Veiðimaðurinn - 01.04.2009, Side 44
BRÉF FRÁ VEIÐIMÖNNUM
c
I
Við félagarnir vorum heppnir síðasta sumar. Þrátt fyrir að ekkert
mál væri að selja veiðileyfi í flestar sprænur og eftirspurnin væru
töluvert umfram framboð héldum við þeim dögum sem við
höfum verið með undanfarin ár. Við fengum t.d. veiðidaga í
Norðurá, vötn á Skagaheiði, i Sogið, Laxá í Kjós, Hofsá og Flóku
í Borgarfirði. Veiði gekk yfirleitt vel og ýmislegt skemmilegt
gerðist eins og á að gerast í öllum góðum veiðiferðum.
Annað sem einkenndi árið var að verð veiðileyfa hélt áfram að
hækka. Mörg ár í röð hefur þessi þróun verið samfelld og virtist
lengi vel engan endi ætla að taka. Dýrustu silungsleyfi komin yfir
25.000 kr á dag og dýru laxveiðileyfin í áður óþekktar hæðir. Og
allt seldist.
Veiði Islendinga erlendis hefur aukist töluvert. Veiðileyfi í Rúss-
landi, Skotlandi, Argentínu, Kanada og jafnvel Alaska voru seld
Islendingum sem með því kynntust nýju umhverfi. Fyrir tveimur
árum áttum við felagarnir kost á því að kynnast svona veiði en í
ársbyrjun 2007 fórum við ffábæra ferð til Argentínu. Við vorum
ó trúlega heppnir með aðstæður og vikuferð skilaði 7 4 risasj óbirtingum
á land. Öllum var reyndar sleppt en meðalþunginn var um 6 kg.
Kreppuveiðisumarið 2009
Nú er öldin önnur og aðstæður gerbreyttar. I framhaldi af
bankahruninu margrædda biðla veiðileyfasalar nú til útlendinga
enda eftirspurnin hrunin hjá íslenskum veiðimönnum.Vart hefur
orðið beinna verðlækkana eða að verðið sé haldið óbreyttu síðan
í fyrra. A þessu eru líka undantekningar; verð veiðileyfa í Laxá í
Mývatnssveit sem SVFR er með en þar hefur verð hækkað um
meira en 50 % á milli ára suma daga.
Undanfarin ár hefur laxveiði aukist jafnt og þétt í íslenskum
ám. Mesta aukningin hefur verið í Rangánum. Ahugi fyrir veiði
í Rangánum hefur verið mikill og veiðin hreint ótrúleg. Oft
heyrir maður gamalgróna veiðimenn tala niðrandi um þessar
veiðar. Þeir líkja Rangánum við fiskeldisker. En þessari frábæru
viðbót ber að taka fagnandi til að svala veiðifýsn aukins fjölda
veiðiáhugamanna svo og til að tryggja nauðsynlega nýliðun í
röðum okkar. I framtíðinni mun þetta tryggja áhuga fleiri
veiðimanna í fleiri íslenskum ám.
I lauslegri könnun sem við félagarnir gerðum nýlega sýnist
okkur töluverður fyöldi veiðileyfa enn vera í boði hjá
veiðileyfasölum. Það fellur ágætlega saman við umræðu meðal
veiðimanna. Menn bíða með kaup á leyfum. Þessi orðrómur
virðist vera nokkuð útbreiddur og kannski hefur hann dregið úr
sölu leyfa þennan veturinn hvað sem verður áður en vorar að
fullu.
Spennandi verður að fylgjast með áhuga veiðimanna á að sleppa
stórlaxi eins og Veiðimálastofnun hefur skorað á okkur að gera
undanfarin sumur. Síðustu ár hefur sleppingarhlutfallið hægt og
bítandi farið upp á við og er nú um 18 % fyrir allan lax en um 53
% fyrir stórlax. Öll árin er flestum löxum sleppt í sömu ánum en
það eru Selá, Hofsá, Vatnsdalsá og Haffjarðará. Veiðimenn i
öðrum ám þurfa að fylgja þessu fordæmi svo tilmæli
Veiðimálastofnunar beri árangur.