Veiðimaðurinn - 01.04.2009, Blaðsíða 9

Veiðimaðurinn - 01.04.2009, Blaðsíða 9
5 DRAUMAHYLURINN vorum staddir við Bjarghornið og ég setti í lax og sá fleiri þar sem ég stóð en þeir höfðu ekki verið þarna nokkrum mínútum fyrr. Ég landaði laxinum og Brynjar hóf veiðar en ekkert gerðist. Við skyggndum hylinn því aðeins betur og sáum engan lax. Þeir voru á hraðferð upp ána. Það var kominn æsingur í okkur svo Brynjar hljóp upp á Hellu sem er aðeins ofar og ætlaði að reyna þar. Ég varð hins vegar eftir á Bjarghorninu og náði öðrum laxi rétt fyrir klukkan eitt. Þá fór ég uppeftir og var félagmn þa búmn að landa laxi sem hann hafði séð skríða inn í hylinn ásamt fleiri löxum.Við fórum svo upp á bergið sem gnæfir yfir Bjarghornið og kíktum niður. Þá sáum við glænýja, silfraða laxa koma inn í hylinn einn af öðrum. Sumir komu sér fyrir á hvíldarstöðum á meðan aðrir héldu göngunni áfram upp ána. Tíminn okkar var hins vegar útrunninn og það var vissulega nokkuð svekkjandi að horfa á ána iðandi af laxi.Við stóðum samt dágóða stund og horfðum á laxana í hylnum áður en við kvöddum. Síðara skiptið var í lok júní. Ég átti kvöldvakt og morgunvakt daginn eftir. Á kvöldvaktinni gerðist mjög lítið.Við fengum þó tvær eða þrjár vænar bleikjur. Rétt fyrir klukkan tíu um kvöldið var ég að reyna niðri í Rauðhyl sem er neðarlega á svæðinu. Ég kastaði spæni langt út á hylinn, var aðaflega að njóta þess að vera við ána. í einu kastinu eltir þessi líka rosalegi fiskur en snéri við bara svona fjóra til fimrn metra frá mér og var óðara úr augsýn. Morgunin eftir var Jakob bróðir með mér og við fórum yfir allt svæðið og sáum ekki sporð. Þegar klukkan var um ellefu ákváðum víð að slaka aðeins á og settumst á bjargið ofan við Helluna.Við sátum þar og kjöftuðum og gerðurn grín að því að þetta væri svipað eins og í gæsinni.Við myndum bara sitja fyrir löxunum og ná þeim þegar þeir kæmu. Nema hvað, allt í einu sjáum við hvar stór lax kemur siglandi upp Helluna og syndir inn í dýpið.Við veðruðumst náttúrlega upp við þetta og rýndum stíft í hyflnn. Stuttu seinna kemur hann aftur en ekkert gekk að kasta á hann. Þá var farið í að útfæra hernaðaraðgerðir. Við settum gönflu góðu garðfluguna undir og þunga sökku. Köstuðum svo nákvæmlega í siglingaleiðina sem laxinn hafði farið. Það var lítið mál þar sem ekki var neitt að styggja. Svo var beðið. Aftur gerðum við nfikið grín að því að þetta væri eins og í gæsinni. Eftir svona 10 mínútur kemur laxinn aftur, fer sína venjulega leið, nema núna þurfti hann að ráðast á garðfluguna sem var fyrir honum. Hann var á. Þá tók við mikill hasar. Laxinn tók eina roku rúma 100 nretra niður ána, yfir klappir og gijót. Eftir mikið tog fram og til baka náðum við að draga hann að okkur við Bjarghornið en þegar við vorum við það að landa honum fór hann að láta öllum illum látum og sleit loks girnið sem var 40 pund en stórskemmt eftir allan djöfulganginn. Við vorum að vonum svekktir en fórum aftur á Hefluna. Jakob gerir veiðarfærin klár og við sitjum þarna litla stund. Aflt í einu sjáum við stóran skugga skríða inn af brotinu hægt og rólega. Stór lax á ferðinni því það fer enginn smálax þarna upp án erfiðis í þessum þunga straumi. Jakob nær að kasta fyrir hann og laxinn tekur strax. Hann strikar niður hávaðana með gríðarmiklum sporðaköstum, við komum hlaupandi á eftir honunr í stórgrýti og klungrum, það syngur í veiðitólunum allan tímann. Eftir mikfl átök er honum svo landað niður við gömlu brúna, um 400 metrum neðar. Þessi lax var grálúsugur og vó 10,5 kg.Við vorum báðir Litið upp svæðið frá gömlu brúnni. Séð yfir Kolbeinspoll, Helluna og Lækjarvikið sem er nær lengst til hægri. dauðuppgefnir eftir glímuna við þessa tvo fiska og sérstaklega þann seinni svo við ókum í bæinn sáttir við okkar hlut þrátt fyrir að ennþá væri nokkuð eftir af veiðitímanum. Allt agn er leyfilegt á þessu svæði í Fnjóská. Er þetta eitt af fáum svæðum þar sem mér finnst gaman að veiða bæði á flugu og maðk. Veiðistaðirnir eru það fjölbreyttir að gott er að vera vel birgur af flugum. Allt frá örsmáum gárutúbum og upp stórar tungstentúbur sem sökkt er niður með sökkenda úr blýi kemur að notum þarna. Það agn sem hefúr reynst mér best þarna er hálftommu rauð Frances- túba með keiluhaus. Bleikjan tekur hana af græðgi og nýgenginn lax virðist alltaf vera ólmur í hana. Ef laxinn flggur uppi á klöppunum þar sem er grynnra er gárutúba kjöragn. Hraðstrippuð Sunray Shadow stendur flka alltaf fyrir sínu. Ef mikið er af bleikju, sem oft gerist í Fnjóská, svínvirkar andstreymisaðferðin. Þá notar maður litla kúluhausa ásamt stórum á dropper til að fa meiri sökkhraða. Pheasant Tail, Peacock, Krókur og svo alls kyns kúluhausar með silfurkúlu og svörtum eða rauðuni búk virka vel í draumahyljunum mínum á neðsta svæði Fnjóskár. 4 '09 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.