Fréttablaðið - 23.03.2023, Blaðsíða 24
Málefni vallarins voru
ansi viðkvæm.
Arnþór Gunnarsson,
sagnfræðingur
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda
tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Merkisatburðir |
Þetta gerðist | | 23. mArs 1937
Elskaður eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Stefán Ragnar Jónsson
hárskeri,
sem lést á Tenerife 8. mars, verður
jarðsunginn frá Kópavogskirkju
fimmtudaginn 23. mars klukkan 15.
Anna Þórdís Bjarnadóttir
Ómar Stefánsson Arnheiður Skæringsdóttir
Hanna Sigríður Stefánsd. Vilhjálmur Hörður Guðlaugss.
Jón Þorgrímur Stefánsson Kristín Ásta Matthíasdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku bróðir minn,
Guðmundur J. Lárusson
heimspekingur,
andaðist á heimili sínum í Granslev,
Danmörku, miðvikudaginn
8. mars 2023.
Fyrir hönd aðstandenda,
Anna Lárusdóttir
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Einar Hólm Ólafsson
fyrrverandi skólastjóri,
lést í faðmi ástvina á
Landakotsspítala þann 17. mars.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju
miðvikudaginn 29. mars kl. 13. Þeim sem vilja minnast
hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Ingibjörg Hólm Einarsdóttir Jón Guðmundur Jónsson
Ólafur Hólm Einarsson Elva Brá Aðalsteinsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn
Innilegar þakkir fyrir samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
okkar ástkæru móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Margrétar Stefánsdóttur
Hvassaleiti 56.
Stefán Bergsson Jenný G. Magnúsdóttir
Tómas Bergsson Nína V. Magnúsdóttir
Bergljót Bergsdóttir
Birna H. Bergsdóttir Ólafur N. Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn
Keflavíkurflugvöllur á áttatíu ára
afmæli um þessar mundir. Mál-
efni vallarins voru viðkvæm þar
sem hagsmunir hers og þjóðar
sköruðust.
arnartomas@frettabladid.is
Á morgun verða liðin áttatíu ár frá því
að Kef lavíkurf lugvöllur var vígður.
Ríkisstjórnir Íslands og Bandaríkjanna
höfðu þá gert með sér samning um að
Bandaríkin tækju að sér varnir Íslands
en Reykjavíkurf lugvöllur var engan
veginn nógu stór fyrir umsvif banda-
ríska flughersins.
Það þurfti því að byggja nýjan flugvöll
sem myndi koma í staðinn fyrir vara-
flugvöll sem Bretarnir höfðu lagt á Garð-
skaga. Framkvæmdir hófust í febrúar
1942 og að verkinu komu verkamenn í
f lughernum ásamt Íslendingum þar til
að nýjar öryggisreglur bönnuðu öllum
nema hermönnum að vera á svæðinu.
Meeks og Patterson
Flugvellirnir voru í rauninni tveir. Sá
fyrsti var aðalflugvöllurinn á Háaleiti
sem síðar varð Kef lavíkurf lugvöllur.
Völlinn nefndi herinn Meeks Field eftir
flugmanninum George Meeks sem fórst
á Reykjavíkurflugvelli 19. ágúst 1941 og
varð fyrsti Bandaríkjamaðurinn sem
lést hér á landi í stríðinu. Síðari völlur-
inn var Patterson Field á Njarðvíkur-
heiði, líka nefndur eftir hermanni sem
lést hér á landi, en sá flugvöllur var ekki
notaður eftir stríð.
Almennt flug um Keflavíkurflugvöll
hófst sumarið 1945 og var rekstur vall-
arins þá að mestu leyti áfram í höndum
flughersins. Þá var hernaðarlegt yfir-
bragð vallarins talsvert og hentaði að
mörgu leyti illa fyrir almenna farþega.
Ríkisstjórnir Íslands og Bandaríkjanna
undirrituðu hinn svokallaða Kef la-
víkursamning árið 1946 sem kvað á um
brottför Bandaríkjahers sem þá taldi
aðeins um þúsund hermenn sem unnu
við völlinn.
Eftir að hermennirnir voru farnir tók
bandaríska flugfélagið American Over-
seas Airlines við f lugvallarrekstrinum
og réð til sín bandaríska og íslenska
starfsmenn. Þá jókst fjöldi farþegavéla
sem lenti á vellinum og fóru þá Íslend-
ingar í auknum mæli að taka að sér sér-
hæfð tæknistörf.
Í fyrstu önnuðust liðsmenn varnar-
liðsins stjórn allra herflugvéla á f lug-
vellinum en íslensku f lugumferðar-
stjórarnir annarri f lugumferð. Stóð sú
skipan þar til að gerður var samningur
við varnarliðið árið 1955 þar sem kveðið
var á um að íslensk f lugmálayfirvöld
skyldu annast stjórn allra loftfara sem
ættu leið um Keflavíkurflugvöll.
Árið 1962 flutti f lugfélagið Loftleiðir
f lugstarfsemi sína til Kef lavíkurf lug-
vallar og tók stuttu síðar við rekstri
f lugafgreiðslunnar og þjónustu við
almenna f lugumferð um völlinn fyrir
hönd íslenskra stjórnvalda. Það var
svo ekki fyrr en 2006 sem varnarliðið
fór frá Íslandi og tók Flugmálastjórn
Keflavíkurflugvallar að fullu við rekstri
vallarins.
Viðkvæm málefni
Arnþór Gunnarsson sagnfræðingur tók
saman sögu flugvallarins fyrir Isavia í
bók sinni Saga flugvalla og flugleiðsögu
á Íslandi.
„Eitt af því sem mér fannst áhugavert
voru allar þær deilur sem áttu sér stað í
kringum rekstur flugvallarins. Málefni
vallarins voru ansi viðkvæm,“ segir Arn-
þór. „Þarna komu mál eins og hervernd
og vera varnarliðsins inn í umræðuna
samhliða því að við fáum fullt sjálfstæði
1944. Síðan kom kalda stríðið sem gerði
að verkum að málefni vallarins voru alla
tíð mjög viðkvæm.“
Arnþór nefnir sem dæmi ráðningu
Erlings Ellingsen sem fyrsta f lugmála-
stjóra Íslendinga en hann var skipaður af
nýsköpunarstjórninni sem var við völd
1944 til 1946.
„Eftir að stjórnin féll þótti ekki heppi-
legt að Erling, sem var vinstri maður,
skyldi vera í þessu embætti og var
honum bolað burtu stuttu síðar. Í fram-
haldi af því voru líka átök um embætti
f lugvallarstjóra,“ segir Arnþór. „Saga
Kef lavíkurf lugvallar er athyglisverð
fyrir margra hluta sakir og ég hafði mjög
gaman af því að skrifa kaflann um flug-
völlinn.“ n
Áttatíu ár frá vígslu
Keflavíkurflugvallar
Hershöfðinginn George H. Bonesteel opnar meeks Field við hátíðlega athöfn 24. mars 1943. Mynd/IsavIa
1918 Litáen lýsir yfir sjálfstæði.
1956 súdan öðlast sjálfstæði.
1960 söngsveitin Fílharmónía kemur fram opinberlega
í fyrsta sinn í uppfærslu Þjóðleikhússins á Carmina
Burana eftir Carl Orff.
1970 Þrír þjóðkunnir leikarar halda upp á 25 ára leik
afmæli: Baldvin Halldórsson, Gunnar Eyjólfsson og
róbert Arnfinnsson.
1998 Kvikmyndin Titanic hlýtur ellefu Óskarsverðlaun.
1998 Kjalarnes og reykjavík sameinast í eitt sveitarfélag.
2007 Nýja leikjatölvan frá sony, Playstation 3, kemur í
verslanir í Evrópu, Ástralíu og singapúr.
2018 Fjölbrautaskólinn í Garðabæ vinnur Gettu betur í
fyrsta sinn.
2019 meira en ein milljón manna mótmælir á götum
Lundúna og krefst nýrrar þjóðaratkvæðagreiðslu
um Brexit.
Hugmyndir um yfirbyggða sundlaug
í reykjavík höfðu verið bornar upp
án árangurs allt frá árinu 1902 en ekki
fengið hljómgrunn hjá bæjarstjórn.
Það var svo árið 1928 sem ríkisstjórnin
bar fram frumvarp um að byggja sund
höllina í reykjavík þar sem ríkið myndi
leggja fram hundrað þúsund krónur og
borgin jafnháa upphæð auk lóðarinnar.
Arkitekt sundhallarinnar í reykjavík
var Guðjón samúelsson, húsameistari
ríkisins, og var hans fyrsta tillaga að
hafa bygginguna í burstabæjarstíl.
Hugmyndin var að laugin væri þrískipt,
ein fyrir börn, önnur fyrir íþróttasund
og sú þriðja fyrir sjósund. Tillagan náði
ekki í gegn en árið 1929 hófust fram
kvæmdir á sundhöllinni sem stendur
í dag.
Framkvæmdir gengu brösuglega
vegna fjárskorts en að lokum var
sundhöllin tekin í notkun þann 23.
mars 1937. Árið 2013 var svo ákveðið
að byggja útisundlaug við höllina sem
fallið hefur vel í kramið hjá sund
görpum borgarinnar. n
Sundhöll Reykjavíkur tekin í notkun
16 tímamót FRÉTTABLAÐIÐ 23. mARS 2023
FImmtUDaGUR