AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2003, Qupperneq 10
Hönnunarmenntir
við Háskóla íslands
Þorsteinn Þorsteinsson, verkfræðingur
Stálhringur, sem notaður er í keðjum og vírum til að yfirfæra
krafta. Mismunandi litir sýna spennur í hlutnum við tiltekið átak. / A steel ring,
used in chains and wires to transfer forces. Different colours show the stress in
objects at a given strain.
Hönnun er hugtak, sem sífellt hefur
aukist notkun á á síðustu árum. Fyrst
þekkist það um það eingöngu að sjá
fyrir smíð einstakra hluta. Til dæmis
er frá því sagt í Heimskringlu Snorra
Sturlusonar að Ólafur Haraldsson
Noregskonungur, kallaður þar ,,hinn
helgi", hafi verið „sjónhannarr á hver-
ja smíð“. Merking hugtaksins „sjón-
hannarr“ er líklega best skýrð með
því að Ólafur hafi getað smíðað hluti
án þess að hafa fyrirmynd eða teikn-
ingu og þar með getað séð fyrir sér
það sem smíða skyldi. Hann hefur
þar með verið hönnuður í nútíma-
merkingu þess orðs. Hönnun eða orð
tengt hönnun var ekki notað í málinu
fyrr en eftir miðja 20. öldina.
Á seinni tímum kemur orðið hönnun
fyrst fyrir á prenti í Nýyrðum IV árið
1956. Nýyrði voru fjögurra bóka
flokkur, sem þeir Halldór Halldórsson
og Sveinn Bergsveinsson gáfu út á
árunum 1953-1956. Orðið hefur síð-
an fengið mikla útbreiðslu og hafa,
samkvæmt Ritmálsskrá Orðabókar
Háskólans, flest orð sem byrja á
hönnun eða hönnuður einna fyrst
komið fram annars vegar í Sveitar-
stjórnarmálum og hins vegar í Tímariti
Verkfræðingafélags íslands. Orðið
kom líka alloft fyrir í Alfræðasafni AB,
21 bindis bókaflokki sem kom út á
árunum 1965-1969. Á allra síðustu
árum liggur við að orðið sé ofnotað,
a.m.k. má vart opna blað eða tímarit
að ekki komi fyrir hönnun í einni eða
annarri mynd. Jafnframt aukinni
úbreiðslu hefur merkingin víkkað og
það sem kallað var fyrir 40 til 50
árum hönnun eða það að hanna
hefur fengið margs konar nýja merk-
ingu. Ef litið er til hlutverks Háskóla
íslands þá má segja að Verkfræði-
deild og skyld fagsvið hafi einna mest
fengist við hönnun. Bandarísk stofn-
un (ABET), sem fyrir nokkrum árum
framkvæmdi úttekt á námi og
kennslu við verkfræðideildina, skil-
greindi verkfræðilega hönnun svo:
„Er ferli til að finna upp kerfi eða hluti
sem uppfylla ákveðnar þarfir. Þetta er
ákvörðunarferli þar sem raungreinum,
stærðfræði og verkfræði er beitt til
þess að nýta aðföng og auðlindir á
sem hagkvæmastan hátt við að ná
settu marki." Hefur þessi skilgreining
verið höfð að leiðarljósi innan deildar-
innar. Og með því að skoða kennslu-
skrá Háskólans og leita að hvar
hönnun kemur fyrir er hægt að sjá
hvers konar viðfangsefni hér er um
að ræða. Er eftir óformlega könnun
hægt að flokka hönnun í þrennt.
Fyrst þer að nefna svo nefnda tækni-
lega hönnun, þar sem beitt er verk-
fræðilegum aðferðum við að hanna
mannvirki, vélbúnað og orkukerfi.
Þetta eru klassísk verkfræðileg
viðfangsefni og hafa verið stunduð
við Háskólann í meira en hálfa öld.
Innan þessa flokks má e.t.v. fella
skipulagsfræðina, þó margir vilji líta á
hana sem annað og víðtækara svið
en hönnun nær yfir. Næst má til
takahönnun ýmiss konar ferla og
hugbúnaðar. Þar er verið að fást við
framleiðsluferli, stýrikerfi og margs
konar hugbúnað, sem bæði fylgist
með og stjórnar margs konar ferli, allt
frá framleiðslu í verksmiðju til stjórn-
unar umferðar og frá hönnun vefsíðu
til hönnunar netsins sjálfs. í þriðja lagi
er svo hönnun í því formi að búa til
eða smíða einhvern hlut, helst hlut
sem ekki hefur verið til áður þannig
gerður. Þessi hluti hönnunar er lítt
þróaður innan Háskóla íslands en þó
ekki alveg án dæma. Véla- og
iðnaðarverkfræðiskor kennir nám-
skeið í iðnhönnun, þar sem dreþið er
á smíði hluta til iðnaðarnota, og í allri
verkfræði er kennd efnisfræði sem
undirstöðugrein hönnunar. Þá er
þess að geta að nemendur í véla- og
iðnaðarverkfræði halda árlega sam-
keppni um hönnun vélbúnaðar eða
tækis, sem leysa skal tiltekið verkefni.
Hefur hönnunarkeppni þessi verið
mjög vinsæl um áraraðir.
Víst er að hönnunarmenntir við Há-
skólann ná ágætlega yfir tæknilega
hönnun og hönnun ferla og hugbún-
aðar en síður smíðishönnun, ef svo
má nefna hana. Margir munu vilja
auka veg smíðishönnunar og e.t.v
grafískrar hönnunar við Háskóla
íslands, en í litlu samfélagi verður að
forgangsraða og slík hönnun er dýr.
Háskólinn mun verða um sinn að láta
öðrum að einhverju leyti eftir þennan
þátt hönnunarmennta, a.m.k. um
sinn, en hafa augun opin fyrir sam-
starfi við aðra í þeim efnum. ■
8 avs