AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1999, Side 48
Listasafnið á Akureyri,
Listagil.
HUGSMIÐ teiknistofa
Hreyfikraftur, flœði,
Byggingarlist, sem önnur verk mannsins, tekur
örum breytingum og mótst sífellt af tíðaranda hvers
tímabils jafnframt því að vera samhliða þátttakandi
í mótun umhverfis og menningar. Þetta tvöfalda
hlutverk byggingar-listarinnar verður oft aflvaki og
uppspretta þeirra hugmynda er glæða andvana efni
lífi og má ætla að sé nauðsynlegur undirbúningur
arkitektrúrs sem háþróaðar samræðulistar við sam-
tíma sinn. Jafnt og aðrar litstgreinar, t.d. myndlist og
tónlist, hefur arkitektúr möguleika á að búa við jaðar
tungumálsins, beggja vegna, handan eða við
upphaf allra almennra skynsemisraka og verða í
senn á frumstigi kveikja nýrra hugmynda og
hugmyndatengsla og endapunktur þeirrar ólíku og
samofnu þekkingarsviða jarðkringl-unnar er hönnun
hefur tækifæri að tengjast. Sem slík er byggin-
garlistin lifandi grein, þá sérstaklega er þegar ein
hugmynd fóðrar aðra og eitt verk getur annað af sér.
Hinarólíku myndir er hér birtast sýna hluta þeir-
ra fjöl-breyttu verka á ýmsum stigum, sem teiknisto-
fan Hugsmíð hefur komið að með einu eða öðru
móti síðastliðin tvö ár. Sum þessara verka yfirgáfu
aldrei teikniborðið, önnur hófust snarlega og fjöruðu
út ófullkomnuð, sum fóru í bið eða óskyldar hendur
og önnur eru í eðlilegri uppbyggingu. En tíðum
standa eftir hugmyndir einar með sínar sjálfstæðu
eigindir, óháðar raunverulegum tíma og rými, er
bera vott um hverfult starf arkitektsins og leit hans
að kraftbirtingu verka sinna.
Það er stefna Hugsmíðar að líta til framtíðar og
nútímalegra skoðanna í sköpun byggingarlistar og
finna örvandi samræðugrundvöll við hið byggða
umhverfi og náttúruna er byggir eingöngu á hinum
afstæðu og stærðfræðilegu lögmálum arkitektúrsins
sjálfs. Með öðrum orðum, byggingarlist laus við
Verslun í
Bankastræti.
[• IsÉT ' -í
Listasafnið á Akureyri, viðbygging.