AVS. Arkitektúr verktækni skipulag


AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2003, Síða 57

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2003, Síða 57
fram í umhverfisráðuneytinu, en hún hófst með því að umhverfisráðherra og starfsmenn ráðuneytisins skoðuðu flest svæðanna og ræddu við land- eigendur og fulltrúa sveitarstjórna. Með það að markmiði að tryggja verndun búsvæða nokkurra fuglateg- unda, fjölbreyttra plöntusvæða, nokkrar mikilvægar jarðminjar og stækka þjóðgarðana, voru síðan vali 14 svæði í áætlunina. Megin áhersla í áætlunarinnar er að tryggja nægjan- lega verndun fjögurra íslenskra varp- tegunda, þ.e. hafarnar, flórgoða, grágæsar og heiðagæsar, og tveggja fargesta, þ.e. margæsar og rauð- brystings, auk helstu tegunda sjó- fugla hér við land. Það ætti því ekki að koma á óvart að sjö af 14 svæð- um í áætluninni eru fuglasvæði sbr. meðfylgjandi töflu. Með þessum aðgerðum verða allt að 70-90% búsvæða þessara tegunda innan friðlýstra svæða, nema búsvæði grá- gæsa og heiðagæsa þar sem vernd- un næði til um 10-25% þeirra. Auk þess er ráðgert að stækka þjóðgarð- ana í Jökulsárgljúfrum og Skaftafelli í þeim tilgangi að gera þá heildstæð- ari. Á plöntusvæðunumLátraströnd- Náttfararvík og Njarðvík og Loð- mundarfirði að verið að vernda nokkra af vaxtarstöðum yfir 30 sjalfgæfra plantna og í Vatnshorns- skógi er markmiðið að vernda lítt snortnar, hávaxnar og gróskumiklar leifar birkiskóga Vesturlands. Mikil- vægustu jarðminjasvæðin, Geysir og Reykjanes, Eldvörp og Hafnarberg hafa ótvírætt jarðfræðilegt mikilvægi, Geysir sem eitt þekktasta kennileiti landsins og Reykjanesið sem fram- hald úthafshryggjarins og eini staður- inn þar sem hann er á þurru. Rétt er að hafa í huga að mörk þessara 14 svæða eru sett fram án samráðs við landeigendur eða sveitarstjórnir og ekki hefur verið tekið tillit til annarar landnýtingar. Það verður því eitt af meginverkefnum Umhverfisstofnunar eftir umfjöllun og samþykkt Náttúru- verndaráætlunar 2004-2008 á Alþingi að koma henni til framkvæmda og leita samkomulags við landeigendur og sveitarfélög um mörk svæðanna, reglur og annað er varðar friðlýsingu. í því ferli verður haft að leiðarljósi hvernig tilgangur og markmið vernd- unar verði best tryggð. Á svæðinu Álftanes og Skerjafjörður, sjá. 1. mynd, er tilgangurinn til dæmis að tryggja búsvæði og viðkomusvæði ákveðinna fuglategunda en þar finn- ast jafnframt sjaldgæfar tegundir plantna. Því þarf að afmarka mikil- vægustu og viðkvæmustu svæðin og tryggja hátt verndarstig þeirra en huga jafnframt að jaðarsvæðum og öðrum svæðum sem ekki þurfa að njóta jafn strangrar friðunar og þola hugsanlega aðra landnýtingu án þess að hafa áhrif á árangur verndarað- gerða. ■ Útsýni yfir Jökulsá á Fjöllum til þjóðgarðssins í Jökulsárgljúfrum./ View across Jökulsá á Fjöllum, towards the National Park in Jökulsárgljúfur. Margæs / Goose. QVS 55

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.