Veiðimaðurinn - 01.04.2009, Síða 14

Veiðimaðurinn - 01.04.2009, Síða 14
Aðalfundur SVFR Aðalfundur Stangaveiðifélags Reykjavíkur var haldinn á Grand Hótel Reykjavík 29. nóvember sl. en reikningsár félagsins er frá 1. nóvember — 31. október ár hvert. t í byrjun fundar min'ntist Guðmundur Stefán Maríasson formaðurfélagsmanna sem létust á árinu en þeirvoru eftirtaldir (númerfélagsmanns á undan nafni): 6 Þórður Þorkelsson 34 Björn Þórhallsson 87 Stefán Guðjohnsen 181 ÞorlákurGuðmundsson 266 RunólfurO. Þorgeirsson 269 JóhannT. Egilsson 310 Kristján Kristjánsson 314 Andrés Bjarnason 437 Pétur Kristjánsson 815 Þórarinn Kjartansson 1037 JónGunnarGrétarsson 1253 DagbjarturGuðmundsson 1584 Jón Ólafsson Guðmundur Stefán Maríasson flutti skýrslu stjórnar um starfssemi félagsins á nýliðnu reikningsári sem var yfirgripsmikil venju samkvæmt. Skýrslu stjórnar er að fmna í heild sinni í ársskýrslu SVFR. Þess skal þó getið hér að formaður ræddi í skýrslu sinni meðal annars um erfitt efnahagsástand í þjóðfélaginu og það að stjórn félagsins ætti í viðræðum við viðsemjendur sína um lækkun á umsömdu verði á veiðisvæðum og frystingu vísitölu. Samningar væru allir verðtryggðir og vísitalan hefði hækkað mikið undanfarið. Þetta ástand skapaði mikla óvissu og söluskrá fýrir 2009 væri ekki tilbúin fýrir aðalfund nú eins og verið hefði undanfarin ár. Þungur rekstur Marinó Marinósson gjaldkeri SVFR fór yfir reikninga félagsins fýrir síðasta starfsár. Rekstrartekjur námu alls 368,3 milljónum króna og rekstrargjöld námu tæpum 378 milljónum króna.Tap fýrir fjármunatekjur og fjármagnsgjöld nam því tæpum 9,7 milljónum króna. Að teknu tilliti til þármunatekna og fjármagnsgjalda var rekstur félagsins jákvæður unr tæplega 26 þúsund krónur á árinu. Hagnaður árið áður nam 12,1 milljón króna. Það urðu því veruleg umskipti til verri vegar í afkomu félagsins á milli ára. Ovissa er auk þess veruleg um afkomuna á því rekstrarári sem nú er hafið og er búist við talsverðu tapi af rekstri félagsins í fýrsta skipti í 15 ár. Ársreikning SVFR má sjá í heild sinni í ársskýrslu SVFR. I umræðum um skýrslu stjórnar og reikninga kvaddi aðeins Bjarni Júlíusson formaður fulltrúaráðs sér hljóðs. Hann þakkaði formanni fyrir greinargott yfirlit og sagði að þótt stjórn SVFR hefði ekki náð fjárhagslegum markmiðum á árinu væri greinilegt að hún hefði náð að spila vel úr þeim spilum sem henni voru gefin. Bjarni sagði að lakari afkomu mætti einkum rekja til tveggja þátta.Vísitöluhækkanir árleigusamninga hafi orðið miklu hærri en spáð hafði verið um og Fiskræktarsjóður hefði ekki styrkt netauppkaup SVFR í Árnessýslu um 3 milljónir króna eins og vonir stóðu til. Bjarni sagði að tvennt vekti helst athygli hans í félagsstarfinu um þessar mundir. Annars vegar væri gott að heyra að netauppkaupamálinu væri 14 4'09

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.