AVS. Arkitektúr verktækni skipulag


AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2003, Blaðsíða 21

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2003, Blaðsíða 21
Listaháskóli Svavar Eysteinsson, útskriftarnemandi BARNALEIKUR9 Aðeins þeir sem hafa farið í listahá- skóla vita hvað listaháskóli er. For- dómar eru sprottnir af fáfræði og það þekkja nemendur Listaháskóla ís- lands sem stundum hafa þurft að verja tilveru sína og skólans fyrir fólki sem finnst eitthvað óeðlilegt við list- nám á háskólastigi. Spurning eins og: Eruð þið ekki bara að föndra allan daginn og fáið BA-gráðu fyrir er klassísk og býður upp á svör eins og: Nei, við erum að læra að gera óselj- anlega vöru aðlaðandi svo þú munir kaupa hana. eða: Nei, ég er að hanna sófasettið sem þú getur stært þig af í Innlit Útlit. Algengt er að það sem er nýtt og framandi verði fyrir aðkasti frá því sem hefur fest sig í sessi og þó íslendingar séu nýjungagjörn þjóð hafa ekki allir verið sáttir við að af- henda listnemum sambærilegt há- skólapróf og gert er í öðrum skólum. En hvað er það svosum að vera með plagg upp á að vera listamaður? Er ekki öllum frjálst að kalla sig myndlist- armann, tónlistarmann, leikara eða hönnuð? Jú, kannski, en einhvers- staðar þarf fólk sem þjáist af frjórri hugsun og framkvæmdagleði að fá hæli og meðferð til að læra að lifa með veikinni. Ég tala hér í dag fyrir hönd löggiltra hönnuða sem um þriggja ára skeið hafa fengið leiðsögn í því hvernig hlutirnir geti fengið sem flottast yfir- bragð. Fjöldi langveikra listamanna hefur komið þar að og gefið okkur innsýn í þeirra hugarheim og hvernig eigi að gefa hugmyndum sínum brautargengi. Kennt okkur sígilda hugmyndafræði sem gengið hefur mann fram af manni og ekkert fær storkað. Á þessum tíma hefur deildin gengið í gegnum miklar breytingar enda ekkert annað en ómótaður leir í höndum nemendanna og fólks sem hefur það að hugsjón að gera hönnunarnám á íslandi það lang- flottasta í heiminum. Framtíðin er björt og tækifærin enda- laus. Þó hönnunardeildin hafi lengi verið hálfgerð uppeldisstöð fyrir aug- lýsingastofur sem vinna í þágu fyrir- tækja í því hvernig best sé að koma vöru á borð neytenda hefur kennslan í deildinni haft lítið með það að gera. Það liggur bara einhvern veginn bein- ast við. Hönnun er öflugt verkfæri sem auðvelt er að misnota. Sem hönnuður getur þú auðveldlega selt sálu þína og allt sem Goddur kenndi þér fyrir búnt af bleðlum. Setið uppi með slæma samvisku yfir því að hafa tekið þátt í gegndarlausum áróðri á gagnlausri og lélegri vöru sem enginn þarfnast en allir telja sig þurfa. Hann- að eitthvað drasl sem hefur ekkert notagildi og dettur í sundur við fyrstu notkun. Búið til lélegar ímyndir sem stuðla að samfélagslegri brenglun hvort sem um ræðir útlit eða kynhlut- verk. Selt hugmyndir sem eru í and- stöðu við þínar eigin og glatað frelsi þínu sem listamaður. Vaknað svo upp einn góðan veðurdag í rotnu samfélagi og eignað þér verkið. Þetta er einn kostur í stöðunni en annar er að nota þetta öfluga verk- færi til að vekja fólk til umhugsunar um málefni sem skipta máli. Stuðla að hugarfarsbreytingu þar sem þess gerist þörf og fegra mannlífið. Af nógu er að taka: Fordómar, ofbeldi, misrétti, kapítalismi, mengun, umhverfisvernd, stríð og friður. Alveg eins og með aðra listamenn þarf hönnuður að horfa á umhverfi sitt gagnrýnum augum og með kunnátt- una að baki eru honum allir vegir færir. Það sem þú gerir þarf ekki að gefa einhverjum öðrum eyri í aðra hönd. Einn annar kostur er svo að fara bara og gera eitthvað allt annað. Með fjölbreyttari tækni hefur bilið á milli hönnunar og annarra listmiðla minnkað og ber yfirstandandi útskriftarsýning þess sterk merki. Hönnuðir eru engum háðir, hvorki forminu né miðlinum, og hvað þá síð- ur eru þeir hækja auðvaldsins. Öllu ægir saman, tvívítt, þrívítt, hljóð, víd- eó, járn, ull, stóll og kjóll. Að lokum langar mig fyrir hönd sam- nemenda minna að þakka öðrum nemendum og starfsfólki fyrir sam- starfið og vona að öllum gangi vel að finna sig í framtíðinni. ■ avs 1 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.