Fréttablaðið - 23.03.2023, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 23.03.2023, Blaðsíða 6
Icelandair er bjartsýnt á farsæla útkomu í losunar- deilunni. Landvernd segir afstöðu ESB skynsamlega. Bréf Ursulu loks birt. bth@frettabladid.is loftslagsmál „Viðhorf ESB koma ekki á óvart,“ segir Auður Önnu Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar. „Þetta eru eðlileg við- brögð og fyrirséð. Mér finnst mjög vandræðalegt að íslensk stjórnvöld hafi reynt að fá þessa sérmeðferð.“ Í svarbréfi Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB, við bréfi Katrínar Jakobsdóttur for- sætisráðherra segir að sumar óskir íslenskra stjórnvalda um að litið verði til sérstöðu vegna losunar- skatta af millilandaflugi, sem gætu hækkað mjög innan tíðar, séu ekki í samræmi við evrópska löggjöf. Hagsmunir eru í málinu fyrir íslensk f lugfélög, Kef lavíkurf lug- völl og íslenska ferðaþjónustu. Ekki liggur fyrir hve mikið verð hvers flugmiða gæti hækkað eða hvenær breytingin verður. Millilendinga- módel íslensku f lugfélaganna í Keflavík gæti orðið illa úti vegna skattahækkunarinnar. „Icelandair styður stjórnvöld í þeirra baráttu til að tryggja nauð- synlegar undanþágur. Við erum vongóð um að ásættanleg niður- staða fáist,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Ursula minnir í bréfi sínu á að við- skiptakerfi með losunarheimildir af flugi hafi verið komið á árið 2012 og aðeins verði gerðar smávægilegar breytingar á fyrri stefnu í landfræði- legu tilliti. Tilgangur aðgerðanna sé að draga úr losun gróðurhúsaloft- tegunda. Rök íslenskra stjórnvalda og for- ráðamanna f lugfélaganna hafa verið að losun minnki ekki endilega vegna breytinganna. Hún gæti færst til eða farið á nýjar hendur. Hætta sé á að félög sem ekki eru bundin af losunarsköttum hagnist. Vísað hefur verið til þeirrar sér- stöðu að Íslendingar geti ekki tekið lest eða strætó út í heim en Land- vernd segir að Ísland eigi að greiða losunargjöldin án afsláttar. „Við erum mjög ríkt land og þurfum að gera okkar í loftslags- málum eins og aðrir,“ segir Auður. „Að reyna að komast undan losun í ETS-kerfinu er í ósamræmi við stefnu stjórnvalda. Stjórnvöld tala tveimur tungum,“ bætir Auður við. „Áætlun Isavia um gríðarlega aukn- ingu ferðamanna er ekki í samræmi við loftslagsmál. Við þurfum að fá ferðamenn til að stoppa lengur.“ Ekki fengust viðbrögð frá Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra. Allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru einhuga um baráttu Íslands. Fram kom hjá Bjarna Benedikts- syni fjármálaráðherra í umræðum á Alþingi nýverið að það gæti haft tvísýnar afleiðingar ef Íslendingar kjósa að beita neitunarvaldi í EES- nefndinni. Sérfræðingur í Evrópu- rétti hefur einnig varað við því. Forsætisráðuneytið hafði áður synjað ósk blaðsins um afrit af bréfi Ursulu. Fréttablaðið kærði synjunina til úrskurðarnefndar um upplýsinga- mál. Ráðuneytið leitaði ráðgjafar hjá ESB. Niðurstaðan varð að Frétta- blaðið fékk afrit af bréfinu og hefur því afstaða forseta framkvæmda- stjórnar ESB nú komið fyrir sjónir almennings í þessu risavaxna deilu- máli. n Tíu börn bíða eftir meðferð í Barnahúsi. Við erum vongóð um að ásættanleg niður- staða fáist. Bogi Nils Bogason, for- stjóri Icelandair Að reyna að komast undan losun í ETS- kerfinu er í ósamræmi við stefnu stjórnvalda. Stjórnvöld tala tveimur tungum. Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmda- stjóri Land- verndar Guðjón Sigurbjartsson framkvæmdastjóri HEI 11:05 Medical Park sjúkrahúsin Sema Gúnn verkefnisstjóri á Medical Park Magaermi á Medical Park í Istanbul Pakkaverð um 500.000 kr. Frír kynningarfundur laugardaginn 25. mars 2023 kl. 11:00 í Hátúni 10. Læknir og verkefnisstjóri Medical Park kynna spítalann og ýmsar aðgerðir fyrir áhugasömum. Próf. Dr. Aziz Súmer skurðlæknir á Medical Park 12:00 Léttur hádegisverður 11:30 Magaermi og fleira Óformlegt spjall og viðtöl við lækni og aðra fram yfir hádegi. Skráning og nánari upplýsingar: hei.is/mpk 11:00 Opnun Tilraunir stjórnvalda gangi þvert gegn yfirlýstri stefnu Forstjóri Icelandair segist enn bjartsýnn á að tekið verði tillit til óska Íslendinga í losunardeilunni. Fréttablaðið/Ernir bth@frettabladid.is Heilbrigðismál Janus Guðlaugs- son, doktor í íþrótta- og heilsu- fræðum, sem starfrækir fyrirtækið Janus heilsuef ling sem þjónustar eldri borgara í sjö sveitarfélögum, segir að hægt sé að snúa hægfara vöðvarýrnun aldraðra, sem fjallað var um í Fréttablaðinu í gær, til betri vegar. „Það gerist í kringum fertugt að vöðvamassinn fer að rýrna,“ segir Janus. „Þegar á efri árum, um og yfir sextugt, getur skapast margvís- legur heilsufarsvandi. Heilbrigðis- kerfinu í dag hættir því miður til að taka í fóstur langvarandi sjúkdóma í stað þess að bregðast við þeim með heilsutengdum forvörnum. Með markvissum forvörnum, meðal annars styrktarþjálfun og fræðslu, má koma í veg fyrir ótímabæra vöðvarýrnun. Slíkt getur hægt á för eldri borgara inn á hjúkrunar- heimilin en um leið lengt sjálfstæða búsetu. Ávinningurinn verður bætt heilsa hinna eldri og minni kostn- aður fyrir ríki og sveitarfélög.“ Janus segir að með markvissri styrktarþjálfun og réttri prótein- ríkri næringu megi snúa þessu ferli til betri vegar. „Við erum að sjá þetta gerast í okkar heilsutengda verkefni, að vöðvamassinn eykst og vöðva- styrkurinn einnig. Samhliða þessu og bættri hreyfigetu sjáum við hjá okkar þátttakendum lífsgæðin vera að aukast þrátt fyrir hækkandi aldur. Próteinríka næringin og mark- vissa styrktarþjálfunin er lykill að því að vinna það til baka sem tapast hefur,“ segir Janus. n Hægt að snúa vöðvarýrnun við Janus Guðlaugs- son, doktor í íþrótta- og heilsufræðum benediktboas@frettabladid.is Heilbrigðismál Alls bíða 104 börn eftir þjónustu Heilsuskólans og er meðalbiðtími 17 mánuðir. Þá hafa 80 börn beðið lengur en þrjá mánuði. Heilsuskólinn þjónar öllu landinu og aðstoðar börn og fjöl- skyldur þeirra sem eru of feit. Þetta er meðal þess sem kemur fram í upplýsingum sem Umboðsmaður barna hefur safnað Í febrúar biðu 105 börn eftir þjón- ustu göngudeildar BUGL, þar af 50 sem tilheyra transteyminu. Meðal- biðtími var rúmt hálft ár og höfðu 76 börn beðið lengur en þrjá mán- uði. Þar að auki biðu níu börn eftir átröskunarmeðferð. Samkvæmt tölunum bíða tíu börn eftir meðferð í Barnahúsi og er meðalbiðtími 85 til 95 dagar. Sjö hafa beðið lengur en þrjá mánuði. Hjá sýslumanninum á höfuðborg- arsvæðinu kom í ljós að í febrúar biðu 175 mál meðferðar sýslumanns á grundvelli barnalaga og hjúskap- arlaga og hefur þeim fækkað frá því í september síðastliðnum. Þá biðu 244 mál meðferðar. Meðalbiðtími þessara mála hefur þó lengst um þrjá mánuði. Hann er nú 3,5 mánuðir en var hálfur mán- uður í september. Þá segir að fjöldi mála þar sem börn eiga í hlut og beðið er sátta- meðferðar hjá sýslumönnum á öllu landinu hafi aukist umtalsvert og bíða nú 58 mál en það voru aðeins sex mál sem biðu eftir sáttameðferð í september. n Yfir hundrað of feit börn á biðlista Krakkar bíða eftir þjónustu hvar sem hana er að finna. Fréttablaðið/Ernir 6 fréTTir FRÉTTABLAÐIÐ 23. mARs 2023 fiMMTUDAGUr

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.