Fréttablaðið - 23.03.2023, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 23.03.2023, Blaðsíða 21
Kostnaðurinn af skjöl- unum hverfur ekki þó að þau séu færð á milli stofnana. AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL Ásahreppur, Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppur Samkvæmt 41. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsbreytinga og nýrra deili- skipulagsáætlana: 1. Kötluholt L224404; Breyttir skilmálar; Deiliskipulagsbreyting – 2302044 Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 15. mars 2023 að auglýsa tillögu sem tekur til breytinga á skil- málum deiliskipulags frístundasvæðisins Kötluholts L224404 úr landi Tjarnar. Í breytingunni felst breyting á skilmálum innan greinargerðar deiliskipulagsins sem tekur til göngustíga, vatnsveitu og hitaveitu, sorphirðu og almennra byggingaskilmála. 2. Borg í Grímsnesi; Vesturbyggð; Ný byggð á reit ÍB2, I14 og I15; Deiliskipulag – 2210061 Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 15. mars 2023 að auglýsa tillögu nýs deiliskipu- lags sem tekur til fyrsta áfanga nýs íbúðarsvæðis að Borg í Grímsnesi. Skipulagssvæðið afmarkast af fyrirhuguðu miðsvæði í suðri og Skólabraut í austri. Mörk svæðisins til norðurs og vesturs liggja að ræktuðu landi innan marka landeigna í eigu sveitarfélagsins. Svæðið er innan íbúðarbyggðar (ÍB2) og iðnaðarsvæða fyrir skólphreinsistöðvar (I14 og I15) í aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. 3. Efri-Reykir L167080; Frístundabyggð; Deiliskipulag – 2209096 Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 15. mars 2023 að auglýsa tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til frístundabyggðar í landi Efri-Reykja L167080. Um er að ræða skipulagningu 26 frístundalóða á um 23 ha svæðið innan skipu- lagsreits F73 innan aðalskipulags Bláskógabyggðar. Stærðir lóða innan svæðisins eru á bilinu 6-8.000 fm og gert er ráð fyrir að nýtingarhlutfall lóða fari ekki umfram 0,03. Heimilt er að byggja sumarhús, gestahús allt að 40 fm og geymslu allt að 15 fm innan nýtingarhlutfalls. 4. Gásagustur í Holtamannaafrétti; Fjallasel; Deiliskipulag – 2203063 Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á fundi sínum þann 21. desember 2022 að auglýsa tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til fjallaselsins Gásagustar á Holtamannaafrétt. Í deiliskipulaginu er afmörkuð ein lóð fyrir mannvirki. Heimilt er að byggja 3 hús og getur heildar byggingarmagn verið allt að 300 m2. Gert er ráð fyrir gistingu í 2-3 skálum og að heimilt sé að vera með aðstöðu fyrir landvörð, upplýsingar og fræðslu um Friðland Þjórsárvera. Gisting getur verið fyrir 30 gesti. Heimilt er að nýta mannvirki allt árið. Núverandi mannvirki verða fjarlægð. Skipulagssvæðið er um 3,7 ha. 5. Efsti-Dalur 3 L199008; Breyttir skilmálar; Deiliskipulagsbreyting – 2301086 Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 15. febrúar 2023 að auglýsa tillögu sem tekur til breytinga á skilmálum deiliskipulags frístundasvæðis innan Efsta-Dals 3. Í breytingunni felst breyting á skilmálum þar sem gert er ráð fyrir að innan lóða verði heimilt að byggja eitt frístundahús, eitt aukahús og eitt garðhús innan nýtingarhlutfalls 0,03. Hámarksstærð aukahúss er 40 fm og garðhúss 15 fm. Eingöngu verði heimild fyrir tvö íveruhús á lóð. Samkvæmt 32. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst niðurstaða sveitarstjórnar vegna eftirfarandi aðalskipulagsbreytinga. 6. Austurey 1 (L167622) og 3 (L167623), breytt landnotkun, breytt vegstæði, aðalskipulagsbreyting – 2107015 Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 18. janúar 2023 tillögu aðalskipulagsbreytingar sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Bláskógabyggðar í landi Austureyjar 1 og 3 eftir auglýsingu. Í breytingunni felst að frístundalóðinni Eyrargötu 9 er breytt í svæði fyrir verslun og þjónustu. Hús er til staðar á lóðinni og hefur það verið leigt út fyrir gistingu. Einnig verður gerð breyting á aðkomuleið, Vagnbraut, auk annarra minniháttar breytinga á götum. 7. Laugarás; Þéttbýli og frístundabyggð; Aðalskipulagsbreyting – 2110095 Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 1. febrúar 2023 tillögu er varðar breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027. Breytingin tekur til þéttbýlisins í Laugarási og frístundabyggðar sem liggur að þéttbýlinu. Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofu- tíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is. Þá eru gögnin aðgengileg á heimasíðum sveitarfélaganna, www.asahreppur.is www.blaskogabyggd.is, www.floahreppur.is, www.gogg.is og www.skeidgnup.is. Mál 1-5 innan auglýsingar eru skipulagsmál í auglýsingu frá 23. mars 2023 með athugasemdafrest til og með 5. maí 2023. Mál 6-7 eru tilkynning um niðurstöðu sveitarstjórnar. Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu UTU Dalbraut 12, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is Vigfús Þór Hróbjartsson Skipulagsfulltrúi UTU Borgarstjórn Reykjavíkur hefur ákveðið að leggja niður Borgar- skjalasafn og láta Þjóðskjalasafnið frekar um að varðveita þau skjöl sem borgin ber ábyrgð á. Ákvörð- unin var tekin á grundvelli úttekt- ar sem unnin var af endurskoð- unarfyrirtækinu KPMG þar sem niðurstaðan var sú að þetta væri hagkvæmast fyrir borgina. Kostn- aður við rekstur Borgarskjalasafns eru um 170 milljónir á ári en í for- sendum KPMG er gengið út frá því að nauðsynlegt verði að finna safn- inu nýtt og stærra húsnæði á næstu árum og er það sá kostnaður sem borgin hyggst spara sér með þessari ráðstöfun. Engin önnur sjónarmið liggja til grundvallar. Það að leggja niður Borgarskjalasafn á ekki að leiða til neinna framfara. Skjala- stjórnun borgarinnar á ekki að batna og þjónusta við borgarbúa á ekki að batna. Raunar kemur hvergi fram í gögnum málsins neitt mat á því hvaða áhrif þessi aðgerð hefur á annað en útgjaldaliði borgarsjóðs. Meintur ávinningur af að leggja niður Borgarskjalasafn er eingöngu fjárhagslegur. Það á auðvitað að fara vel með peninga borgarbúa og því er ástæða til að skoða hvernig sú hlið málsins lítur út. Til að setja rekstrarkostnað Borgarskjalasafns í samhengi þá eru 170 milljónir um 10% af því sem kostar að reka skrifstofur mið- lægrar stjórnsýslu Reykjavíkur- borgar og um 0,1% af heildarút- gjöldum borgarinnar. Erfiðara er að meta hvað sparast við að sleppa framkvæmdum sem ekki er búið að skilgreina eða ákveða að ráð- ast í. Ein rót málsins mun vera að núverandi húsnæði Borgarskjala- safns hefur verið ráðstafað í annað en deildar meiningar eru um hvort nýtt húsnæði fyrir skjalasafnið þyrfti að vera ámóta stórt og nú er eða miklu stærra. Borgarskjala- vörður hefur sagt að ekki verði þörf á miklu stærra húsnæði vegna þess að viðbætur við skjalaforðann séu núorðið að mestu stafrænar. Hvern- ig sem á það er litið myndi þetta teljast yfirstíganlegt vandamál ef borgaryfirvöld litu á skjalavörslu sem mikilvæga kjarnastarfsemi. En, hvort sem möguleg útgjöld yrðu meiri eða minni, er hæpið að raun- verulegur sparnaður verði við að leggja niður Borgarskjalasafn. Ætlunin er að leggja niður Borgar- skjalasafn og fela Þjóðskjalasafni skjölin. Ekkert formlegt samtal virðist hafa átt sér stað og því liggur ekki fyrir hvernig þetta á að gerast. Lögum samkvæmt ber sveitarfélög- um að varðveita skjöl sem verða til í stjórnsýslu þeirra en þau geta valið hvort þau geyma slík skjöl sjálf eða fela þau Þjóðskjalasafni. Tuttugu héraðsskjalasöfn eru rekin á Íslandi, mörg í samstarfi samliggjandi sveitarfélaga, en nokkur sveitarfélög Lítið sparast af að leggja niður Borgarskjalasafn Orri Vésteinsson prófessor í forn- leifafræði við Háskóla Íslands senda skjöl sín á Þjóðskjalasafnið. Fyrir það greiða þau geymslugjald sem að sögn þjóðskjalavarðar er nú fremur lágt en hún telur einboðið að ef Þjóðskjalasafnið verður að taka við skjölum borgarinnar þá muni það gjald þurfa að hækka. Reykja- víkurborg er ein stærsta stjórnsýslu- eining landsins og augljóst að það verður umtalsverður kostnaðar- auki fyrir Þjóðskjalasafnið að taka við skjölum borgarinnar. Málið er fremur einfalt: umsýslukostnaður- inn af skjölunum hverfur ekki þó þau séu færð á milli stofnana. Þjóð- skjalasafnið hefur heimild til að rukka borgina um kostnaðinn og mun væntanlega gera það. Hver vegna ætti ríkið að niðurgreiða skjalavörslu stærsta sveitarfélags landsins þegar f lest önnur sjá um sín skjöl sjálf? Til viðbótar þeim skjölum sem borginni ber að varðveita lögum samkvæmt er á Borgarskjalasafni mikið af svokölluðum einka- skjölum. Það eru skjöl sem ekki er lagaskylda að varðveita en eru mikilvægar heimildir um borgina og sögu hennar. Þjóðskjalasafni ber ekki skylda til að taka við þessum skjölum og þó að hugmynd borgar- stjórnar virðist vera að einkaskjölin fari þangað, þá hefur líka heyrst að Borgarsögusafn gæti tekið við þeim. Hvernig sem það færi er augljóst að kostnaðurinn hverfur ekki – borgar- búar munu eftir sem áður greiða fyrir varðveislu þessara skjala. Það sem mögulega sparast með breyttu fyrirkomulagi verður á kostnað aðgengis og þjónustu: Þjóðskjala- safni er ekki skylt að veita Reyk- víkingum jafngóðan aðgang að skjölum sínum eins og þeir hafa nú í gegnum Borgarskjalasafn. Það er veigamesta breytingin sem verður: þjónustan versnar. n FréttaBLaðið skoðun 1323. mars 2023 FIMMTuDAGuR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.