AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1999, Side 41
B\N TVEIROG
niöurlögn. Slík steypa hefur verið kölluð „Súl-pak”
steypa og er hún allfrábrugðin steypu sem gjarnan
er kölluð flotsteypa. Hana er unnt að framleiða
með mjög lágri vatns/sements-tölu (mjög stífri
steypu). Myndband um slíka steypu verður gert
1999.
VARANLEG LOKUN SPRUNGNA/-
STEINFLETIR UTANHÚSS
Þessum rannsóknum lýkur 1999. Þærfjalla um
sprungur í steinsteypu og hvernig unnt er að hylja
þær og hindra vatnsstreymi inn í þær á mun
hagkvæmari hátt en verið hefur. Þegar hefur verið
kynnt aðferð sem gerir sögun sprungna nánast
óþarfa.
ÚTGÁFA - UPPLÝSINGAR
Gefin voru út 13 Rb-tækniblöð, 16 rannsókna-
skýrslur og tvö sérrit á árinu. Auk útgáfu slíkra
tæknilegra upplvsinga voru vísitölur bygginga-
kostnaðar gefnar út mánaðarlega og héldu sér-
fræðingar Rb 12 erindi á erlendum ráðstefnum og
birtu 40 greinar í erlendum og innlendum fræði-
ritum og tímaritum. Sérfræðingar Rb önnuðust
jafnframt kennslu á fjölmörgum námskeiðum.
ONNUR STARFSENI
Vöruvottun fer vaxandi og alls var gefið út 31
vottorð, sem tengjist kröfum í byggingarreglugerð,
og 6 vottorð á lagnasviði. Einnig eru í gildi 29 sam-
ningar við framleiðslufyrirtæki þar sem Rb vottar
vörugæði og innra eftirlit fyrirtækjanna sem hlut-
laus þriðji aðili.
Erlent samstarf var óvenju mikið á árinu en
greina má á milli ferns konar verkefna á þessu
sviði. í fyrsta lagi er um að ræða þátttöku í netsam-
starfi með eða án verulegrar þátttöku í stjórnun og
rekstri. Mikilvægast á þessu sviði eru:
Nordtest, samvinna prófunaraðila á
Norðurlöndum, fjármagnað af NMR.
NBS, samvinna norrænna byggingarannsókna-
stofnana.
ENBRI, samstarf evrópskra byggingarann-
sóknastofnana.
EOTA, samband evrópskra aðila er annast
tæknivottanir. Aðilar tilnefndir af viðkomandi ríkis-
stjórnum.
RILEM, evrópusamstarf um efnisfræði stein-
steypu.
í öðru lagi er um að ræða þátttöku í alþjóðlegum
samtökum án eigin vinnuframlags. Má þar nefna
aukaaðild að CIB, alþjóðasamtökum rannsókna-
stofnana á byggingasviði. í þriðja lagi er um að
ræða samvinnu á verkefnagrundvelli. Hér er um
að ræða rannsóknaverkefni, sem eru kostuð að
hluta af norrænum eða evrópskum sjóðum eða
erlendum fyrirtækjum. Sem stendur er samstarf á
þessu sviði umfangsrmest. í fjórða lagi er um að
ræða þátttöku í evrópsku netsamstarfi um ákveð-
na málaflokka og er ferðakostnaður þá yfirleitt
greiddur af EB. Undir þennan flokk fellur einnig
þátttaka í erlendum ráðstefnum og alþjóðaráð-
stefnur haldnar á íslandi af Rb. Einnig er hér um
að ræða endurmenntun sérfræðinga Rb. ■
■
Til liðs við
náttúruna
með vörur frá Sæplasti
Pósthólf 50, 620 Dalvík, Sími 460 5000, Fax 460 5001,
Netfang saeplast@saeplast.is, Heimasíða www.saeplast.is