AVS. Arkitektúr verktækni skipulag


AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2003, Side 18

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2003, Side 18
Hönnunarstefna stjórnvalda Halldór Gíslason, prófessor, Hönnunar- og byggingarlistardeild LHÍ Samtök tæplega 40 hönnunarskóla í Evrópu sem Hönnunar- og arkitektúr- deild Listaháskólans er þátttakandi í hafa gert könnun á hönnunarstefnu stjórnvalda í 25 löndum. Þessi könnun var gerð til að kanna áherslur og umfang hönnunar sem hluta af at- vinnulífinu. í athuguninni voru skoð- aðir ýmsir þættir, en ekki er enn búið að gefa út niðurstöður hennar. Hluti þess sem var skoðað var til dæmis hvað mörg fyrirtæki nota hönnuði í starfsemi sinni, hvernig stjórnvöld nota hönnun sem þjónustuþátt. Þó að ekki séu öll kurl komin til grafar í þessari könnun, þá er sýnt að mörg lönd hafa gert sér grein fyrir mikilvægi hönnunar til að hægt sé að halda áframhaldandi vexti og þróun við- skipta og iðnaðar. Þar er ráðandi sú skoðun að ef þjóðir vilja vera áfram samkeppnishæfar í samfélagi þjóðanna þá verði hönnun að vera sterkur þáttur í viðskiptalífinu. í Ijós kemur að samfélög á Vestur- löndum eru dugleg við að nota hönn- un í gerð alls konar hluta, auglýsinga og bygginga en ekki eins góð í að nota hönnun í áætlanagerð. Þau viðhorf eru almenn að hönnun sé afar mikilvæg í áframhaldandi þróun iðn- aðar, en margir hafa ekki gert sér grein fyrir að hönnun og þau þverfag- legu og dínamísku viðhorf sem eru hluti af aðferðafræði hönnunar geti verið góð við stefnumótun í velferðar- málum og á sviði ábyrgðar á félags- legum þáttum. [ Ijós kemur að í þessum 25 löndum eru starfandi 34 hönnunarmiðstöðvar sem taka mismunandi þátt í stefnu- mótun hönnunar í samfélaginu. Af þessum hönnunarmiðstöðvum taka 30% þátt í að skapa nýja þekkingu, 40% þeirra eru míkilvægir milliliðir milli hönnunarsamfélagsins og viðskipta og iðnaðar. 50% þessara hönnunar- miðstöðva sinna þjónustu með út- seldri ráðgjafaþjónustu. Svo til allar þessar stöðvar sinna almennings- fræðslu í mismunandi formi eins og með námskeiðum, sýningum o.þ.h. Ákvarðanír sem hafa verið teknar í sumum þeirra landa sem komu fram í rannsókninni stefna á mikinn vöxt í hönnun á komandi árum, eins og 1 6 avs

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.