Fréttablaðið - 30.03.2023, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 30.03.2023, Blaðsíða 1
| f r e t t a b l a d i d . i s | Frítt 2 0 2 3 K Y N N I NG A R B L A ÐALLT FIMMTUDAGUR 30. mars 2023 Jóhanna Eva segir það gríðarlega mikilvægt að halda til haga gömlu handverki, áhöldum, aðferðum og öðru. Það vitnar til um söguna og gerir okkur kleift að tengjast fólkinu sem fór á undan okkur. Sjálf er hún áhugamanneskja um allt sem gamalt er og sækir mikið í það. MYND/EYÞÓR BJARNASON Tímahylki saumakvennanna er að finna í búð á Ísafirði Að stíga inn í Földu hannyrðaverslun og saumastofu á Ísafirði er eins og að ganga inn í tímahylki til ársins nítjánhundruð. Þar úir allt og grúir af fallegum munum og handverks- vörum; gömlum, splunkunýjum og nýjum í gömlum stíl. 2 Danir hafa áhyggjur af vaxandi notkun ungmenna á nikótínvörum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY elin@frettabladid.is Íbúar á Jótlandi í Danmörku hafa sent bréf til Sophie Løhde, innanríkis- og heilbrigðisráðherra, þar sem þeir lýsa yfir verulegum áhyggjum vegna nikótínvenja unglinga, að því er danska ríkis- útvarpið greinir frá. „Undanfarin ár höfum við verið að sjá að neysla barna og ungmenna á nikótín- vörum eins og neftóbaki, nikótín- púðum og rafréttum hefur verið að aukast mikið,“ segir í bréfinu. Einnota rafrettur eru mjög vinsælar en þeim er hent eftir ákveðinn fjölda blástra. Þær inni- halda bragðefni eins og melónu eða piparmintu og höfða mjög til ungs fólks. Puffbar eru þær kall- aðar í Danmörku. Í bréfinu segir að heilbrigðisnefnd á svæðinu sé að berjast við ósanngjarna her- ferð markaðsafla þegar kemur að nikótínvörum. Til dæmis fer sú markaðssetning fram á sam- félagsmiðlum eins og Snapchat og TikTok. Slæm þróun Margt bendir til þess að það sé ekki einvörðungu á Jótlandi sem ungt fólk ánetjist nikótínvörum. Tölur frá danska heilbrigðis- eftirlitinu segja að 14% barna á aldrinum 15 til 19 ára noti slíkar vörur. Skólayfirvöld hafa verið að fræða ungmenni um hættuna af neyslu þessara efna. Samt sem áður fjölgar þeim stöðugt sem falla fyrir nikótíninu. Með bréfinu hvetja þau heilbrigðisráðherra til að skoða löggjöfina og hvort hægt sé að spyrna við fótum í þessari þróun. n Nikótín og börn Alla daga gegn kulda og sól Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup www.celsus.is HALLDÓR | | 10 PONDUS | | 18 Heppin að koma frá Ohio og sjá norðurljós 6 3 . t ö L U b L A ð | 2 3 . á R g A N g U R | Fréttir | | 6 F I M M t U D A g U R 3 0 . M A R S| Frábært úrval páskaeggja netto.is menning | | 19 Ritaðar myndir Jóhanns DÓMStÓLAR „Það er spurning hvort rétt væri að fjölga dómurum við Landsrétt tímabundið um þrjá, af því að þrír dómarar dæma að jafn- aði í hverju máli,“ segir Benedikt Bogason forseti Hæstaréttar. Dæmi eru um að bíða þurfi í tvö ár frá áfrýjun máls í undirrétti uns dómur fellur í Landsrétti. „Þá væri hægt að ná niður þessum hala og fækka svo dómurum þegar jafnvægi væri náð.“ Sjá Síðu 8 Vill tímabundna fjölgun dómara Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar Yfir hundrað börn með offitu bíða þjónustu. Er biðin allt að eitt og hálft ár. Sum eru komin á lyf sem virka á seddustjórn- unarkerfi líkamans. helenaros@frettabladid.is HeILbRIgðISMáL Nokkrir tugir barna með offitu hér á landi fá nú lyfin Saxenda og Ozempic, sem virka á seddustjórnunarkerfið. Tryggvi Helgason, sérfræðingur í barnalækningum og offitu barna og umsjónarmaður offitulækninga barna hjá Barnaspítala Hringsins, segir lyfin ekki megrunarlyf í sínum huga, þau verki á þyngdarstjórn- unarkerfi líkamans. „Ef það er verið að beita þeim á fólk sem er ekki með offitu heldur nokkur aukakíló sem það vill losna við, þá er það misbeiting á þessum lyfjum, ef þú spyrð mig,“ segir Tryggvi og bætir við að það sé ekki hugmyndin með lyfjunum. Hins vegar séu margir með offitu sem ekki fái meðferð og það þurfi hugsanlega að nota þessi lyf jafnvel í meiri mæli en tíðkast nú. Offita barna hefur aukist á síð- ustu árum og segir Tryggi ástæðurn- ar einna helst samfélagsbreytingar. Aukna ásókn fólks í kyrrsetuafþrey- ingu, aukna pressu á að vera með stuttan matartíma og hálftilbúinn eða jafnvel altilbúinn mat. Rúmlega hundrað börn eru nú á biðlista eftir þjónustu hjá Heilsu- skóla Barnaspítala Hringsins vegna offitu og er biðtíminn að jafnaði um eitt og hálft ár. n Tugum barna með offitu hérlendis eru nú gefin lyf Sérfræðingur segir börnum með offitu hafa fjölgað. Ástæðan sé einna helst breyting- ar á samfélaginu með aukinni kyrrsetu. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði að verja þyrfti viðkvæma hópa samfélagsins er hún kynnti nýja fjármálaáætlun í gær. Sjá Síðu 2 Fréttablaðið/anton líFið | | 22 Al Pacino verður á vígslu Bíótöfranna allt | | 8 Ástin og fjöllin halda mér á Íslandi

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.