Veiðimaðurinn - 01.04.2009, Page 12
Alexander, Kóla og síberíski sleðahundurinn Ike sem finnur lyktina af bjarndýrum margar mílur og varar íbúana við Kharlovka við.
Þessar flugur líkjast Rektornum dálítið en þaer eru fyrir laxa.Taki þeir til sín aðvörunina á
pakkanum sem þurfa. Hvernig væri að hætta að reykja og veiða meira í staðinn.
Minnow-stíl. „Flugur sem veiða í
yfirborðinu virka mjög vel hérna
þegar vatnið minnkar og hlýnar
síðsumars," segir hann.
Margir sem veitt hafa á
Kólaskaga vita að rauðgulur og
rauður litur eru afar sterkir þar
ásamt gullvöfum. Alexander notar
hins vegar talsvert bláa liti sem
við þekkjum vel hér heima. Hann
segir bláar flugur mjög veiðnar í
ánum á öllu laxaverndarsvæðinu;
í ánum Kharlovka, Litza og Rynda.
„Bláar og silfraðar flugur virka
mjög vel hér. Ég blanda þá yfirleitt
lítillega rauðu með," segir hann.
„Grænt er Kka mjög vinsæll litur á
meðal laxa hér og þá er oftast haft
gult með."
Alexander er fyrrverandi fjall-
göngugarpur og hermaður. Hann
minnir óneitanlega á rússneska
björninn með sína stóru hramma
og luralegu hreyfingar. Ótrúlegt að með þessum stóru höndum
geti hann unnið nákvæmnisvinnu eins og að hnýta flugur. En
það gerir hann með glæsibrag, selur ekki eina einustu þeirra en
er óspar að leyfa gestum sínum að prófa það sem þeir vilja úr
fluguboxi hans. Það er óvíða sem manni er sýnd slík gestrisni.
Bjarni Brynjólfsson
12 <»
J