klárar, setti ég á svartan Toby og byrjaði að kasta neðarlega við Bergsnösina. I fyrsta kasti elti smálax spóninn alveg upp að landi, án þess að taka hann. Eg fylltist allur nýju lífi, er ég sá laxinn elta, svo það var með miklum spenningi sem ég kastaði aftur. Þetta var gott kast, alveg upp að berginu hinum megin. Eftir nokkra vafn- inga inn á hjólið var allt fast. Hvernig sem ég reyndi að losa festuna, tókst það ekki, svo það var ekki annað að gera en að slíta. Eftir að ég hafði gengið afturábak nokkur skref með stöngina hálf- bogna, fór eitthvað að gefa eftir. Mér brá heldur betur í brún, er ég fann, að allt í einu var farið að kippa sterklega á móti. Ég var ekki lengi að átta mig á því, hvað 42 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.