Fréttablaðið - 23.03.2023, Blaðsíða 18
Rauð síð
kápa sem
er þykk
og mikil en
flott.
Grænn ullarjakki sem
verður hlýr og góður
þegar haustar á ný.
Elín
Albertsdóttir
elin
@frettabladid.is
Margir urðu undrandi þegar
hausttíska Valentino var
sýnd í París fyrr í mánuðin-
um. Flestallar fyrirsæturnar
voru með bindi um hálsinn
og sniðin mjög í anda jakka-
fata fyrir karlmenn.
Aðalhönnuður Valentino, Pier
paolo Piccioli, svaraði spurn
ingum varðandi þessa sérstöku
tísku. Þegar hann kom heim úr
vinnu einn daginn varð hann
mjög undrandi að sjá 15 ára
dóttur sína róta í fataskápnum
hans ásamt vinum sínum. „Hún
hafði klæðst svörtum jakkafötum,
var í hvítri skyrtu og með bindi.
Þannig klædd var hún á leið út.
Mér fannst þetta skrítið þar sem
ég klæðist eiginlega aldrei jakka
fötum nema á sérstökum við
burðum,“ segir hann.
Þetta varð til þess að Pierpaolo
fór að hugsa um tísku unga fólks
ins og frjálslyndi þess. „Því sem
henni finnst fallegt klæðist hún,
hvort sem það er ætlað konum eða
körlum. Þetta varð mér innblástur
til að nálgast tískuna sem per
sónulegt val hvers og eins,“ segir
hann. Þess má geta að Harper
Beckham, dóttir Victoriu og David
Beckham, kom foreldrum sínum
líka á óvart á sýningu móður
sinnar með því að vilja klæðast
jakkafötum.
Pierpaolo hefur í gegnum tíðina
kappkostað að ná til unga fólksins
í hönnun sinni. Fyrirsætur hans
voru með gataða skartgripi í
andliti og húðflúr á líkamanum.
Þannig vildi hann sýna fram á
endurtúlkun sína á formlegum
klæðnaði. Á sýningunni mátti sjá
mínípils við þunglamaleg
stígvél, stuttbuxur og
samfestinga. Mikið
í svörtu og hvítu en
einnig í sterkum Val
entinorauðum lit.
Smókingar hafa
verið til lengi fyrir
bæði konur og karla
en það var Yves
Saint Laurent
sem fyrstur
skar á mörkin
milli kven og
herrafatn
aðar, eftir því
sem segir í
Vogue. Núna
er fremur
verið að
skoða
samfélag
ið í heild
sem hefur
breyst og allt
er leyfilegt.
Hönn
uðurinn
Pierpaolo
Piccioli hefur
starfað sem list
rænn ráðgjafi hjá
Valentino frá árinu
2008. Stofnandi
þessa þekkta tísku
húss, Valentino
Gravani, er níræður
og hefur dregið sig í
hlé. Síðasta hátísku
sýning hans var í
París árið 2008 þegar
frægustu fyrirsætur
heims á þeim tíma
sýndu hönnun hans.
Árið 2003 kom Valent
ino fram í kvikmynd
inni The Devil Wears
Prada sem hann sjálfur.
Árið 2008 var frumsýnd
heimildarmynd
um hann
í fullri
lengd á
Alþjóðlegu
kvikmyndahátíð
inni í Feneyjum. n
Hálsbindi við hverja flík Valentino
Þótt svart og
hvítt hafi verið
nokkuð alls-
ráðandi á haust-
tísku Valentino
leyndust fallegir
litir inni á milli.
Pínupils og svart
bindi við þessa
stóru litaglöðu
kápu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Skrautleg
blúndu-
skyrta.
Háu stíg-
vélin eru
flott við
þetta dress.
Rauður
litur er
dálítið í anda
Valentino.
Síður kjóll
með klauf á
hliðinni. Að
sjálfsögðu er
bindi við.
Glæsilegur
herrafrakki.
Valentino var
annaðhvort
með fötin mjög
síð eða mjög
stutt. Það má
því segja að
bæði míní- og
maxi-tískan sé
að koma aftur
með haustinu.
Fyrst dettur manni í hug prestur
en svo er ekki. Þetta módel skartar
dýrindis síðum frakka. Sólgleraugun
setja töffaraskap á heildarútlitið.
Jakkaföt með
stuttbuxum.
Nýstárlegur
klæðnaður
hjá Valentino.
Skyrtan er
stutt og sýnir
magann. Að
sjálfsögðu
skartar hún
hálstaui.
6 kynningarblað A L LT 23. mars 2023 FIMMTUDAGUR