Fréttablaðið - 30.03.2023, Blaðsíða 11
Á uppgangsárunum
eftir seinna stríð
vorum við með svo-
kallað fjölgengi. Gengi
krónunnar var mis-
jafnt eftir því hvað
menn voru að fást við.
Nú notum við marga
gjaldmiðla. Þetta
veldur sams konar
samkeppnisskekkju í
atvinnulífinu.
Fá hugtök hafa jafn jákvæða skír-
skotun og þjóðarsátt. Það á rætur í
velheppnaðri kerfisbreytingu fyrir
33 árum.
Aðgerðin fékk ekki heitið
þjóðarsátt fyrir fram. Það gerðist
þegar í ljós kom að hún skilaði
góðum árangri bæði fyrir launa-
fólk og fyrirtæki.
Þjóðarsáttin byggðist ekki á vin-
sældaaðgerðum eins og auknum
millifærslum og skattalækkunum.
Kjarninn í óskum forystumanna
launafólks og atvinnurekenda
snerist hins vegar um grund-
vallarumskipti í efnahagslífinu:
Að fastgengi yrði fest í sessi í stað
sveigjanlegrar gengisstefnu.
Þessu fylgdu nokkrar hliðar-
ráðstafanir. Á grunni þessarar
miðjuhugmyndafræði var unnt
að tryggja stöðugleika og verja
kaupmátt með hófsömum kjara-
samningum í áratug.
Vinsældaaðgerðir
Þjóðarsáttarhugtakið hefur síðan
skotið upp kolli með reglulegu
millibili án þess að menn hafi velt
mikið fyrir sér um hvað sáttin ætti
að snúast.
Nú er hald flestra að þjóðarsátt
felist í því að ríkissjóður taki á sig
í einu eða öðru formi þær launa-
kröfur, sem atvinnulífið segir að
verðmætasköpun þjóðarbúsins
standi ekki undir.
Vinsælar ráðstafanir af þessu
tagi eru skammgóður vermir.
Verðbólguáhrif af innistæðu-
lausum launahækkunum koma
fram strax. En séu vinsælar lausnir
ríkissjóðs ekki að fullu fjármagn-
aðar, með óvinsælum aðgerðum,
koma verðbólguáhrifin bara fram
síðar.
Þetta er ein skýringin á því að
við búum nú við jafn mikla verð-
bólgu og þær þjóðir sem glíma við
orkukreppu.
Skekkjur
Þjóðarbúskapurinn blómstrar. En
samt eru í honum skekkjur, sem
valda misrétti og draga úr hag-
kvæmni. Afleiðingarnar koma
meðal annars fram í minni hag-
vexti á mann en í grannlöndunum,
óstöðugleika og ókyrrð á vinnu-
markaði.
Á uppgangsárunum eftir seinna
stríð vorum við með svokallað
fjölgengi. Gengi krónunnar var
misjafnt eftir því hvað menn
voru að fást við. Nú notum við
marga gjaldmiðla. Þetta veldur
sams konar samkeppnisskekkju í
atvinnulífinu.
Lengi vel greiddu fyrirtæki mis-
munandi vexti eftir pólitískum
ákvörðunum. Nú búa venjuleg lítil
og meðalstór fyrirtæki í allt öðru
vaxtahagkerfi en útflutningsfyrir-
tækin. Seðlabanki Íslands stjórnar
öðru en Seðlabankar Evrópu og
Bandaríkjanna hinu.
Misréttið bítur svo enn fastar
þegar kemur að ungu fólki. Það
borgar með vöxtum þrjár íbúðir en
fær eina. Í Danmörku borgar það
eina og hálfa íbúð og fær eina eins
og íslensk útflutningsfyrirtæki.
Pilsfaldakapítalismi
Eftir stríð vorum við með gjald-
eyrishöft og innflutningshöft. Nú
erum við ekki með innflutnings-
höft en rúmlega heila þjóðarfram-
leiðslu í gjaldeyrishöftum vegna
takmarkana á erlenda fjárfestingu
lífeyrissjóða. Engin vestræn þjóð
er með jafn umfangsmikil gjald-
eyrishöft.
Þetta veldur því að gamla
krónan er óhæfur mælikvarði á
Þjóðarsátt um eitthvað
Þorsteinn
Pálsson
n Af Kögunarhóli
hagkvæmni og verðmætasköpun.
Þess vegna verða útflutningsfyrir-
tækin að nota erlendar myntir.
Í annan stað valda þessi gjald-
eyrishöft því að skattpeningar
almennings í lífeyrissjóðum eru
uppistaðan í eiginfé allra banka og
allra helstu fyrirtækja í viðskiptum
við bankana. Þetta er mesti pils-
faldakapítalismi á Vesturlöndum.
Þrjár leiðir
Hvað er til ráða?
Ein leið er að hjakka í sama far-
inu. Hitt er bara spurning um tíma
hvenær það endar með ósköpum.
Ríkisstjórnin er á þeirri vegferð.
Önnur leið er kerfisbreyting eins
og 1960 og 1990 með félagslegum
hliðarráðstöfunum. Nýr stöðugri
gjaldmiðill, jafnari samkeppnis-
staða, afnám fjármagnshafta og
aukið einkafjármagn í atvinnulíf-
inu. Viðreisn talar fyrir miðju-hug-
myndafræði af þessu tagi.
Þriðja leiðin er að fara lengra
til vinstri með millifærslum eins
og í gamla daga. Þá verða útflutn-
ingsfyrirtækin í hagstæða vaxta-
hagkerfinu skattlögð til að færa
peninga til ungra húsnæðiskaup-
enda í óhagstæða vaxtahagkerfinu.
Samfylkingin kúventi frá kerfis-
breytingaleið yfir í þessa milli-
færsluleið í haust sem leið.
Valið
Viðreisn og Samfylking skilgreina
skekkjuna í hagkerfinu og mis-
réttið eins, en velja ólíkar hug-
myndafræðilegar lausnir.
Millifærsluleiðin er betri en
að hjakka í sama farinu, en er
samt arfavitlaus hagfræði. Það er
skynsamlegra og haldbetra að ná
fram bæði réttlæti og heilbrigðu
efnahagsumhverfi með kerfis-
breytingu.
Líklegt er að forsætisráðherra
reyni fremur að þróa þjóðarsáttar-
umræðuna í átt að vinstri lausnum
Samfylkingar en miðjuhugmynda-
fræði Viðreisnar. Spurningin er
hversu langt sjálfstæðismenn og
framsóknarmenn eru tilbúnir að
fara í þá átt.
Svo gætu kjósendur bara valið
leið í næstu kosningum. n
Málarar
Við erum löggiltir málarar.
Tökum að okkur öll verkefni,
stór og smá. Gerum tilboð eða
tímavinnu og erum mjög sann-
gjarnir. Endilega hafa samband
í síma 782 4540 eða í
loggildurmalari@gmail.com
HSH
Þrif og flutningar
Tökum að okkur regluleg þrif fyrir
sumarhús, hótel, gistiheimili og
fyrirtæki. Almennar ræstingar, auka
þrif og ýmis önnur þjónusta.
Erum staðsett á Suðurlandi.
Gerum tilboð
sem hentar þínum þörfum.
Hægt er að nálgast frekari
upplýsinga í síma 792-1727
eða í tölvupóst á
hshflutningar@gmail.com
HSH þrif og flutningar ehf.
er fyrirtæki með persónulega þjónustu
sem er með 10 ára reynslu í þrifum
og flutningum.
Tökum að okkur regluleg þrif fyrir
sumarhús, hótel, gistiheimili og
fyrirtæki. Almennar ræstingar, auka
þrif og ýmis önnur þjónusta.
Erum staðsett á Suðurlandi.
Þjónustum ma. Höfuðborgarsvæðið
og allan SV-hluta landsins.
Gerum tilboð
sem hentar þínum þörfum.
Veðurstofureitur
Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs þann 22. mars 2023 var lögð fram skipulagslýsing, dags. 7. mars
2023, vegna nýs deiliskipulags fyrir Veðurstofureit. Í tillögunni sem lögð er til felst að koma fyrir nýrri
íbúabyggð ásamt þjónustu á Veðurstofuhæð. Að greina núverandi horf Veðurstofuhæðar og næsta
nágrennis svo byggja megi undir heildstætt nýtt íbúðahverfi á miðsvæði ásamt þjónustu með sterkum
vistvænum áherslum í sátt við núverandi umhverfi. Að leita uppi styrkleika rýmisins á svæðinu og flétta
saman við borgarsamhengið næst reitnum í Hlíðum og Kringlu. Að koma fyrir nýrri 7m breiðri tengingu
sem þjónar öllum virkum ferðamátum undir Bústaðaveg og tengja saman norður–suðurás milli Stigahlíðar
og Beykihlíðar/Birkihlíðar (Suðurver og Klettaskóli). Að skoða þróunar- og uppbyggingarmöguleika lóða
á reitnum, hæðir húsa, stakstæð eða í klösum ásamt samnýtingu rýma.Að finna hæfilegt nýtingarhlutfall
nýbygginga á reitnum. Að skoða bílastæðakröfur og bílastæðahús ásamt fyrirkomulagi á aðgengi ökutækja
inn á íbúðareitinn sem gengur í aðalatriðum út á samnýtingu með Veðurstofunni.Að deilihagkerfið eigi að
geta þjónað öllum íbúum reitsins.Að staðsetja 5-7 íbúa sambýli fyrir fatlaða. Að skilgreina útivistarsvæði
fyrir íbúa reitsins og núverandi nágranna. Gert er ráð fyrir að byggingarmagn á reitnum skiptist á milli
Græns húsnæðis framtíðarinnar á veðurhæðinni, Variat - hagkvæms húsnæðis og Bjargs íbúðafélags.Gert
er ráð fyrir að starfsemi þjónustustofnunar á Veðurstofureit (Veðurstofa Íslands) muni alfarið færast yfir á
lóð nr. 7 við Bústaðaveg með nýbyggingarreit vestan við núverandi byggingu. Byggingarreitur Veitna ohf.
undir framtíðarstækkun kaldavatnsgeymis verður staðsettur sunnan við hlið núverandi geymis. Óskað er
eftir að ábendingar/umsagnir berist eigi síðar en 4. maí 2023.
Lýsingin er aðgengileg á vef Reykjavíkurborgar, reykjavik.is undir skipulag í kynningu.
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur
Sk ifstofa borgarstjóra
Skrifstofa borgarstjóra
Borgarverkfræðingur
Borgarverkfræðingur
Hagdeild
Hagdeild
Dagvist barna
Dagvist barna
Reykjavíkurborg
Umhverfis- og skipulagssvið
-Skipulagslýsing vegna nýs deiliskipulags-
Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, sími: 411 1111, www.reykjavik.is
Fréttablaðið sKoðun 1130. mars 2023
FIMMTuDAGuR