Veiðimaðurinn - 01.04.2009, Blaðsíða 52
VEIÐISTAÐALÝSING HÍTARÁ II
C
miklu vatni getur lax legið alveg niður á brot. Eins og í öðrum
veiðistöðum Hítarár II fer flugan mjög vel á þessum stað.
Veiðistaður 7
Er rétt ofan við Efri-Breiðu. Fallegur strengur sem fellur með
landinu að vestanverðu. Þarna veiðast á hveq'u ári nokkrir laxar
en það er misjafnt milli ára. Besti tökustaðurinn er þar sem hægir
á strengnum.
Veiðistaður 8-12
Frá veiðistað 8 og upp að veiðistað 12 eru nokkrir strengir og
breiður sem af og til gefa lax yfir sumarið en á þessu svæði er
vegurinn meðfram ánni nokkuð langt frá og því eru þessir staðir
ekki mikið reyndir.
Veiðistaðir við Hróbjörg
Til að komast að veiðistöðum við Hróbjörg er hægt að velja um
tvær leiðir. Farið er upp Hítardal, framhjá bænum og réttinni,
keyrt áfram upp fyrir Hróbjörg og beygt þar að ánni. Hinsvegar
er hægt að fara sömu leið og að Kattarfossi. Þá er beygt af
slóðanum við læk sem rennur yfir veginn og fylgt slóða að
neðanverðum Hróbjörgum. Sú leið er einungis fær breyttum
jeppum.
Veiðistaður 13 - Hraun
Hraun er falleg breiða rétt neðanvið Hróbjörgin. Ekki er gott að
komast að þessu svæði að austanverðu á fólksbíl en grófur jeppa-
vegur er að stöðunum rétt neðan við Hróbjörgin. Ain fellur
meðfram hraunkanti að austanverðu og liggur fiskur meðfram
þessum kanti. Á þessum stað er bæði lax og bleikja.
Veiðistaðir 14 Hróbjargahylur, 15 Dýjabakki og
16 Sandsteinshylur
Ekki hef ég orðið mikið var við laxa á veiðistöðum 14, 15 Dýja-
bakka og 16 Sandsteinshyl en oft er hægt að hitta á bleikju á þessunt
stöðum. En hún getur verið erfið á köflum. Síðustu árin hefur
bleikju á vatnasvæði Hítarár fækkað rnikið og kemur það einnig
fram í Hítará II. Þegar ég eltist við bleikjuna nota ég nær eingöngu
andstreymisveiði með eða án tökuvara eða þurrflugu.
Veiðistaður 17 - Langhylur
Er langur hylur er rennur meðfram Hróbjörgum. Helst er að
hitta á bleikju á þessum stað. Eitt sinn var ég við veiðar með
frænda mínum og við hófum veiðar efst í hylnum þar sem við
höfðum séð nokkrar bleikjur. Ekki vildu þær það sem við buðum
þeirn og þegar við komum niður undir miðjan hylinn þá fannst
okkur eins og botninn hreyfðist. Við skyggndum hylinn þá
betur. Þá kom í ljós að hann var fullur af stórri staðbundinni
bleikju. Eftir stutta stund fældist torfan og dreifði sér. Ákváðum
við þá að telja gróflega ^öldann og þegar við höfðum talið á
annað hundrað bleikjur hættum við. Otrúleg sjón.
Veiðistaður 18 - Nielsen
Nielsen er veiðistaður rétt ofan við Langhyl. Þetta er fallegur
hylur þar sem áin þrengist milli leirklappa í botninum. Á þessum
stað fast oft stórar bleikjur í bland við lax. Aðaltökustaðurinn er í
rennunni þar sem áin þrengist milli leirklappanna. Fara verður
varlega að þessum stað til að ná árangri.
Veiðistaður 19 - Hornið
Hornið er djúpur hylur þar sem áin beygir aftur að Hróbjörgunum.
Við grasbakkann er mjög djúpt og þar meðfram eru bestu
tökustaðirnir. Best er að veiða þennan stað frá sandeyrinni að
austanverðu.
Veiðistaður 20 - Elfarsfljót
Elfarsfljót er rétt ofanvið Hornið, langur hylur með hægum
straumi. Misjafnt er hvar fiskurinn heldur sig eftir vatnsmagni en
ég hef oftar fengið bleikju á þessum stað en lax. Best er að veiða
þennan stað andstreymis með þyngdum púpum og hefur Peacock
reynst vel ásamt PheasantTail.
Veiðistaður 21 - Onnustrengur
Önnustrengur tekur við af Elfarsfljóti og er fallegur strengur en
hefur verið að grynnast síðustu árin. Helst er að hitta á bleikju á
þessum stað og hef ég fengið fina veiði á þurrflugu í þessum stað.
Mest nota ég Black Gnat #14 og 16 og Adams þegar þurrfluga
verður fyrir valinu.
Veiðistaður 22, 23, 24 Sandlækjarhylur og 25
Bleikjubakki
Þessir veiðistaðir eru við ofanverð Hróbjörgin og er misjafnt
milli ára hvernig veiðin er. Helst er að hitta á bleikju á þessum
stöðum en staðirnir breyta sér nokkuð milli ára.
52
4 09