Veiðimaðurinn - 01.04.2009, Side 32

Veiðimaðurinn - 01.04.2009, Side 32
LANGÁRJ ARLI N N C I Fallegur afli eftir góða vakt í Langá. Hafsteinn sonur Ingva Hrafns ásamt erlendum veiðimanni. Ólafison ogVífill sonur hans eignuðust Litla-Fjall og Grenja, og Hafiteinn, tengdafaðir minn, Stangarholt. Þessir menn voru ótrúlega framsýnir og létu gera Sveðjustigann og fiskvegina þar fyrir ofan. Ain hafði gefið upp í 800 laxa á ári á þijár stangir ffá upphafi aldarinnar og fram undir seinna stríð en laxinn fór bar upp að Sveðju og bunkaðist þar í alla pytti. Áin rann breið í landi Stangarholts, Grenja og Litla-Fjalls á um fimm kílómetra kafla því botninn þar er svo seigur að hún nær ekki að grafa sig niður þrátt fýrir að hún ryðji sig í miklum klakaflóðum á vetrum. Isinn breikkar því bara ána og eyðileggur fyrir laxagöngum á björtum sumarnóttum. Hafsteinn, tengdafaðir minn, fekk þá hugmynd að nota möl og litla traktorsgröfu til að þrengja ána og koma síðan fyrir ggótgörðum neðst til að lyfta vatninu. Þetta gaf strax góða raun og ffá Hreimsásskvörn og upp að Melsenda höfurn við gert veiðistaði sem gefa 25 prósent af sumaraflanum með því að þrengja náttúrulegan farveg árinnar og búa til strauminn og dýpið. Ef ég fengi tvo stóra flutningabíla og 50 tonna gröfu í viku gæti ég búið til 30 náttúrlega útlítandi veiðistaði, sem gæfu kannski 1.000 laxa og þú myndir ekki trúa öðru en að hafi verið þarna í ffá upphafi. Mér finnst þetta rosalega gaman og þykist vera „ár-arkitekt“. Eg get kannski státað mig af því að vera best menntaði „ár-arkitekt“ landsins. Það hafa komið til mín sendinefndir úr fjölmörgum ám og ég hef verið fenginn til að skoða þær. Bara með því að þrengja ár til að ná kjördýpi, koma nokkrum steinum fyrir og laga botninn, verða til legustaðir. Laxinn hugsar eins og öll önnur dýr um hvort afkvæmi hans geti þrifist og ef þau geta það sest hann að á réttum stöðum. Um þessar mundir, 40 árum eftir að Sveðjustiginn var opnaður, er laxinn að ljúka landnáminu upp að Langavatni. Hann nemur bara 2-300 metra á ári.“ Vöruþróun á veiðislóð Gagnrýni á veiðistaðagerð og fiskirækt hefur vaxið mjög á undanfornum árum og raddir þeirra sem vilja að mannshöndin komi þar hvergi nærri verða háværari. Hvernig svarar Ingvi Hrafn þessum gagnrýnisröddum? „Það er öllum frjálst að hafa sínar skoðanir og ég hef átt í ritdeilum við Pálma Gunnarsson, vin minn, sem er mikill hreintrúarmaður í þessum efnum. Hann vill að árnar sjái alveg um sig sjálfar en laxveiðiárnar hafa verið bændum mikilvæg búgrein og sums staðar verið forsenda byggðar í héruðum. Þetta er eina búgreinin þar sem þú mátt ekki kynbæta og mér er bannað að sækja hrogn norður í Aðaldal og fara með þau á Laxeyri og biðja fiskeldismennina þar að ffamleiða stórlaxaseiði. Menn geta verið hreintrúarmenn og sagt: „látum bara ána um sitt“ en ég get lofað því að ef ekkert væri gert til að laga árnar eftir hamfarirnar þegar þær ryðja sig í klakaflóðum væru margir bestu veiðistaðir landsins ónýtir. Tannalækjarbreiða var einn besti veiðistaðurinn í Langá og gafað meðaltali 100-150 laxa. Þetta var ein alfallegasta fluguveiðibreiða sem um getur en fyrir sjö árum ruddi Langá sig með þvílíkum hamförum í mars að ég vaknaði um miðja nótt við dynkina sem voru eins og ffá jarðskjálfta. Isinn tók nieð sér um 1.500 fermetra stykki úr vesturbakkaTannalækjar- breiðu og ég er búinn að vera að endurvinna þetta síðan með Sigurði Má Einarssyni hjá Veiðimálastofhun. Ain ruddi sig mikið í vetur og það er ekki hægt að rneta tjónið núna þegar viðtalið er tekið en við héldum að við værum búnir að laga þetta þannig að laxinn væri aftur farinn að stoppa þarna. Þetta þýddi einfaldlega að við endurgerðum bakkann með gijóti og tyrfðum yfir þannig að raskið sást ekki. Veiðistaðurinn er í landi Jarðlangsstaða og Háhóls og menn geta rétt ínryndað sér tekjutapið ef 30-70 prósent af veiðinni á þeirra svæði færi forgörðum. Menn geta verið púrítanar og sagst ekkert vilja snerta en þá eyðileggjast árnar og þær verða verðlausar og veiðimenn hætta að koma. Þegar leigutekjur af ám eru orðnar 80-90 milljónir á ári á sama tíma og landbúnaðarkvóti er að minnka og bændur að flosna upp gefúr augaleið hvað þetta skiptir miklu máli.“ Ingvi Hrafn hefur þróað sérstaka tækni við seiðasleppingar og ekki eru allir heldur á eitt sáttir við þær. „Við erum búnir að ná þeim árangri að ég læt framleiða fyrir mig sérpöntuð seiði, sem eru 55 grömm eða hátt i helmingi stærri en hefðbundin gönguseiði," segir Langáijarlinn. „Ég vil fa þau fyrir ákveðinn tíma og svo fóðra ég þau og sé um þau. Samningurinn á milli mín og veiðifelagsins kvað á urn að ég sleppti 10.000 seiðum á ári og við höfum veitt þijú prósent þeirra að meðaltali eða um 300 laxa. Ég vildi gera þetta því ég var að selja dýra vöru og þetta hefur kannski lyft Langárveiðinni úr 1.400 löxum í 1.700-1.800 laxa sem er allt annar verðflokkur. Laxinn verður líka stærri, það getur munað heilu pundi. Þetta er bara vöruþróun." Með Hrafninn á öxlinni Nú verður örugglega mikil endurnýjun í hópi veiðimanna sem 32 4 09

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.