AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1999, Síða 64
Bláa Lónið
Sigurður Björgúlfsson,
Bíáa lónið er einstakt. Það er í senn
náttúrufyrirbæri og mannanna verk.
Það hefur meira aðdráttarafl en flestir
staðir aðrir í landinu. Kemur þar hvort
tveggja til dulmögnuð fegurð þess og
ótvíræður lækningarmáttur.
Bláa lónið verður til við frárennsli á afgangsvatni
frá Hitaveitu Suðurnesja. Þar hefur verið rekinn
baðstaður um árabil. Baðstaðurinn hefur nú verið
fluttur og aðstaða byggð upp á nýjum stað, vestar
í lllahrauni.
Áætlanir eru um margvíslega starfsemi á vegum
rekstraraðila Bláa Lónsins á þessum stað í fram-
tíðinni. Auk reksturs baðstaðar eru m.a. áform um
byggingu hótels- og ráðstefnumiðstöðvar og nýr-
rar meðferðarstöðvar fyrir húðsjúka.
Starfsemin verður byggð upp í áföngum. Fyrsti
áfangi hefur nú verið tekinn í notkun. Hýsir hann
baðhús með búningsklefum, böðum og innilaug-
arsvæði ásamt þjónustuálmu með verslun, stórum
veislusal, minni ráðstefnu/fundarsal, eldhúsi, skrif-
stofum ofl.
Við framkvæmdina í heild hefur náttúruvernd
verið höfð að leiðarljósi.
Hönnuðir mótuðu heildarhugmynd að mannvirk-
jagerð í hrauninu þar sem megináhersla var lögð á
verndun. Mannvirki eru lögð að varfærni í hraunið
og lúta lögmálum staðarvalsins.
ARKITEKTAR:
Vinnustofa arkitekta ehf.
Hróbjartur Hróbjartsson
Richard Ólafur Briem
Sigríður Sigþórsdóttir
Sigurður Björgúlfsson
Skólavörðustíg 12 101 Reykjavík
HÖNNUNARHÓPUR:
Sigríður Sigþórsdóttir, arkitekt, verkefnisstjóri
Anna Sigríður Jóhannesdóttir, arkitekt
Edda Þórsdóttir, arkitekt
Hermann Georg Gunnlaugsson, landslags-
arkitekt
Ólafur Melsted, landslagsarkitekt
Richard Ólafur Briem, arkitekt
62