AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2003, Qupperneq 39
er aðkoma að hinum ýmsu deildum í
safninu: í vinnustofubyggingu og sýn-
ingarsalina sem eru að verulegu
leyti sjálfstæðir og eru um 2,600
m2 að stærð. Úr kjallara nýju bygg-
ingarinnar er hægt að komast inn í
vopnageymslubygginguna eftir stiga
sem gerður er inn í hlið þessarar
barokk-byggingar. Frekari tenging er
gerð á 1. hæð við ferkantaðan garð
sem gengur undir nafninu Schluter-
hof.
Vegna þess hvað lóðin er lítil var
nauðsynlegt að skipuleggja sýning-
una á fjórum hæðum, en gengt er á
þær allar frá anddyrinu eftir stigum
sem eru hannaðir á mismunandi hátt.
Fyrsta og önnur hæð eru tengdar
með aflíðandi hringstiga fyrir ofan
glerhvelfinguna sem er yfir inngangin-
um. Þessi stigi er mjög mikilvægur,
ekki bara vegna þess hvernig hann er
hannaður heldur vegna þess að hann
er eini hluti byggingarinnar sem
sést frá hinni sögufrægu götu Unter
den Linden.
Árið 1998, þegar hönnunarvinna við
þessa byggingu var að hefjast, hafði
skrifstofa I. M. Pei samband við hið
heimsþekkta, finnska glergerðarfyrir-
tæki Tambest Oy. Gengið var úr
skugga um að hægt væri að fram-
leiða þrívíðar glerrúður eins og fyrstu
hönnunarteikningar sýndu. Af þeim
mismunandi tegundum og gæðum
sem Tambest býr til valdi Pei járn-
oxyð gler vegna þess hve það erbjart
og gagnsætt. Þetta gler nálgaðist
mest hugmynd hans um byggingar-
efni úr kristal. Tambest gat líka fram-
leitt gler með sérstakri sveigju sem
óskað var eftir fyrir þessa byggingu.
Úthlið stigans breytist milli hæða. Á
fyrstu hæð líkist hann toppstíýfðri
keilu. Þessi byggingarhluti, sem líkist
pilsi, snýst um lóðréttan ás og hallast
inn um 10° og gerði miklar kröfur á
hendur þeim sem sáu um glerjun og
byggingu stoðvirkisins sem ber gler-
ið. Flver einasta rúða í þessum bygg-
ingarhluta er sérsmíðuð og þarf sér-
stakt mót. Þessi mót þurftu að vera
gerð úr sérstöku hitaþolnu stáli.
Flönnunin gerði ráð fyrir því að
þessar rúður væru búnar til tvær og
tvær saman. Nauðsynlegt var því að
nota sérstakt duft til að losa rúðurnar
úr mótinu og koma í veg fyrir að þær
bráðnuðu saman þegar þær voru
beygðar, þegar glerið er hitað upp j
600°C og tekur smám saman á sig
lögun mótsins. Ekki er heldur hægt
að sjá hvort framleiðslan hefur lukk-
ast og er laus við bólur, fyrr en búið
er að líma rúðurnar saman og þær
hafa verið kældar.
Stigaturninn er klæddur með innra og
ytra lagi úr 12.76 mm öryggisgleri.
Innri rúðan er úr 6 mm Eko+gleri og
6 mm lagi af demantagleri. Ytri rúðan
er úr tveimur lögum af 6 mm dem-
antagleri. Millilag úr plasti er milli glerj-
anna í hverju lagi og holrúmið er fyllt
af argon-gasi. Stærstu rúðurnar, sem
eru 2,800 x 4,300 mm að stærð og
720 kg á þyngd, eru í „pilsinu" á
fyrstu hæð. Þessar rúður eru frá-
brugðnar rúðunum sem umlykja efri
hæðir stigabyggingarinnar. Þær eru
a vs 3 7