Fréttablaðið - 23.03.2023, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 23.03.2023, Blaðsíða 16
Jóhanna María Einarsdóttir jme @frettabladid.is Kristjana Björk á að eigin sögn í flóknu ástar-haturs- sambandi við tískuna. Hún gleymir því þó aldrei þegar söngkonan og átrúnaðargoð- ið Lizzo benti á hana og vin- konur hennar á tónleikum í London og hrósaði þeim fyrir klæðnaðinn. Kristjana Björk Barðdal er öflug ung kona sem starfar við hugbún- aðarþróun hjá Reykjavíkurborg, sinnir meistaranámi í iðnaðarverk- fræði, starfrækir tæknihlaðvarp, situr í stjórn tæknifélagsins Ský, sat í stjórn Ungra athafnakvenna og stofnsetti Reboot Hack ásamt bekkjarsystrum sínum úr tölvunar- fræðinni. Hún talar mikið opinber- lega um tækni, nýsköpun og jafn- rétti. „Ég og vinir mínir myndum frekar einblína á þessar hliðar á mér en ég hef samt líka mjög lúmskan áhuga á tísku.“ Kristjana segist ekki fylgja tísku- straumunum og finnst erfitt að gera eins og allir aðrir. „Ætli ég sé ekki of mikill uppreisnarseggur til þess,“ spyr hún. „Það er jafnvel vottur af athyglissýki í því hvernig ég klæði mig. Falleg föt geta gert rosalega mikið fyrir mann og ef ég er ekki vel stemmd þá hjálpar það mér að gera mig til. Fólk talar um að klæða á sig endorfínið og það að brosa hefur raunveruleg áhrif á hvernig þér líður andlega,“ segir Kristjana. Átrúnaðargoðið tók eftir okkur Kristjana er hrifin af skærum appelsínugulum lit og á nokkrar þannig flíkur. „Nýjasta bættist við safnið úti í Londonþegar ég fór með vinkonum mínum á Lizzo- tónleika. Lizzo, sem er bandarísk, svört og feit söngkona, er svo mikil fyrirmynd og syngur um þetta í sínum lögum. Við vorum að versla í Notting Hill og ég sá þennan geggjaða appelsínugula loðjakka í búðarglugga. Við enduðum allar á að kaupa okkur litríkan pels og mættum í þeim á tónleikana í von um að Lizzo myndi sjá okkur. Við vöktum þvílíka lukku í neðan- jarðarlestinni og á tónleikunum benti Lizzo á okkur og sagði: „Hey, you look good guys!“ Ég er þó með nokkuð blendnar tilfinningar gagnvart tísku. Ég elska hana og hata. Mér finnst frábært hvernig hún getur látið manni líða eins og bestu útgáfunni af sjálfum sér og gerir minn- ingar eftirminnilegri. Eins og appelsínugul dragt í giftingu bestu vin- konu þinnar, fallegur útskriftar kjóll eða loð- pels á tónleikum. En á sama tíma getur hún magnað upp augna- blikin þegar þér líður hvað verst með sjálfa þig, í þröngum og heitum mátunarklefa með ömurlegri lýsingu að máta sundföt sem passa illa.“ Flókið samband við tískuna „Tískan flokkar okkur svo óþarflega mikið niður í box eftir stærðum. Það flókna við föt fyrir fólk í stærri stærðum er að flíkurnar eru oft hannaðar á manneskju í minnstu stærð og skalaðar upp. Því eru flíkurnar oft í mjög röngum hlut- föllum. Ég þjáist svo af því hvim- leiða fyrsta heims vandamáli að vera minna feit en gert er ráð fyrir í stærri stærðum og þá verður enn flóknara að finna föt sem passa því ég lendi á milli „plus size“ og „hefð- bundinna stærða“. Vel hægt að vera bæði heit og feit Vinkonurnar vöktu mikla lukku í loðpelsunum í London. Grænu töskuna keypti Kristjana á sama tíma og paraði við jakkann. Fréttablaðið/Valli Það var mjög krefjandi fyrst þegar ég byrjaði að nota orðið „feit“ á hlutlausan máta. En það er bara ekkert annað orð sem lýsir þessu betur. Kristjana Björk Ég man þegar ég var að versla í London þegar ég var grennri. Ég hafði mun meira val en í dag og það var ógeðslega gaman. Ég gat valið að kaupa það sem fór mér vel, en í dag er það ekki alltaf í boði. Þegar ég fór til Bandaríkjanna í fyrra mátaði ég fullt af galla- buxum. Það voru bara tvennar sem pössuðu og ég neyddist til að velja aðrar þeirra því mig vantaði buxur. Ég vildi svo að ég gæti gert meiri kröfur. Mér finnst ótrúlega gaman að finna fallega flík, en það er dýpra á því fyrir mig og því er ég oft í fötum sem eru til dæmis of þröng um handleggina. Ég tengi mikið við þetta meme: „Þegar þú ferð með vinkonum þínum að versla föt og endar á því að skoða bara fylgihlutina,“ og hef minnk- að fatakaup mikið eftir að ég varð feit. Ég tek mér lengri tíma á milli verslunarferða og lendi mun oftar í því að „klára“ fötin mín. Ég vildi líka óska að ég gæti keypt meira notað, en það er sérstaklega erfitt að finna föt í minni stærð í þannig búðum. Ég reyni að sneiða hjá hraðtísku en það er meira en að segja það. Til dæmis get ég bara átt buxur í mest hálft ár áður en þær rifna og slitna á lærunum. Það skiptir ekki máli hversu dýrar eða ódýrar þær voru. Og þegar þú ert komin í dýrari merki minnkar úrvalið til muna. Þá þarf að velja á milli þess að vera eins og allir aðrir eða að kaupa hraðtísku. Ég hef verið að skoða íslenska hönnuði sem hanna fyrir feitar konur eins og mig og þar er Brá verslun til algerrar fyrirmynd- ar. Hún notar líka módel í stærri stærðum til að sýna fötin. Þetta er eina merkið hér á landi sem ég hef algerlega fundið mig í. Ég horfi mikið til mömmu í fatavali og elska hreyfingu í fötum, þegar þau eru síð, f læðandi og elegant. Ég er lítið í kjólum og pilsum en sæki í samfestinga og svo elska ég dragtir. Stundum er ég eiginlega aðeins of mikið „business casual“ og fæ aldrei nóg af „bleiserum“,“ segir Kristjana og hlær. „Ég á dragtar- jakka í öllum regnbogans litum og nota þá mjög mikið,“ segir hún. Feitur og sterkur líkami „Ég sæki í fyrirmyndir sem láta mér líða vel með sjálfa mig og hætti hiklaust að fylgjast með þeim sem gera það ekki. Ég mæli með Írisi Svövu, Fanneyju Dóru, Silju Björk og Helgu Margréti og er þakklát fyrir að þær hjálpa mér að taka af skarið þegar ég þori ekki. Mér finnst kraftlyftinga- konan Hulda Waage líka ótrúlega flott. Það er ekki endilega sama- semmerki á milli þess að hreyfa sig og að vera grannur. Við eigum öll einstaka sögu og erum eins og við erum af svo mörgum ólíkum ástæðum. Holdafarið skiptir ekki máli svo lengi sem manni líður vel á líkama og sál. Það tók mig líka tíma að læra að hreyfa mig á réttum forsendum. Og það var ekki fyrr en í faraldr- inum sem ég skipti loks út ræktar- fötum frá því 2013 fyrir ræktarföt sem uppfylla kröfur feits fólks. Við erum öll svo ótrúlega mis- munandi og ég elska hvað minn feiti líkami er sterkur og gerir mér kleift að vinna með miklar þyngdir í ræktinni.“ Feit er bara fallegt lýsingarorð Kristjana segir það hafa verið áskorun að taka nýjan líkama og lýsingarorðin sem honum lýsa í sátt. „Það var mjög krefjandi fyrst þegar ég byrjaði að nota orðið „feit“ á hlutlausan máta. En það er bara ekkert annað orð sem lýsir þessu betur. Við erum feit og við erum grönn og það er mikilvægt að geta talað opinskátt um þetta og deila okkar upplifun með öðrum. Kristjana segir að það að sýna feitan líkama geti jafnvel orðið að pólitískum gjörningi. „Ég birti mynd á af mér Instagram í sund- fötum og uppskar tvöfalt fleiri „læk“ heldur en grannar vinkonur mínar sem hafa birt sams konar myndir. Það er eiginlega pínu fyndið því ég hef aldrei fengið jafnmarga þumla á eina mynd. Ég upplifði að ég væri jafnvel hugrökk að þora að sýna hvernig ég liti út. En það skiptir svo miklu máli að við sjáum fólk af öllum stærðum og gerðum. Í myndalýsingunni skrifaði ég að ég væri „feit að gellast“ og í athugasemdunum breytti einhver orðinu „feit“ í „heit“. En málið er að við erum mötuð á því að það að vera feitur sé það sama og vera ljótur eða illur. Vondu kallarnir í teiknimyndunum eru alltaf feitir og dökkir en það er fáránlegt að það sé sett samasemmerki þarna á milli. Ég vil meina að „feit“ sé bara lýsingarorð eins og hvert annað. Það er vel hægt að vera bæði feitur og heitur og það er ekki móðgun við mig ef aðrir nota það um mig. Það eru auðvitað ekki öll sem tengja við þetta orð og það er líka allt í lagi.“ n Kristjana tók að sér veislustjórahlut- verkið í veislu vinkonu sinnar þegar veislu- stjórinn forfallaðist. Appelsínugula dragtin setti punktinn yfir i-ið. 4 kynningarblað A L LT 23. mars 2023 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.