Fréttablaðið - 23.03.2023, Page 14
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Katla fermist borgaralega í
Hörpunni 15. apríl og er farin að
telja niður dagana.
Eitt af því sem skiptir þær miklu
máli er að láta ljós sitt skína á
stóra deginum, vera góðar fyrir-
myndir og svo ætla þær að klæðast
íslenskri hönnun sem þær halda
mikið upp á. Mæðgurnar eru afar
samrýndar og langar að vera í stíl
á fermingardaginn og jafnvel gera
eitthvað táknrænt, eiga flík eða
fylgihlut sem tengir þær saman og
minnir á daginn.
Stóri dagurinn er mikilvægur
hjá Kötlu og undirbúningur hefur
gengið vel. Katla ætlar að taka
virkan þátt í veislunni og þær
mæðgur hafa skýra sýn á það
hvernig þær langar að hafa daginn
í heild sinni. „Ég hlakka mikið til
athafnarinnar og að hitta og sjá
alla ættingja mína í veislunni en ég
hef ákveðið að syngja í fermingar-
veislunni,“ segir Katla en hún er
einnig í leiklistarskóla og því búin
að æfa sig að koma fram.
Hvað þýðir ferming fyrir þig?
„Hátíð til þess að „selebreita“ lífi
einhvers,“ segir Katla.
Katla og vinkonur hennar tala
mikið um hvernig fermingarfötum
þær ætla að vera í og hvernig litir
eiga að vera í þeim. En Katla er
ákveðin að vera í íslenskri hönnun.
„Mig langar að vera í litríkri og
fallegri flík og við mamma erum
búnar að velja okkar hönnuð, Sif
Benedictu. Efnin eru öll unnin úr
náttúrulegum og efnum og svo eru
flíkurnar svo klassískar. Það er svo
eigulegt.“
Katla er ekki búin að ákveða
hvaða litaþema hún vill hafa.
„Veislan verður í Þjóðleikhús-
kjallaranum, þar eru svo miklir
litir og er grunnliturinn rauður.
Við mamma, sem er sviðshönn-
uður, erum að vinna með liti sem
passa við það. Ég hef ekki miklar
áhyggjur af skreytingum, salurinn
skreytir sig svolítið sjálfur.“
Hún er stressuðust yfir því ef for-
eldrar hennar muni halda ræðu og
að það verði vandræðalegt vegna
þess að mamma hennar er alltaf
svo væmin. „Öllu öðru en ræðunni
hennar mömmu er ég rosa spennt
fyrir,“ segir Katla.
Kötlu langar til að hafa leiki í
veislunni sinni sem allir geta tekið
þátt í. „Það verður myndakassi
á staðnum sem ég ætla að útbúa
sjálf með minni eigin myndavél og
standi sem ég á fyrir myndavélina,“
segir hún og er á því að þannig geti
hún líka varðveitt minningarnar
um gestina í veislunni og útbúið
myndræna gestabók.
Glæsilegur samfestingur við hvíta strigaskó.
Mæðgurnar stilla sér upp fyrir myndatöku. Litagleðin fangar augað. Hönn-
uður er Halldóra Sif og Sunna Björk sá um förðun.
Fylgihlutir eru stór partur af heildarsamsetningunni.
Hugmyndin var að gera fallega handtösku sem gæti til
að mynda erfst milli móður og dóttur.
Katla er ekkert hrædd við liti og notar þá ópart.Það er sko allt í lagi að bregða á leik. MyndiR/nAtALiE KUBiAK
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
„Ferming er áþreifanleg athöfn
sem fagnar ákveðnum þroska
– lífið er svolítið: fyrir og eftir
fermingu,“ segir Drífa og bætir
við að hún hafi notið þess tíma
sem þær mæðgurnar eru búnar að
verja saman í undirbúningnum.
„Varðandi veitingarnar í veislunni
langar mig mikið til að við eldum
eitthvað ljúffengt saman,“ segir
Drífa og bætir við að hún sé ekki
búin að ræða það við fermingar-
barnið. „Ég vona svo sannarlega að
Katla taki vel í það, ferming er dýr
og okkur langar vera fyrirmyndir
og gera sem mest sjálfar.“
Fallegt samband mæðgna
Halldóra Sif er hönnuðurinn bak
við Sif Benedicta vörulínuna og
segir að línan hafi alltaf snúist um
það að gera fylgihluti og flíkur sem
eru litríkar og gleðja augað. „Efnis-
val er ætíð úr náttúrulegum vönd-
uðum efnum og eða endurunnum
efnum. Hönnunin er klassísk en
um leið eitthvað sem vekur upp
nostalgískar tilfinningar. Hug-
myndin var að gera fallega hand-
tösku sem gæti til að mynda erfst
milli móður og dóttur. Þess vegna
fannst okkur svo gaman að mynda
Kötlu og móður hennar, Drífu, sem
sýnir einstaklega fallegt sam-
band á milli móður og dóttur.
Þær eru miklar vinkonur og
treysta hvor á aðra sem mér
finnst svo fallegt,“ segir Hall-
dóra Sif og bætir við að það
hafi verið upplifun að fylgjast
með þeim máta flíkur saman
og finna sinn persónulega stíl. n
Klassísk og
vönduð hönnun
þar sem litirnir fá
að njóta sín.
Ég hlakka mikið til
athafnarinnar og
að hitta og sjá alla ætt-
ingja mína í veislunni en
ég hef ákveðið að syngja í
fermingarveislunni.
Katla Líf Drífu-Louisdóttir
2 kynningarblað A L LT 23. mars 2023 FIMMTUDAGUR