AVS. Arkitektúr verktækni skipulag


AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2003, Side 47

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2003, Side 47
Að minnka umferðarteppuna með fleiri og stærri umferðarmannvirkjum hefur mikið verið gagnrýnt er- lendis þar sem það þykir ekki hafa borið árangur. í mörgum borgum þar sem þetta hefur verið gert er útkoman endalaus umferðarteppa. Þessar borgir eru samansettar úr hraðbrautum og öðrum stórum umferðarmannvirkjum sem og ógönguvænum göt- um. Til eru aðferðir sem vinna á umferðarteppunni og eru langtímalausnir og árangursríkar. Mælt er með þeim fyrir borgir sem vilja stefna í átt að sjálf- bærri byggðarþróun. Þær ganga út á að minnka þörfina fyrir að ferðast langar vegalengdir. Það er gert með blandaðri þéttri byggð með gönguvænum götum sem býður þannig upp á valkosti að velja ólíka ferðamáta. Aðrir ferðamöguleikar, svo sem að hjóla, ganga eða nota almenningssamgöngur, verða þá raunhæfari kostur. í erlendum borgum sem hafa upp á að bjóða borgarumhverfi notar fólk yfir- leitt ekki einkabílinn til að ferðast í og úr vinnu, nema það búi eða sæki vinnu út fyrir borgina. Það er yfir- leitt þægilegra að nota aðra samgöngumáta. í dag er verið að þétta miðborg Reykjavíkur en lítið er gert fyrir byggðina fyrir utan hana nema þá í stækkun á umferðarmannvirkjum. Miðborginni er því ætlað að verða gönguvænni en gisni hluti borgarinn- ar verður meira háður bílnum. Borgarbúar eiga því að öllum líkindum eftir að eyða meiri tíma í bílnum en þeir gera í dag sem flestum þykir ekki skemmtilegur kostur. Sumir borgarbúar vilja búa í úthverfum þar sem langt er á milli staða, en þeir eru ekki það stór hópur að það réttlæti að einungis séu byggð slík hverfi. Margir myndu eflaust sjá kosti þess að fleiri áfangastaðir væru nær, jafnvel innan göngufjarlægð- ar við heimili og vinnu. ■ ÝMSIR MÖGULEIKAR VIÐ RÝMIS- OG LAGERLAUSNIR. GETUM MEÐ STUTTUM FYRIRVARA AFGREITT GAMAHUS DANBERG - EFTIR ÞÍNUM ÓSKUM. Skúlagötu 61 Sími: 562-6470

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.