Fréttablaðið - 23.03.2023, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 23.03.2023, Blaðsíða 30
Það er ekki typpið sem sér um alla vinnuna, því þetta snýst allt um tengingu og samskipti og hvernig sjálfsörygg- ið er í svefnherberginu. Eigandi kynlífstækjaversl- unarinnar Blush segir það af og frá að viðskiptavinir hennar sem fjárfesti í gervi- limum eða titrurum séu á höttunum eftir þeim sem séu hvað stærstir eða þykkastir. Því stærri, því betri, sé algeng mýta sem endurspegli ekki raunveruleikann. erlamaria@frettabladid.is „Þær konur eða einstaklingar með píkur sem hafa verið að kaupa sér titrara hjá mér hafa verið að velja sér töluvert minni eða grennri titrara en hefðbundin typpi,“ segir Gerður Huld Arinbjarnardóttir, eigandi kynlífstækjaverslunar- innar Blush. „Vinsælasti gervilimurinn hjá okkur til dæmis er tæplega fjórtán sentimetrar í innsetningarlengd og í takt við þessa venjulegu stærð af typpum. Það kemur eflaust mörg- um á óvart. Margir halda að allir vilji kaupa þykkustu og stærstu týpuna, en það er alls ekki þann- ig. Stærri er ekkert endilega alltaf betri,“ bætir hún við. Fréttablaðið greindi frá því í gær að samkvæmt rannsókn World- Data.com, gagnaútgáfu fyrir um 150 lönd, er meðalstærð typpa í heiminum 13,58 sentimetrar í fullri reisn. Karlmenn frá Ekva- dor státa af lengstu limunum, eða 17,61 sentimetra í fullri reisn að meðaltali. Karlmenn í Kambódíu reka limastærðarlestina, en þar er meðalstærðin 10,04 sentimetrar í fullri reisn. Athygli vekur að íslenskir limir eru ekki taldir með í mælingunni. Rannsóknir nauðsynlegar Spurð segir Gerður slíkar rann- sóknir nauðsynlegar. Þær gef i bæði karlmönnum og konum hug- mynd um raunverulega limastærð. Margir hafi óraunhæfar hugmynd- ir í þessum efnum sem grafi undan sjálfstrausti þeirra, þá sérstaklega í svefnherberginu. „Ég held að þetta sé á vissan hátt algjörlega frábært því það eru ef laust margir sem átta sig ekki á því að meðaltalið er miklu minna en f lestir halda. Ég held að það séu miklu f leiri sem eru með sautján sentimetra typpi og sem hugsi með sér: „Guð, ég er með svo lítið typpi,“ og fara með það hugarfar inn í kyn- lífið,“ segir hún. Að sögn Gerðar hefur verslun- inni í gegnum árin borist ógrynni skilaboða og spurninga frá karl- mönnum, sem margir hverjir séu að velta fyrir sér stærð lima. Sumir séu verulega áhyggjufullir og aðrir hafi jafnvel lýst því yfir að þeir séu að íhuga að grípa til róttækra aðgerða. „Þetta er alveg gríðarlegur fjöldi. Við höfum til dæmis fengið skila- boð þar sem stendur: „Typpið mitt er bara 13 sentimetrar, það er ekki nógu stórt og ég hef áhyggjur,“ og eru liggur við að gúggla að fara í skurðaðgerð,“ segir Gerður. Það sé gríðarlegt áhyggjuefni. „Þeir geta náttúrulega ekkert annað gert. Typpið er ekki vöðvi og því ekki hægt að fara í ræktina til að stækka það. Það virkar ekki þannig. Annars væru allir ber- rassaðir í World Class að lyfta með typpinu,“ bætir hún við. Gerður segir að með tilliti til þess hversu opinská umræðan um kynlíf sé orðin í þjóðfélaginu ættu f lestir að vera komnir á þann vagn að limastærð skipti ekki máli. Gott kynlíf byggi á f leiru en limnum einum saman. „Það er ekki typpið sem sér um alla vinnuna. Þetta snýst allt um tengingu og samskipti og hvernig sjálfsöryggið er í svefnherberginu,“ segir Gerður og heldur áfram: „Þú getur verið með risastórt typpi en alveg glataður í rúminu, en svo getur þú verið með typpi undir meðaltali, en staðið þig frá- bærlega. Það er metnaðurinn og sjálfsöryggið sem skiptir máli þar, ekki stærðin á typpinu,“ segir Gerður. n Vinsælasti gervilimurinn tæplega fjórtán sentimetrar Gerður Huld, eigandi Blush, segir vinsælustu titrarana og gervilimina í verslun sinni vera í takt við venjulega stærð á limum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI arnartomas@frettabladid.is Útr unnin dós af Oskars sur- strömming hefur verið að gera allt vitlaust á Facebook-hópnum Brask og brall – allt leyfilegt. Linnet Rík- harðsson, eigandi dósarinnar og braskari (og brallari), segir tilboðin hafa hrannast inn. „Það er búið að bjóða átta þús- und í hana,“ segir Linnet hlæjandi um dósina sem rann út árið 2018. „Ég er örugglega búinn að fá hund- rað skilaboð eða eitthvað.“ En af hverju í ósköpunum er fólk á höttunum eftir þessu? „Örugglega bara vegna þess að þetta er viðbjóður,“ útskýrir Linn et sem vill ekki gefa upp hvar honum áskotnaðist þessi dularfulla dós. „Hún er alveg að springa, hún er svo bólgin. Hún er búin að vera hérna í ein- hverja mánuði svo mér liggur ekk- ert á að láta hana frá mér.“ Oskars surströmming hefur lengi verið alræmd meðal netverja og á YouTube má finna ótal myndbönd af fólki víðs vegar um heim að kúg- ast og æla yfir þessum sérkennilega þjóðararfi Svía. Útrunnar dósir eru sérstaklega vinsælar í þessu sam- hengi þar sem viðbrögð fólks við ýldunni eru engu lík. Ógleymanlegur þáttur þar sem strákarnir í 70 mínútum létu reyna á sambærilega dós í ógeðisdrykk- inn hefur einmitt verið skjalfestur á YouTube en það er fátt fyndnara en að sjá viðkvæman maga Audda Blö bregðast við þessari torkenni- legu delikasíu. n Braskarar slást um dós af viðbjóði Dósina segir Linnet stokkbólgna. 22 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 23. mARs 2023 fiMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.