Veiðimaðurinn - 01.04.2009, Side 60
Frá opnun Elliðaánna 1960. Frá vinstri Viggó H. V. Jónsson, Steingrímur Jónsson, GunnarThoroddsen, Viglundur Möller,
Geir Hallgrímsson og Jón Þorvarðarson.
FYRSTI FUNDURINN Á HÓTEL VÍK
Lögð voru drög að stofnun SVFR á fundi á Hótel Vík þriðjudaginn 9.
maí 1939. ffundargerðfrá þeimfundi segireftirfarandi:
Fundur var settur af Gunnari E. Benediktssyni lögfræðingi.
Fundarstjóri var kosinn Óskar Norðmann stórkaupmaður en hann
tilnefndi sem ritara Pétur Halldórsson.
Gunnar E. Benediktsson kvaddi sérfyrstur hljóðs og lýsti tilgangi
með boðun fundarins. Kvaðst hann fyrir nokkru síðan hafa átt tal
við Friðrik Þorsteinsson um framtíð laxveiði í Elliðaánum. Hefði þeim
komið saman um að boða til fundar með þeim veiðimönnum er
stundað hefðu veiðar þar undanfarið. Öllum væri nú kunnugt
hvernig veiði hefði gengið síðastliðið sumar. Veiði hefði rýrnað með
ári hverju svo tvö síðastliðin sumur hefðu aðeins veiðst tæplega 500
laxar hvort sumar. Væri það óeðlilega lítið miðað við þá laxmergð
sem þar hefði verið fyrr á árum. Ástæðan fyrir þessari minnkandi
göngu í árnar og um leið minni veiði væru margvíslegar. Mætti
fyrst nefna ólagið á rennslinu, enda þótt lofað hefði verið síðastliðið
sumar að árnar fengju að renna frjálsar. Flutningur laxins hlyti að vera
honum hvimleiður.Viðhald árinnar væri ekkert sem mætti sjá af því
að í mörgum hyljum sem áður féllu laxinum vel í geð, stöðvaðist
nú ekki lax. Ádráttur færi fram á haustin í flestum hyljum sem lax
væri von svo eðlilegt klak væri nú nánast útilokað. Síðan væri mikill
hluti klaklaxins seldur, svo árnar fengju ekki að njóta nema lítils hluta
þess klaks, sem þeim að réttu bæri. Þá hefðu þeir félagar átt tal við
rafmagnsstjóra um væntanlega útleigu á ánum í sumar. Hefði hann
verið bjartsýnn um það. Jafnvel dottið í hug, ef erfitt yrði að leigja
þær yfir allt sumarið, að þá leigja út dag og dag með mismunandi
verði, eftir því hvenær það væri á sumrinu.
í lok ræðu sinnar sagði Gunnar að hann teldi rétt að þessi fundur
veiðimanna í Elliðaánum tæki ákvörðun fyrir sitt leyti, hvað gera
skyldi með þær í sumar.Taldi hann og rétt að stofnaður yrði félags-
skapur um árnar sem ef til vill hefði einnig það takmark að stuðla að
„heiðarlegum" veiðiskap.
Ýmsir fleiri tóku til málsenfundinn sóttu 16menn.Virtust menn
vera á eitt sáttir um að rétt væri að stofna allsherjar veiðifélag. Eftir
umræður kom tillaga frá Gunnari E. Benediktssyni um að kjósa
fimm manna nefnd til að undirbúa stofnun allsherjar veiðifélags og
viðaukatillaga frá Óskari Norðmann að athuga samhliða möguleika
á veiði í Elliðaánum framvegis. Þessar tillögur voru samþykktar
samhljóða og í nefndina kosnir þeir Gunnar E. Benediktsson, Friðrik
Þorsteinsson, Brynjólfur Stefánsson, Óskar Norðmann og Einar
Tómasson.
STOFNFUNDUR í BAÐSTOFU
IÐNAÐARMANNA
Árið 1939, miðvikudaginn 17. maí kl. 20:30 var fundur settur f
Baðstofu iðnaðarmanna. Fundinn setti Gunnar E. Benediktsson.
Fundarstjóri var kosinn Óskar Norðmann en hann tilnefndi sem
ritara Sigmund Jóhannsson.
Fyrstur tók til máls Gunnar E. Benediktsson og skýrði hann frá
störfum nefndarinnar sem kosin var á síðasta fundi. Hefði nefndin
skipt með sér störfum þannig að þeir Friðrik Þorsteinsson og Einar
4 09