Arkitektúr og skipulag - 01.12.1988, Síða 66
Hér fer á eftir samanburðartafla meðalgilda allra mælinga :
Dagsetning mælinga Meðalgildi Robur A Meðalgildi ísl.Portland Mismunur %
10.12.1980 6,4% 7,7% 20,3%
16.6.1981 5,3% 6,3% 18,86%
24.5.1983 4,7% 5,6% 19,14%
21.8.1985 4,27% 5,35% 25,29%
4.6.1987 3,97% 4,6% 15,86%
27.5.1988 4,07% 4,9% 20,39%
Þegar þetta er skoðað í heild lítur út fyrir að um smáfrávik
sé að ræða í mælingum þann 27.5.88 en getur þó verið eðli-
legt. Einnig virðist þetta renna stoðum undir þá ályktun að ís-
lenska portlandsementið sé rakaheldnara en hollenska há-
ofnasementið.
Þá benda þessar athuganir til hærra rakastigs hjá íslenska
sementinu en fram kemur í riti Rb. nr. 54 - Rannsóknir á
áhrifum kísilryks á eiginleika sements og steinsteypu - höf-
undar Haraldur Ásgeirsson, Hákon Ólafsson og Ríkharður
Kristjánsson, verkfræðingar, línurit 7.2 á blaðsíðu 27. Par er
íslenskt portlandsement+7,5% kísilryk gefið upp með 5%
raka í steypu eftir 7 mánuði. Það tók um það bil 6 ár frá því
að steypt var, til þess að steypan í stoðveggnum væri komin í
ca. 5% raka. Átján mánaða gömul var hún komin í 6,3% en
þá fór fram fyrsta samanburðarmæling.
Þegar steypan var blönduð má ætla að vatnsinnihald hennar
hafi verið 8 til 8,5%. Þessi tala er ákveðin að líkum en sigmál
steypunnar var yfirleitt 6-9 cm. Sigmál var tekið í bflskúrs-
veggnum og var 6,5 cm. Meðaltals sigmál í öllum húsunum
var 7,12 cm, sýnafjöldi var 55.
í riti Rb. nr. 26 - Styrkleiki steinsteypu - eftir Guðmund
Böðvarsson, verkfræðing, er gefið samhengi sigmáls og vatns-
sementstölu fyrir Rauðamelsefni. Samkvæmt því línuriti,
mynd 38 bls. 55, hefði v/s hlutfall steypunnar miðað við upp-
gefið sigmál verið 0,56, eða 196 1 af vatni í rúmmetra. Meðal-
þungi vigtaðra sýna var 2327 kg pr. rúmmetra. Samkvæmt því
hefði upphaflegt rakahlutfall við þyngd steypunnar verið
8,4%, reynslutala steypuframleiðandans er um það bil 188-190
lítrar í rúmmetra eða 8,1%, en þá er um að ræða verulega
íblöndun af Björgunarefni. Það má því teljast eðlilegt að
álykta að rakahlutfall steypunnar hafi í byrjun verið 8 til
8,5%.
Við mælingarnar notuðu Rb.-menn rafrakamæli - Protio-
meter Concrete-master - og eru tölur þeirra leiðréttar með til-
liti til hitastigs.
Eins og áður sagði bendir þessi athugun til mun meiri raka-
heldni hjá íslenska portlandsementinu en áður var talið
í áður áminnstu riti Rb. nr. 54 segir svo á bls. 24: „Raka-
magn steypunnar er ráðandi þáttur þegar veðrunarþol steypu
er annars vegar og því var hér um mikilvægan eðliseiginleika
að ræða. Það er jú alkunna að þurr steypa getur ekki orðið
fyrir frostskemmdum og hitt er einnig þekkt að besta steypa
molnar niður í frosti ef okkur tekst að fylla allt holrými henn-
ar með vatni.“
Þegar litið er til þessara alkunnu sanninda og að gerðri
þessari athugun virðist það ljóst að gera þurfi frekari og víð-
tækari samanburðarrannsóknir á íslenska sementinu, um fleiri
eigindi en brotstyrk. En hann hefur verið það hár að sementið
hefur reynst steypuframleiðendum vel þegar aðeins er um
brotþolsskilgreiningu að ræða við steypupöntun, t.d. S.250,
S.3oo o.s.frv., en algengt er að verkfræðingar láti þá skil-
greiningu nægja um steypu. Enda má segja að brotþol steyp-
unnar sé eini þáttur hennar sem tekinn er inn í burðarþolsút-
reikningana.
Til samanburðar tel eg rétt að láta fylgja hér efnagreiningu
hollenska portland-háofnasementsins sem notað var. Um er
að ræða meðal-(average)efnagreiningu ásamt staðalfrávikum
eins og hún lá fyrir 14. júní 1978, samkvæmt upplýsingum frá
Robur-verksmiðjunum. Einnig eru í sérdálki greiningargildi
frá árinu 1987 samkvæmt yfirliti dags. 16. febrúar sl.
Árið 1978 Staðalfrávik Árið 1987
Glæðitap 00,6% 00,2% 00,8%
Óleysanlegt 00,4% 00,1% 00,4%
sío2 28,3% 00,3% 27,8%
ai2o3 12,4% 00,7% 11,9
Fe203 01,4% 00,2% 01,5
CaO 44,7% 00,7% 43,9%
MgO 07,2% 00,6% 08,8%
so3 02,8% 00,2% 02,6%
s 00,7% 00,07% 00,8%
MnO 00,3% 00,03% 00,2%
tío2 00,6% 00,04% 00,7%
C1 00,02% 00,01% 00,02%
Frítt CaO 00,1% 00,04% 00,1%
k2o 00,7% 00,06% 00,7%
Na20 00,4% 00,03% 00,3%
Til samanburðar er einnig efnagreining íslenska portland-
sementsins, en Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins hefur
látið framkvæma hana undanfarin ár.
Ar 1980 1982 1984 1986 1987
Si02 22,85% 23,35% 24,20% 23,50% 24,30%
Al^O, 04,35% 04,34% 03,70% 03,88% 04,01%
Fe203 03,57% 03,28% 05,50% 04,33% 03,60%
tío2 00,22% 00,11% 00,40% 00,36% 00,38%
CaÖ 59,10% 58,55% 55,60% 57,65% 56,70%
MgO 02,31% 02,67% 02,70% 02,82% 02,70%
Na20 01,29% 01,34% 01,50% 01,24% 01,23%
k2o 00,33% 00,35% 00,40% 00,42% 00,59%
PA 00,18% 00,21% 00,30% 00,21% 00,27%
so3 03,10% 03,10% 03,30% 03,22% 03,37%
Mn,03 00,10% 00,14% 00,10% 00,08% 00,10%
Frítt CaO 01,20% 01,19% 01,02% 00,92% 00,86%
Glæðitap 01,82% 01,58% 01,60% 01,22% 01,48%
Óleysanl 1. 01,37% 04,02% 04,87% 03,58% 06,82%
Við athugun á efnagreiningunni sést að sementstegundirnar
eru um margt ólíkar, en hvað af þeim mismun orsakar raka-
heldni íslenska sementsins veit eg ekki, en frekari rannsókna
virðist þörf og benda frávik í efnagreiningu þess einnig til þess
sama.
Það er mikill munur á aðföngum til sementsgerðar hér á
landi og á hinum gömlu meginlöndum. Við mokum nýdauðri
skel af hafsbotni, mettaðri salti og öðrum efnum úr sjónum,
en meginlandsþjóðirnar geta gengið í milljóna ára gömul fergð
kalklög.
Mér býður í grun að vandamálið sé ekki bara viðfangsefni
efnafræðinga heldur þurfi að koma til einnig samvinna við
jarðfræðinga og líffræðinga auk sívakandi langtímarannsókna
á hegðan steinsteypunnar.
Ég vil að lokum þakka dr. Óttari P. Halldórssyni, prófessor
fyrir ábendingar hans við þessa athugun. ■
Hannes Kr. Davíðsson, arkitekt
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG