Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.03.2023, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 23.03.2023, Qupperneq 10
Útgáfufélag: Torg ehf. Stjórnarformaður: Helgi Magnússon forStjóri og Útgefandi: Jón Þórisson ritStjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is aðStoðarritStjóri: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is fréttaStjóri: Lovísa Arnardóttir lovisa@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út fimm daga í viku og hægt er að nálgast það ókeypis á 250 fjölförnum stöðum á höfuðborgarsvæðinu, á Suðurnesjum, Árborg, Ölfusi, Akranesi, Borgarnesi, Akureyri og víðar. Að auki er blaðið aðgengilegt í pdf-formi og í appi. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 fréttaBlaðið Kalkofnsvegur 2, 101 reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is. VefStjóri: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is marKaðurinn: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is HelgarBlað: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is menning: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is Íþróttir: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is halldór Frá degi til dags Mark- miðum um umbætur í neytenda- vernd verður ekki náð nema með náinni og góðri samvinnu stjórnvalda og Neyt- endasam- takanna. Nú eru báðir flokkarnir í bónda- beygju Vinstri grænna. Og láta sér vel líka. Sigmundur Ernir Rúnarsson ser @frettabladid.is gar@frettabladid.is Váleg tíðindi Vinsældir Seðlabankans tóku í gærmorgun tólfta kippinn niður á við í röð þegar bankinn sagði frá ákvörðun um að hækka stýrivexti enn eina ferð- ina, að þessu sinni um heila pró- sentu sem var umfram svart- sýnar spár greiningardeilda og allra handa spámiðla með innsýn í þróun efnahagsmála í bráð og lengd. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og áður en komið var hádegi hafði seðla- bankafólki – með seðlabanka- stjórann í miðju skotskífunnar – verið bölvað í sand og ösku og óskað norður og niður alls staðar á byggðu bóli milli sjávar og sveita, fjalls og fjöru. Svo skal böl bæta Strax í kjölfar formælinganna hófst mannskapurinn síðan handa við að benda hver á annan í leit að rót þessa vanda sem endurspeglast í því að hér er – öllum að óvörum að því er virðist – allt í fokkings fokki þótt fiskurinn seljist úr landi sem aldrei fyrr, ál streymi í stríðum straumum til óþreyju- fullra kaupenda á meginlandi Evrópu og erlendir ferðamenn sprangi hér hver um annan þveran um hæðir og hóla, spreðandi evrum og dollurum í allar áttir. Eitt eru þó allir sammála um, ástandið er ekki þeirra sök heldur einhverra annarra sem gera allt vitlaust enda vita þeir ekkert í sinn haus. n Orkuskiptin á Íslandi sem þurfa að fara fram á næstu árum eru svo erfið fyrir íslenska pólitík að lítið sem ekkert mun gerast fyrir auglýst tímamörk. Ástæðuna má rekja til þess að ríkisstjórn landsmanna glímir við grænan ótta, en þau fimm ár sem hún hefur setið að völdum hefur svo til ekkert verið aðhafst í virkjanagerð hér á landi. Öðruvísi manni áður brá á vakt hinna virku Sjálfstæðismanna sem í slagtogi með Fram- sóknarflokki hafa verið ófeimnir við að sökkva stórum hluta af heiðarlöndunum upp til öræfa. En nú eru báðir flokkarnir í bóndabeygju Vinstri grænna. Og láta sér vel líka, stæra sig af því að hafa skrifað heila grænbók þar sem þremur virkjanakostum, einkum þó fyrir vindorku, hefur verið hnikað úr biðflokki í nýtingarflokk. Að öðru leyti hefur ekkert gerst í grænni orkuuppbyggingu í hálfan áratug – og líklega mun svo verða um ókomin ár. Á meðan er innflutt olían keyrð um nálega þúsund kílómetra leið frá höfuðborginni austur á firði til að kynda fiskvinnsluna þar um slóðir. Það fæst engin raforka í pródúktið. Og eins eru áform uppi um að nota innflutt gas til að kynda fyrirtæki vestur í Súðavík sem er að fara að þurrka kalkþörunga til að nota í fóður- bæti og hollustuvörur. Raforkan er uppseld á Íslandi. Og það er vegna þess að það er ekkert plan. Og það hefur ekki verið neitt plan. Fyrir röskum fimm árum var Búrfellsvirkjun 2 tekin í gagnið, en það er síðasta vatnsafls- virkjunin sem komst í gagnið hér á landi. Þar á undan var Búðarhálsi stungið í samband, fyrir nálega áratug. Aðdragandinn að báðum þessum virkjunum á Þjórsársvæðinu var hálfur annar áratugur. Það segir landsmönnum allt um það hvað langt verður í næstu vatnsaflsvirkjun á þessu svæði, en þar hefur Hvammsvirkjun verið nefnd til sögunnar. Leyfi hefur raunar fengist til að stækka Þeistareyki austan Lambafjalla á löndum norður, en ekkert er vitað hvenær af framhalds- framkvæmdum verður á þeim slóðum. Nú er það alls ekki svo að virkja eigi allar sprænur landsins til að mæta markmiðum stjórnvalda um orkuskipti. Þar er langur vegur frá. Grundvallarreglan í þeim efnum á að vera sú að náttúran njóti vafans, enda er hún á meðal mestu þjóðarauðlinda landsmanna – og þeim ættliðum sem nú lifa er skylt að hlúa að henni í hvívetna fyrir þær kynslóðir sem á eftir koma. En það er umhugsunarefni að orkuskiptin á Íslandi fari nú í öfuga átt. n Grænn ótti Í 70 ár hafa Neytendasamtökin unnið einarðlega í þágu neytenda á Íslandi. Fjölmargt hefur breyst á þessum tíma og hafa Neytendasamtökin gegnt mikilvægu hlutverki sem áhrifaafl í þágu bættrar neytendaverndar. Ég vil nýta þetta tækifæri og óska Neytendasamtökunum innilega til hamingju með stórafmælið sem haldið er sérstaklega upp á í dag. Samstaða er mikilvæg Það er brýnt að við stöndum saman vaktina í neytendamálum, ekki síst í ljósi þeirrar verðbólgu- þróunar sem hefur átt sér stað á undanförnum misserum. Neytendamál eru sígilt viðfangsefni og alltaf er rými til að gera betur. Á kjörtímabilinu gerum við ráð fyrir metnaðarfullum umbótum á sviði neytendaverndar. Í menningar- og viðskipta- ráðuneytinu stendur nú yfir vinna við heildar- endurskoðun á stofnanaumgjörð og nokkrum af mikilvægustu lagabálkum á sviði neytendaverndar ásamt vinnu við stefnumótun í neytendamálum. Liður í því er að styðja betur við starf Neytendasam- takanna en með nýjum samningi voru framlög til þeirra aukin. Ég tel mikilvægt að stjórnvöld haldi áfram á þeirri braut með hagsmuni neytenda að leiðarljósi. Samvinna er mikilvæg Markmiðum um umbætur í neytendavernd verður ekki náð nema með náinni og góðri samvinnu stjórnvalda og Neytendasamtakanna. Það er gríðar- lega mikilvægt fyrir þjóðfélagið að halda verðbólgu í skefjum og það verkefni þarf að nálgast úr ýmsum áttum. Ég hef þá bjargföstu trú að árangur náist þegar við öll leggjumst saman á árarnar og róum í sömu átt. Það er til að mynda mikilvægt að neyt- endur séu á tánum gagnvart verðlagningu á vöru og þjónustu og fyrirtæki hækki ekki verð umfram það sem eðlilegt getur talist. Slíkt skiptir máli fyrir lífs- kjörin í okkar góða landi. Það er mín von að Neytendasamtökin haldi áfram að vera það frumkvæðisafl í neytendamálum sem samtökin hafa verið og haldi atvinnurekendum og stjórnvöldum við efnið til langrar framtíðar. n Á vaktinni í sjötíu ár Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra og varaformaður Framsóknar 10 skoðun FRÉTTABLAÐIÐ 23. mARs 2023 FIMMTuDAGuR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.