Veiðimaðurinn - 01.04.2009, Page 66

Veiðimaðurinn - 01.04.2009, Page 66
NÝRNAVEIKI í LAXFISKUM c I | D Mjðgiilid □ l-ilið ; ■ Talsveit B Mikið Mynd 3. Smitmagn i villtum klaklaxi haustin 2006-2008 Tafla I. Smittíðni og smitmagn klakfiska úr sömu á en sem voru geymdirtil kreistingar í mismunandi eldisstöðvum haustið 2008 Smittíðni Meðalsmitmagn* Mest smit' Eldisstöð 1 89,4% 26 79 Eldisstöð II 46,7% 25 74 Eldisstöð III 37,0% 7 25 Eldisstöð IV 12,1% 5 11 ‘Skilgreining gilda: 3-8 = lítið smit; 8-40 = talsvert smit; >40 = mikið smit (hluti fiska með sjúkdómseinkenni) Tafla I. Smittíðni og smitmagn klakfiska úr sömu á en sem voru geymdir til kreistingar í mismunandi eldisstöðvum haustið 2008 *Skilgreining gilda: 3-8 = lítið smit; 8-40 = talsvert smit; >40 = mikið smit (hluti fiska með sjúkdómseinkenni) algengt í villtum laxfiskum en hins vegar ekki dæmi um sjúk- dómsfaraldra. Þarna er því um að ræða einkennalaust smit, þ.e.a.s. jafnvægi ríkir i sambúð bakteríu og fisks. Eldisumhverfi er mjög ólíkt því sem gerist í náttúrunni. Þar eru margir streituþættir sem virka bælandi á ónæmiskerfi fiskanna, m.a. mikill þéttleiki fiska, sem auk þess auðveldar smitdreifingu milli fiska. Við slíkar aðstæður getur vægt smit í faum einstaklingum breyst skjótlega í alvarlegan sjúkdómsfaraldur. Nýrnaveiki og fiskirækt Um margra ára skeið hefur klakfiskum úr fjölmörgum laxveiðám verið safnað til undaneldis. Hrognunum er klakið i eldisstöð og síðan er sumaröldum seiðum og gönguseiðum sleppt í viðkomandi upprunaá í von um auknar laxagöngur til stangveiða. Reglum samkvæmt skal skima villtar klakhrygnur fyrir nýrnaveikismiti. Hrognum undan smituðum fiskum er eytt. Þetta er gert til þess að hindra að faraldur korni upp í eldi seiðanna svo og að sýktum seiðum sé sleppt í árnar. Frá því farið var að skima kerfisbundið fyrir nýrnaveiki hefur smit yfirleitt greinst í stöku klaklaxi á hveiju hausti. Fram til ársins 2006 var snrittíðnin í villtum klak- löxum undir 3%. Síðustu ár hefur hins vegar orðið mikil auking á smittíðni. Haustið 2006 reyndust u.þ.b. 12% laxa smitaðir, 15% haustið 2007 og nú síðastliðið haust greindist smit í ríflega 26%) fiska (mynd 2). Jafnframt hefur ám sem smit greinist í fjölgað mikið (mynd 3). Þó að smittíðnin hafi aukist mjög síðust þijú ár var smitnragn klakfiska haustin 2006 og 2007 í langflestum til- fellum mjög lítið; þ.e. engra sjúkdómseinkenna gætti. Síðastliðið haust varð breyting hér á, þá jókst snritmagn í fiskunr til nrikifla nruna. Af snrituðum fiskunr greindust um 8% með talsvert eða nrikið snrit haustið 2006 (þar af 2% mikið smit), haustið 2007 greindust um 2% laxanna nreð talsvert smit en enginn reyndist nrikið snritaður. Síðastliðið haust greindust hins vegar um 19% með talsvert smit og um 11% reyndust mikið snritaðir (nrynd 3). Af þessum 11% var talsverður fjöldi með stórsæ sjúkdómseinkenni í nýrunr. Ljóst má vera af þessum tölum að gífurlegu nragni hrogna þurfti að farga.Tjónið er því mikið. Ástæður aukinnar tíðni á nýrnaveikismiti í klakfiskum Erfitt er á þessu stigi að fúllyrða hvað veldur að því er virðist skyndilegri aukningu á tíðni nýrnaveikismits í villtum klakfiskum. An efa eru skýringarnar nokkrar og jafnvel misnrunandi eftir vatnakerfunr. Ynrislegt bendir til þess að nýrnaveikisnrit fari vaxandi í a.m.k. sumum villtum stofnum islenskra laxfiska. Hins vegar ber að hafa fyrirvara á tiðnitölum klakfiskasmits úr ein- stökunr ám, þvi að í ljós hefur komið að eftirfarandi atriði skipti þar miklu máli: a) möguleg smitdreifing milli fiska eftir að í ána er komið úr sjó, b) hve fljótt fiskur er tekinn úr á til geymslu franr að hrognatöku, c) aðbúnaður, einkum hve rúmt er á frskum við geymslu, d) í stöku tilfeflum hefur hópum fiska úr mismunandi ám verið haldið saman í kerum og smit borist þannig úr fiskum eins stofns í aðra stofna ósýkta. Sem dæmi má nefna fjórar eldis- stöðvar sem allar fengu fiska úr sömu á (sjá töflu I). Magn og tíðni smits reyndist mjög mismunandi eftir því hvaða eldisstöð átti í hlut. Þar kom bæði til munur á aðbúnaði fiska við geymslu og á veiðitínra klakfiskanna. Þessar niðurstöður sýna glöggt hve nrikil- vægt er að huga að því hvernig best sé að þessum málum staðið og verður það gert á næstu misserum. Heimildir: Benediktsdottir, E., Helgason, S. & Gudmundsdottir, S. (1991). Incubation time for the cultivation of Renibacterium salmoninarum from Adantic salmon, Salmo salar L., broodfish.Journal of Fish Diseases, 14,97-102. Gudmundsdottir, S., Benediktsdottir, E. & Helgason, S. (1993). Detection of Renibacterium salmoninarum in salmonid kidney samples: A comparison of results using double- sandwich ELISA and isolation on selective medium.Journal of Fish Diseases, 16,185-195. Gudmundsdottir, S., Helgason, S. & Benediktsdottir, E. (1991). Comparison of the effectiveness of three different growth media for primary isolation of Renibacterium salmoninarum fiom Atlantic salmon, Salmo salar L., broodfish.Journal of Fish Diseases, 14,89-96. Helgason, S. (1985). Diseases of salmonids on fish farms in Iceland. In Aquaculture - miljöproblem,Vol. 2 pp. 213-217. NORDFORSK Miljövárdsserien, Bergen, Norway. Jónsdóttir, H., Malmquist, H.J., Snorrason, S. S., Gudbergsson, G. & Guðmundsdóttir, S. (1998). Epidemiology of Renibacterium salmoninarum in wild Arctic charr and brown trout in Iceland.Journal of Fish Biology, 53,322-339. Gögn Rannsókndeildar fisksjúkdóma,Tilraunastöd Háskóla Islands í meinafræði að Keldum. 66 4 '09

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.