Veiðimaðurinn - 01.04.2009, Side 54

Veiðimaðurinn - 01.04.2009, Side 54
VEIÐISTAÐALÝSING HÍTARÁ II C I Góð veiði úr Grjótá og Tálma. VEIÐISTAÐIRVIÐVEIÐIHÚSIÐ Grjótá 6 - Húsastrengur Rétt fýrir ofan nýja veiðihúsið við Grjótá er fallegur strengur. Ekki veiðast margir fiskar á þessum stað yfir sumarið en á aðalgöngutíma er rétt að prófa þennan stað. Grjótá 7 - Hornið Rétt neðanvið Gamla-Húshyl er lítill strengur, rétt bak við hraunhornið. Ekki hafa margir fiskar veiðst á þessum stað í gegn um tíðina en af og til fæst þar fiskur, helst á maðk. Ekki er auðvelt að komast að til að veiða þennan stað. Grjótá 8 - Gamli húshylur Áður fyrr hét þessi staður Húshylur en eftir að nýja veiðihúsið kom þá er rétt að nefha þennan stað Gamla-Húshyl. Áin feliur þarna niður Mtinn foss sem getur orðið nokkur farartálmi fyrir laxinn ef vatn er mikið í Gijótá. Undir fossinum er djúpur pyttur sem grynnist hratt upp á brotið. í klettinum austanmegin er áin búin að grafa helH og Mggur laxinn oftast rétt neðan við helMnn, við bakkann austan megin. Einnig er hann oft þar sem hvítfýssinu sleppir, við steina í botninum. Þennan stað er bæði hægt að veiða með flugu og maðki. I báðum tilvikum er staðið við veiðarnar upp við fossinn. Eftir að fiskur hefur tekið vandast málið því eini löndunarstaðurinn er rétt neðan við fossinn og er gott að hafa aðstoðarmann með við löndunina. Eitt sinn sem oftar vorum við faðir minn að veiðum á þessum stað og vorum búnir að reyna góða stund við fiskana í hylnum með ýmsum flugum án þess að laxarnir sýndu nokkur viðbrögð við tilraunum okkar.Var þá ákveðið að prufa maðkinn og skiptum við um stað.Var maðkinum slakað niður á réttan stað og eftir stutta stund var byijað að narta. Eftir stutta stund var lax kominn á færið og bremsan hert. Unt leið og fiskurinn fann fýrir önghnum snéri hann sér við og fór niður úr hylnum niður í Hornið. Nú voru góð ráð dýr, Mnan upp við hraunklettinn og fiskurinn bakvið.Var ekki um annað að ræða en stökkva af stað og halda Mnunni ffá klettinum. Smátt og smátt tókst að mjaka fiskinum uppí hyfinn aftur og eftir drykklanga stund var faUegum 9 punda laxi landað. Grjótá 9 - Hlóðaklettar Hlóðaklettar eru rétt ofan við Gamla-Húshyl. Þetta er tvískiptur staður, strengur er fellur fram hjá ganda brúarstólpanum og liggur fiskur þar sem hvítfýssinu sleppir, hinsvegar getur fiskur legið upp við klettana þar sem áin tekur smá sveig. Oft er fiskur á þessurn stað á göngutíma og seinni hluta sumars. Grjótá 10 Eiríkshola, 11 Hallastrengur, 12,13 Skógarstrengur, 14,15 og 16 Hraunbolli. Veiðistaðir 10 að 16 eru mjög líkir og má lýsa þeim á svipaðann hátt. Áin fellur í stuttum strengjum niður í grunna hylji og liggur laxinn á svipuðum stöðum á þessum kafla. Sé nóg vatn þá 54 4 09 J

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.