Veiðimaðurinn - 01.04.2009, Qupperneq 30
LANGÁRJARLINN
I
C
Ingvi Hrafn landar laxi fyrir neðan hús sitt við Langá.
Langá er nýr kostur í vaxandi laxveiðiflóru Stangaveiðifélags
Reykjavíkur. Ain hefur verið á stöðugri uppleið undir
natinni umsjón Ingva Hrafns síðustu áratugi og hún gaf rétt
um 3.000 laxa síðasta sumar. I sumar spáir Ingvi Hrafn
mokveiði en hér sviptir hann hulunni af leyndardómum Langár.
„Ég verð að játa að ég hef ekki oft beðið bænir í gegnum tíðina
og eiginlega ekkert síðan amma mín kenndi mér það fýrir meira
en 60 árum. I vetur hef ég hins vegar reglulega spennt greipar
þegar ég hef farið að sofa og þakkað almættinu fyrir að vera laus
úr veiðibransanum," segir Ingvi Hrafn um tilfmninguna yfir að
fyrsta veiðitímabilið er framundan eftir að hann hættir sem
leigutaki Langár.
„Það eru ekki auðveldir tímar framundan og sjálfskaparvíti bæði
bænda, leigusala og leigutaka að hafa lent inn í hringiðu græðginnar
þar sem bankarnir sögðu að verðið skipti ekki máli, þeir yrðu að fá
allar stangirnar á besta tíma. Þetta gerði það að verkum að við
hröktum stóran hluta erlendra veiðimanna í burtu sem höfðu
haldið tryggð við landið jafnvel áratugum saman og borgað mjög
hátt verð.“
Langá varð eitt veiðisvæði þegar Ingvi Hrafn tók við ánni sem
leigutaki fýrir tíu árum. Tuttugu árin þar á undan var hann með
miðsvæðið í Langá sem er í eigu fjölskyldu hans. „Þá var ég með
„fjallið" (efsta svæðið) í nokkur ár þegar það var að þróast," segir
Ingvi Hrafn. „Það öðlaðist ekki þá virðingu sem því bar fýrr en við
fórum að leigja ána út í heilu lagi og farið var að nýta þetta svæði.
Nú er það sannarlega eitt dáðasta svæðið í Langá því þú ekur á tíu
mínútum upp að Koteyri og Campari-streng og ert bara „Pafli var
einn í heiminum". Þú heyrir fuglakvak, sérð einstaka rebba á ferli
eða örn svífa yfir fjallstindum, og síðan eru kindur á beit og
skvampandi fiskur."
3000 laxar sumarið 2008
Ingvi Hrafn segir sig og fjölskyldu sína skilja alsæl við sem leigutakar
Langár. „Við eruni jafnframt afskaplega stolt af þeirri vinnu sem við
höfum leyst af hendi því þegar við skiljum við Langá er hún ein af
verðmætustu og eftirsóttustu laxeiðiám landsins," bætír hann við.
„Við höfum bætt aðgengið, þannig að hægt er að aka að hveijum
veiðistað nema á örfáa staði þar sem þarf að ganga kannski 100
metra.Við höfum hlúð að ánni með bændum þannig að hún er
laxgeng upp í Langavatn og það hafa verið að veiðast yfir 100 laxar
frá ármótunum við Gljúfurá og upp að vatni. Þetta svæði er fýrst og
fremst uppeldisstöð en ástæðan fýrir því að Langá varð ekki gjöfulasta
áin af sjálfbæru ánum í sumar var forátturigningin sem gerði í
september og olli því að það fell mjög stór skriða í afdal inn af
Langavatnsdal og litaði vatnið þannig að áin varð eins ogjökulfljót
fram í nóvember. Ég var alltaf að bíða eftir að ástandið lagaðist því
við ákváðum að framlengja veiðitímann til 25. september. Ain var
ónýt frá 15. september, var alveg óveiðandi. Við misstum því út 10
daga veiði og enduðum í tæpum 3.000 löxum. Það hefúr aldrei
verið eins ntikil veiði í Langá og aldrei gengið eins mikill lax í sögu
árinnar. Ef um venjulegt haustvatn hefði verið að ræða hefði hún
endað í 3.400-3.500 löxum. Hún var gjörsamlega bakkafull af laxi
þegar kom að haustrigningum.“
Móðgaður yfir tökunni
Hvenær veiddir þú fýrst í Langá og manstu eftir fýrsta laxinum
þínum úr ánni?
„Ég man vel eítir fýrsta flugulaxinum mínum en ég tók hann á
þurrflugu sem ég henti fýrir einhveija tilviljun í Efri-Hvítsstaðahyl.
Þetta var afmælisdaginn minn 27. júfl 1974 þegar ég varð 32 ára
gamafl. Fiskurinn var dæmigerður fimm punda Langárlax en það
IFiskurinn var dæmigerður fimm punda Langárlax en það sem ég minnist
helst er hvað ég var móðgaður yfir tökunni því hann kom upp með kjaftinn
og sogaði fluguna niður eins og asnalegur silungur
30
4'09