AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2003, Blaðsíða 12
Skipulag kennslu
í Hönnunar- og
arkitektúrdeild
Halldór Gíslason, prófessor, Hönnunar- og
byggingarlistardeild LHÍ
í Hönnunar- og arkitektúrdeild Lista-
háskólans er boðið upp á nám til BA-
gráðu. Við skipulag kennslu í deildinni
er haft að leiðarljósi að þroska
nemendur sem sjálfstætt hugsandi
einstaklinga, sem geta tekið á mis-
munandi verkefnum á skapandi hátt.
Kennslan skiptist í 50% verktengt
starf í vinnustofum og 50% formlega
kennslu. Hluti af formlegu kennslunni
er í beinum tengslum við þau verkefni
sem unnin eru í vinnustofum. Vinnu-
stofan er miðpunktur starfseminnar.
Hver nemandi deildarinnar fær úthlut-
að eigin vinnuaðstöðu og gert er ráð
fyrir að nemendur stundi vinnu sína
þar. Húsið er opið nemendum til
eitt á næturnar og hver nemandi get-
ur fengið lykil.Kennslan á 1. ári bein-
ist að því að skerpa sköpunargáfu
nemandans og þroska skipulags-
hæfileika hans. Nemendur takast á
við röð verkefna í vinnustofum, sem
hafa það að markmiði að víkka skiln-
ing þeirra á tveimur meginsjónarhorn-
um hönnunar, sem eru tækniþekking
annarsvegar og hugmyndafræði hins-
vegar. Þeir fá þjálfun í að setja fram
hugmyndir sínar í skiljanlegu formi og
fá undirbúning í að taka við gagnrýni
á eigin úrlausnir og verk.
í kennslu á öðru ári er miðað við að
nemandinn hafi getu til að skilgreina
og setja fram skoðanir sínar hratt og
vel og að hann hafi tileinkað sér þann
hugsunarhátt hönnuðarins að hann
eigi sífellt að leita nýrra svara við
grundvallarspurningum og taka eng-
um niðurstöðum sem sjálfgefnum.
Hann skal vera tilbúinn til að taka við
gagnrýni á eigin úrlausnir og fram-
setningu þeirra, og með skilmerkileg-
um hætti geta sett fram gagnrýni á
verk annarra. Vinnuaðferðir sem
nemandinn hefur kynnst á 1. ári eru
þróaðar nánar með hliðsjón af þeirri
sérgrein sem hann hefur kosið sér.
Jafnframt er haldið áfram að byggja
upp þann grunn fræðilegrar þekking-
ar, sem er nauðsynlegt að hafa til að
skilja þau tákn og ímyndir sem heim-
ur hönnunarinnar byggir á. Verkefnin
á öðru og þriðja ári eru flest afmörk-
uð og sérstaklega skilgreind til þess
að nemendur geti beitt sértækum að-
ferðum við úrlausn þeirra.
Vinnustofan er starfsvettvangur nem-
enda og leiðbeinenda þeirra. Þar eru
verkefnin tekin fyrir og þar koma allir
þræðir fagsins saman:
Sköpunarkrafturinn kraumar og fær
1 0 avs