Fréttablaðið - 23.03.2023, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 23.03.2023, Blaðsíða 4
Útlit er fyrir að 1,7 milljarðar króna sem áætlaðir voru í fjölgun NPA-samninga nýtist ekki sem skyldi á árinu. Tafir hafa orðið á verklagsreglum og sveitarfélög eru vöruð við að nýjum samningum sé ekki tryggt fjármagn frá ríkinu. kristinnhaukur@frettabladid.is félagsmál Félagsmálaráðuneytið hefur sent út bréf til sveitarfélaganna þar sem greint er frá töfum á nýjum verklagsreglum um gerð NPA- samninga fyrir fatlað fólk. Áætluð var mikil fjölgun samninga á árinu en hún er nú í uppnámi. „Í ljósi þess að gerð verklagsreglna er ekki lokið er ekki tryggt að nýir samningar um NPA sem þegar hafa verið gerðir fái ríkisframlag,“ segir í bréfinu. Árið 2022 veitti ríkið framlög til 89 NPA-samninga en hver þeirra kostar að meðaltali um 30 milljónir króna. Gert var ráð fyrir að samningum yrði fjölgað um 56 á árinu, eða nærri 63 prósent. Öðrum 27 yrði svo bætt við á árinu 2024. Þetta var ákveðið með nýjum lögum sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmálaráðherra kom í gegnum Alþingi í desember síðastliðnum. Heildarupphæð er nærri 1,7 milljarðar króna en þar af greiðir ríkið fjórðung, það er vel á fimmta hundrað milljóna. „Það hefði átt að vera löngu búið að gera þetta. Þetta hefði ekki átt að taka svona langan tíma,“ segir Rúnar Björn Herrera Þorkelsson, formaður NPA miðstöðvarinnar. Það sé synd að það taki það auka fjármagn sem sett hefur verið í málaflokkinn svona marga mánuði að komast í umferð. „Það eru margir að bíða. Á meðan liggur fjármagnið, sem ákveðið var að veita í þessa mannréttindaþjón- ustu, og gerir ekki neitt,“ segir hann. Aðspurður hvort hann sé von- góður um að það takist að bæta við 56 NPA-samningum á árinu segir hann svo ekki vera. Helst gæti það náðst ef forgangsraðað yrði á rangan hátt, það er að ódýrari samningum yrði forgangsraðað umfram þá dýr- ari. „Ég óttast það svolítið að minni samningum verði forgangsraðað umfram stærri,“ segir Rúnar. Segist hann þó vilja trúa því að sveitar- félögin forgangsraði þjónustunni til þeirra sem þurfa mest á henni að halda. Heiða Björg Hilmisdóttir, for- maður Sambands íslenskra sveitar- félaga, segist ekki trúa öðru en að staðið verði við fjölgun NPA-samn- inga. „Hins vegar er mars að verða búinn,“ segir hún. „Við leggjum mikla áherslu á að þetta gerist hratt og vel. Það hefði verið hægt að breyta úthlutunarreglum fyrir áramót eða strax eftir þau. Ég finn fyrir miklum pirringi hjá sveitarfélögunum.“ Í svari félagsmálaráðuneytisins við fyrirspurn Fréttablaðsins segir að ákveðið hafi verið að endurskoða og styrkja verklag við afgreiðslu umsókna í ljósi mikillar fjölgunar samninga. Samband íslenskra sveit- arfélaga hafi komið að þeirri vinnu. „Vinnan við gerð verklags er á lokametrunum,“ segir í svarinu. Á meðan nýtt verklag sé í mótun liggi ekki fyrir hvaða nýir samningar fái ríkisframlag. En sveitarfélögum sé frjálst að gera NPA-samninga án ríkisframlags. „Ráðuneytið þarf að gæta jafnræðis milli íbúa á öllu landinu og getur ekki tryggt að nýir samningar sem sveitarfélög stofna til áður en verklag er tilbúið fái sjálf- krafa ríkisframlag.“ n Ég finn fyrir miklum pirringi hjá sveitar- félögunum. Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sam- bands íslenskra sveitarfélaga Fjölgun NPA-samninga er í óvissu vegna tafa af hálfu ráðuneytisins Guðmundur Ingi fékk lögin í gegn í desember en verklagsreglur hafa tafist í ráðuneyti hans. Fréttablaðið/Ernir Unnur Sverris- dóttir, forstjóri Vinnumála- stofnunar bth@frettabladid.is Vinnumarkaður Atvinnuleysi var fimm prósent í febrúar samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hag- stofu Íslands. Atvinnuleysið jókst um 1,9 pró- sentustig á milli mánaða, einkum meðal karla. Hlutfall atvinnulausra karla var 6,4 prósent í febrúar 2023 og tvöfaldaðist milli mánaða. Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir að þetta eigi sér árstíðarbundnar skýringar. Nánast undantekningarlaust vaxi atvinnuleysi hjá körlum á þessum tíma í ljósi þess að minna er um framkvæmdir en ella í byggingar- geiranum. Unnur segir að flest störf í grein- inni séu karllæg. Megi því rekja þessa breytingu að nokkru leyti beint til veðurfars. „Í sögulegu tilliti er atvinnuleysi frekar lítið og eins og í góðu ári, þrátt fyrir aukið atvinnuleysi karla,“ segir Unnur. „Við spáum minnkandi atvinnu- leysi strax í þessum mánuði.“ n Spáir minnkun atvinnuleysis benediktboas@frettabladid.is  m e n n ta m á l Fr æðslu m iðstöð atvinnulífsins (FA) mun hætta rekstri vefsíðunnar Næsta skrefs og loka aðgengi að henni frá 1. apríl, þar sem Fræðslumiðstöðin getur ekki staðið ein að rekstri hennar og þróun. Þetta kemur fram í bréfi sem FA sendi frá sér í gær. Næsta skref miðlar upplýsingum um nám og störf og er eini vefur sinnar tegundar á Íslandi. Á meðal notenda eru nemendur, foreldrar, kennarar, leiðbeinendur, náms- og starfsráðgjafar í grunn-, framhalds- og háskólum og framhaldsfræðslu. FA hefur sótt um fjármagn til þriggja ráðuneyta sem tengjast áherslum vefjarins án árangurs. Sam- ræður FA, Menntamálastofnunar og fyrrum mennta- og menningarmála- ráðuneytis skiluðu engu. n Vefsíðunni Næsta skrefi lokað Þann 21. mars 2023 samþykkti Borgarstjórn Reykjavíkur að kynna verklýsingu vegna áformaðrar aðalskipulagsbreytingar er varðar landnotkun skotæfingasvæða á Álfsnesi. Með vísan til 1.-2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er verkefnislýsingin og fyrstu drög að tillögu lögð fram til kynningar og umsagnar. Óskað er eftir því að athugasemdum verði komið á framfæri á netfangið skipulag@reykjavik. is fyrir 21. apríl 2023. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur Skrifstofa borgarstjóra Skrifstofa borgarstjóra Borgarverkfræðingur Borgarverkfræðingur Hagdeild Hagdeild Dagvist barna Dagvist barna Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipulagssvið Fyrirhuguð breyting á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040. Álfsnes Skotæfingasvæði Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, sími: 411 1111, www.reykjavik.is Þan 21. mars 2023 samþykkti Borgarstjórn Reykjavíkur að k nn verklýsingu veg áformaðrar aðalskipulagsbreytingar er v rðar landnotkun skotæfingasvæða á Álfsnesi. Me vísan til 1.-2. mgr. 30. gr. skipulagsla a nr. 123/20 0 er verkefnislýsingin og fyr tu drög að tillögu lögð fram til kynningar og umsagnar. Óskað er eftir því að athug semdum verði komið á framfæri á netfangið skipulag@reykjavik. is fyrir 21. apríl 2023. Þeir sem óska nánari upplýsi ga geta snúið sér til umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur Skrifstofa borgarstjóra Skrifstofa b rgarstjór Borga verkfræðingur Borgarverkfræðingur Hagdeil Hagdeild Dagvist barna Dagvist barna Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipulag sv ð Fyrirhuguð breyting á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040. Álfsnes Skotæfingasvæði Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, sími: 411 1111, www.reykjavik.is helgisteinar@frettabladid.is efnahagsmál Greint var frá því í gærmorgun að stýrivextir myndu hækka um eitt prósent. Stýrivextir hafa nú tífaldast á tveimur árum og hafa ekki verið jafn háir í áratugi. Kristján Þórður Snæbjarnarson, forseti ASÍ, segir hækkunina galna. „Á sama tíma er því haldið fram að vextir til þeirra sem eiga fjármagnið megi ekki vera neikvæðir að raun- virði. Þetta þýðir á mannamáli að fólkið sem á fjármagnið má alls ekki þurfa að búa við það að fá minni ávöxtun en sem nemur að minnsta kosti verðbólgu síðustu 12 mánuði,“ segir hann. „Það er verulegt áhyggjuefni að ekki hafi tekist að koma böndum á verðbólgu og verðbólguvænt- ingar þrátt fyrir brattar stýrivaxta- hækkanir seinustu misserin,“ segir Halldór Benjamín Þorbergs- son, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Erna Björg Sverrisdóttir, aðal- hagfræðingur Arion banka, hefur einnig gagnrýnt stjórnmálamenn sem ásaki almenning í landinu fyrir að stuðla að þenslu og verðbólgu með eyðslusemi sinni. „Ólíkt ríkis- sjóði hafa heimilin í landinu safnað sparnaði og eiga mikinn sparnað á sama tíma og ríkið safnar skuldum og sýnir lítið aðhald.“ n Stýrivaxtahækkanir að vekja hörð viðbrögð Ólíkt ríkissjóði hafa heimilin í landinu safnað sparnaði og eiga mikinn sparnað. Erna Björg Sverrisdóttir 4 Fréttir FRÉTTABLAÐIÐ 23. mARs 2023 FiMMtUDAGUr

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.