Veiðimaðurinn - 01.04.2009, Side 42

Veiðimaðurinn - 01.04.2009, Side 42
I BRÉF FRÁ VEIÐIMÖNNUM c LAXVEIÐI I KREPPUNI - HVAÐ ER TIL RÁÐA? Ari Þórðarson og dr. Jónas Jónasson hafa farið víða til veiða. Þeir velta fyrir sér stangveiðum í kreppunni og veiðileyfamarkaðnum eins og hann blasir við í dag. að er farið að styttast verulega í sumarið og eins og fleiri veltum við félagarnir fyrir okkur hvert á að halda til veiða í sumar. A hverju ári í meira en 25 ár hafa þessar vangaveltur okkar verið í gangi á þessum árstíma enda nauðsynlegt að horfa svolítið fram á veginn þegar komast á í almennilega veiði. Að mörgu er að hyggja - hvenær kemst maður frá vegna vinnu, í hvaða ár er laust, eru vinirnir klárir, hvað þarf að borga — já, hvað kosta veiðileyfin eiginlega? Vorið 2008 var ekki mikið til af lausum laxveiðileyfum þegar komið var fram undir páska. Það var eiginlega búið að selja allt. Veiðimenn höfðu keppst við að hamstra veiðileyfi eins og hvert og eitt væri það síðasta sem væri í boði. Vorið 2009 eru gjörbreyttar aðstæður og við blasir breytt heimsmynd í litla stangveiðiheiminum á Islandi. Veiðin í fyrra - metárið 2008 Líklega verður ársins 2008 minnst í sögubókum sem frábærs metárs í laxveiði enda veiddust rúmlega 81.000 laxar. Af þeim komu 27.000 úr hafbeitaránum. Veiðimenn rifu upp laxa en einnig silunga sem aldrei fyrr. Miðað við þróunina undanfarin ár hefur hlutfall íslenskra veiðimanna líklega farið vaxandi á kostnað útlendinga. Á besta laxveiðitímanum, miðsumars, einokuðu fjár- málafyrirtækin og boðsgestir þeirra bestu árnar en við hin fengum að veiða jaðrana. Arí Þórðarson með fimm kílóa láx úr Hofsá í byrjun júlí ífýrrasumar.

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.